Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 14. apríl 2003 Samfylkingin í þitt fyrirtæki Samfylkingin býður öllum fyrirtækjum að fá frambjóðendur í heimsókn. Ef þitt fyrirtæki hefur áhuga á að fá frambjóðanda frá Samfylkingunni í heimsókn verðum við með ánægju við þeirri ósk. Hægt er að hafa samband við Ólafíu B. Rafnsdóttir olafia@samfylking.is eða í síma 590 3506 GENF, AP Að minnsta kosti 1.526 manns í 31 landi voru teknir af lífi að fyrirskipan yfirvalda á síðasta ári, samkvæmt nýútkominni árs- skýrslu Amnesty International. Samtökin hafa vitneskju um 1.060 aftökur í Kína árið 2002 og 113 í Íran en talið er að þær hafi verið miklum mun fleiri. „Í mörg- um tilfellum var um að ræða aug- ljós brot á alþjóðalögum,“ sagði talsmaður Amnesty. „Fangar voru dæmdir til dauða án þess að hafa fengið sanngjörn réttarhöld.“ Í Bandaríkjunum var framkvæmd 71 aftaka. Bandaríkin eru eina landið þar sem fangar eru teknir af lífi fyrir glæpi sem þeir frömdu undir átján ára aldri. Samtökin leggjast alfarið gegn dauðarefsingum en hafa einkum þungar áhyggjur af villimannleg- um aftökuaðferðum sem víða tíðkast. Benda þau m.a. á að í Íran séu sakborningar grýttir til bana og í Sádi-Arabíu séu menn háls- höggnir fyrir að vera samkyn- hneigðir. ■ DÓMAR Ríkissaksóknara bárust í mars alls 264 dómar og viðurlaga- ákvarðanir frá héraðsdómstólum þar sem ákærðir voru 288 einstak- lingar. Af þeim voru fjórir alfarið sýknaðir. Þyngsta refsingin var ákveðin 15 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Þá voru þrjátíu og tveir einstaklingar dæmdir í óskil- orðsbundið fangelsi en fimmtíu og einn í skilorðsbundið fangelsi að öllu leyti eða hluta. Flestir voru ákærðir í tengslum við brot á um- ferðarlögum eða 148 einstaklingar. Þá voru níutíu og níu einstaklingar ákærðir vegna brota á hegningar- lögum. Dæmi um einn þeirra dóma sem féllu segir af tveimur ungum mönn- um, 22 og 20 ára. Báðir voru ákærð- ir fyrir líkamsárás. Höfðu þeir í fé- lagi ráðist á 43 ára karlmann þar sem hann lá sofandi í rúmi. Drógu þeir hann út á gólf og slógu marg- sinnis og spörkuðu í höfuð hans og líkama. Sá eldri hlaut 7 mánaða fangelsi og hinn 2 mánaða skilorðs- bundið fangelsi. Auk þess var sá fyrrnefndi dæmdur fyrir þrjár lík- amsárásir til viðbótar og fjársvik. ■ 288 einstaklingar ákærðir í mars: Þyngsta refsing fyrir kynferðisbrot Amnesty International fordæmir dauðarefsingar: Villimannlegar og ólöglegar aftökur PYNTINGAKLEFI Í BAGDAD Að sögn Amnesty International tíðkast villi- mannlegar aftökuaðferðir víða um heim auk þess sem algengt er að sakborningar séu teknir af lífi án sanngjarnra réttarhalda.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.