Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 17

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 17
17MÁNUDAGUR 14. apríl 2003 hvað?hvar?hvenær? 11 12 13 14 15 16 17 MARS Mánudagur Belgíska deildin: Fimm íslensk mörk FÓTBOLTI Íslendingar skoruðu öll mörk Lokeren, sem burstaði Lommel 5:0 á laugardagskvöld. Rúnar Kristinsson skoraði þrennu en Marel Baldvinsson og Arnar Grétarsson skoruðu eitt mark hvor. Arnar skoraði sitt 16. mark fyr- ir Lokeren í vetur, Rúnar hefur skorað tólf og Marel tvö. Arnar Þór Viðarsson hefur einnig skorað tvö mörk. Íslendingarnir hafa því sam- tals skorað 32 af 68 mörkum Lokeren í deildinni í vetur. Club Brugge er langefst í Belgíu og á titilinn vísan en Lokeren og Anderlecht berjast um 2. sætið. ■ FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Breski lang- hlauparinn Paula Radcliffe sigr- aði í Lundúnamaraþonhlaupinu annað árið í röð. Hún hljóp vega- lengdina á tveimur tímum, 15 mínútum og 25 sekúndum og er það besti árangurinn í maraþon- hlaupi frá upphafi. Heimsmet eru hins vegar ekki skráð í Mara- þonhlaupi enda eru aðstæður mjög mismunandi í þeim borgum sem keppt er í. Aðstæður í London voru fyrir fram taldar henta vel fyrir mettilraun. Radcliffe bætti eigið met, sem hún setti í Chicago í fyrra, um tæpar tvær mínútur og kom í mark þremur mínútum á undan Catherine Ndereba (Kenýa) en Deena Drossin (Bandaríkjunum) varð þriðja. Keppni karlanna var gríðar- lega spennandi. Fimm hlauparar áttu möguleika á sigri þegar kom að lokasprettinum. Eþíópíumað- urinn Gezahegne Abera sigraði á tveimur tímum, sjö mínútum og 56 sekúndum. Ítalinn Stefano Baldini hljóp á sama tíma en var sjónarmun á eftir. Kenýamaður- inn Joseph Ngolepus var síðan sekúndu á eftir Abera og Baldini. Abdelkader El Mouaziz og Paul Tergat gáfu eftir á lokasprettin- um. Khalid Khannouchi á metið í Lundúnamaraþonhlaupinu en hann hljóp á tveimur tímum, fimm mínútum og 38 sekúndum í fyrra. Lundúnamaraþonhlaupið var fyrst háð árið 1981. Bretinn Joyce Smith sigraði í fyrsta hlaupi kvennanna á tveimur tím- um og 29 mínútum, eða fjórtán mínútum lakari tíma en Radcliffe náði í gær. ■ ÍSLENSKIR LEIKMENN Í EFSTU DEILD Deildarleikir og mörk við upphaf leiktíðar Lilleström Indriði Sigurðsson 40 - Gylfi Einarsson 40 2 Davíð Þór Viðarsson 3 - Ríkharður Daðason 76 51 Lyn Jóhann B. Guðmundsson 44 8 Helgi Sigurðsson 80 36 Teitur Þórðarson, þjálfari Molde Bjarni Þorsteinsson 25 1 Ólafur Stígsson 24 - Andri Sigþórsson 16 7 Rosenborg Árni Gautur Arason 79 - Stabæk Tryggvi Guðmundsson 127 58 Viking Hannes Þ. Sigurðsson 12 4  15.00 Stöð 2 Ensku mörkin. Öll mörk helgarinnar úr enska boltanum.  16.35 RÚV Helgarsportið. Endursýndur þáttur frá sunnudagskvöldi.  18.00 Sýn Ensku mörkin. Öll mörk helgarinnar úr enska boltanum.  19.00 Sýn Toppleikir.  21.00 Sýn Spænsku mörkin. Mörk helgarinnar úr spænska boltanum.  22.00 Sýn Gillette-sportpakkinn.  22.30 Sýn Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta- viðburði heima og erlendis.  22.50 Skjár 1 Mótor. Þáttur um mótorsport.  23.00 Sýn Ensku mörkin. Öll mörk helgarinnar úr enska boltanum.  23.40 RÚV Markaregn. Mörkin úr þýska boltanum.  0.00 Stöð 2 Ensku mörkin. Öll mörk helgarinnar úr enska boltanum. FÓTBOLTI Teitur Þórðarson, þjálfari Lyn, er að hefja sína tólftu leiktíð í norsku knattspyrnunni. Hann þjálfaði Brann árið 1988, síðan Lyn, Grei og Lilleström áður en hann flutti til Eistlands árið 1995. Teitur þjálfaði Flora Tallinn og landslið Eistlands sem vann sig úr 140. sæti í það 69. á styrkleika- leista FIFA undir stjórn hans. Árið 2000 flutti hann til Noregs á ný og gerðist þjálfari Brann en í vetur tók hann við Lyn á ný. Norsku fjölmiðlarnir Aften- posten, Nettavisen og VG eru sammála um að Rosenborg verði meistari 12. árið í röð og að Molde verði í 2. sæti eins og í fyrra. Þau setja Lilleström og Lyn ýmist í 3. eða 4. sæti en hverjar eru vænt- ingar Teits fyrir sumarið? „Væntingarnar eru stórar fyrir sumarið,“ segir Teitur. „Liðið stóð sig vel í fyrra og allar forsendur að það geri það aftur í ár.“ Er spá fjölmiðlanna rökrétt? „Ef menn miða við það sem hef- ur gerst frá lokum síðasta tímabils og til þessa tímabils er margt sem bendir til að þetta sé ekki fráleit spá.“ Getur einhver skákað Rosen- borg í sumar? „Þessi spurning kemur upp á hverju ári. Rosenborg hefur stærsta og besta hópinn, ekki bara fyrstu ellefu heldur nánast tvö jafn góð lið. Þá munar ekki eins mikið um það og önnur lið ef tveir til þrír leikmenn meiðast.“ Hvað þarf til að sigra Rosen- borg? „Númer eitt að hafa trú á því. Ef menn trúa því ekki að þeir geti unnið Rosenborg þá tekst okk- ur það aldrei. Ég hef alltaf trú á því að maður geti orðið bestur en það virðist sem margir hérna álíti að það sé ekki hægt lengur að vinna Rosenborg. Þegar ég var hjá Brann árið 2000 sagði ég þegar ég var búinn að kynnast leikmannahópnum að nú ætluðum við að berjast við Ros- enborg um titilinn. Okkur tókst að koma þessum hugsunarhætti inn hjá leikmönnum og við enduðum í 2. sæti. Það er eins og leikmenn trúi því ekki að þeir geti unnið Rosenborg. Lyn náði tíu stiga forskoti á Rosen- borg um mitt mót í fyrra en missti það niður og endaði í 3. sæti. Það var nær eingöngu vegna þess að menn höfðu ekki trú þessu.“ Aftenposten telur leikmanna- hóp Lyn sterkari en í fyrra, eink- um vegna þess að félagið fékk Jan Derek Sörensen frá Borussia Dort- mund. Blaðið telur hann koma með nýja vídd í sóknarleik Lyn, sem hafi ekki verið nógu fjölbreyttur. Helgi Sigurðsson hafi verið sá eini sem gat skorað reglulega. Mark- varsla Lyn er traust, miðverðirnir þeir fljótustu í Noregi og miðjan er skipuð traustum og reyndum leik- mönnum. Teitur kannast við þessa lýs- ingu og tekur undir hana að mörgu leyti. Hann bætir því við að Jan Derek Sörensen hafi átt við meiðsli að stríða en vonar að hann nái sér vel á strik í sumar. Teitur er ánægður með íslensku leikmennina hjá Lyn, Helga Sig- urðsson og Jóhann B. Guðmunds- son. „Jóhann lét að vísu ekki eins mikið að sér kveða í fyrra og áður en mér finnst hann búa yfir mörg- um góðum eiginleikum og ég þarf að fá hann til að trúa meira á það.“ Í kvöld leikur Lyn við Brann, fyrrum lærisveina Teits. Er ekki ágætt að byrja tímabilið á þessu ögrandi verkefni? „Jújú, en það skiptir mig engu máli hvernær við mætum þeim. Við eigum að spila við þá hvort eð er svo það er allt eins gott að mæta þeim strax.“ Leikurinn verður á Ullevaal Stadion, sem hefur verið heima- völlur Lyn í 70 ár. Í vor leit út fyr- ir að Lyn þyrfti að flytja þaðan. „Það skiptir miklu máli fyrir Lyn að spila á Ullevaal Stadion. Fé- lagið hefur alltaf átt hlut í vellin- um og á nú um 15%. Þetta hefur alltaf verið heimili Lyn og eðlileg- ast að Lyn spili hér. Ullevaal er flottasti völlurinn í Noregi og það skiptir miklu máli fyrir leikmenn að spila hér.“ En tekst fimm þúsund áhorf- endum að skapa stemningu á velli sem tekur 23 þúsund manns? „Já, þeim tekst það. Áhorfenda- fjöldinn á leikjum Lyn hefur aldrei verið mikill. Hann jókst um tvö þúsund manns að meðaltali í fyrra og ef liðið stendur sig vel þá eykst fjöldinn vonandi enn meira.“ ■ Lundúnamaraþonhlaupið: Paula Radcliffe setti met PAULA RADCLIFFE Radcliffe sigraði í Lundúnamaraþonhlaupinu annað árið í röð. Verðum að trúa því að við getum unnið Rosenborg Lyn og Brann leika á Ullevaal Stadion í kvöld. Mikilvægt fyrir Lyn að spila áfram á Ullevaal, segir Teitur Þórðarson, þjálfari félagsins. TEITUR Teitur Þórðarson, þjálfari Lyn, mætir fyrrum lærisveinum sínum í Brann í 1. umferð norska boltans. RÍKHARÐUR OG HELGI Ríkhaður Daðason og Helgi Sigurðsson leika í efstu deildinni norsku. Norski fótboltinn: Tólf Íslendingar í efstu deild FÓTBOLTI Tólf Íslendingar leika í efstu deildinni norsku í sumar. Auk leikmannanna er einn ís- lenskur þjálfari í deildinni, en það er Teitur Þórðarson, sem þjálfar Lyn frá Osló. ■

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.