Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 6
BAGDAD, AP Bandarískir hermenn voru í gær komnir til Tikrit, heimabæjar Saddams Hussein norður af höfuðborginni Bagdad. Svo virtist sem mótstaða hafi verið lítil. Tikrit er síðasta vígi Saddams Husseins af þeim fjórum, sem innrásarherinn lagði mesta áher- slu á að ná á sitt vald, næst á eft- ir Bagdad, Kirkuk og Mosul. Donald Rumsfeld, landvarna- ráðherra Bandaríkja, sagði í gær engan vafa leika á því að sumir æðstu ráðamenn Íraks væru flúnir til Sýrlands. Aðrir hafi far- ið til annarra landa. Hann vildi engu svara um það hvort Banda- ríkin hygðu á refsiaðgerðir gegn Sýrlandi. „Við gerum okkur vonir um að Sýrland verði ekki skálkaskjól fyrir stríðsglæpamenn eða hryðjuverkamenn,“ sagði Rums- feld. Bandaríski hershöfðinginni Tommy Franks, sem stjórnar inn- rásinni, fullyrti í gær að Banda- ríkjamenn hefðu undir höndum erfðaefni úr Saddam Hussein og fleiri íröskum ráðamönnum. Þeir gætu því sannreynt hvort um rétta menn væri að ræða, hvort heldur þeir finnast lífs eða liðnir. Um Saddam Hussein sagði Franks: „Hann er annað hvort dauður eða í óða önn að flýja, en hann er ekki að stjórna neinu eins og er.“ Víða í Bagdad virtist sem ástandið væri að róast, fólk væri hætt að fara um rænandi og rup- landi. Annars staðar í borginni var gripdeildum þó hvergi nærri lok- ið. Hvorki rafveita né vatnsveita eru í lagi í Bagdad og óttast er að smitsjúkdómar geti valdið miklum usla. Bandaríski herinn er hins veg- ar farinn að nota flugvöllinn í Bagdad, þótt hann sé illa farinn og þarfnist viðgerða. Bandaríski herinn hefur einnig flugvöllinn í Mosul á sínu valdi. Ró virtist ríkja í Mosul í gær, en spenna virtist samt vaxa milli kúrda og araba þar í borg. Margir arabar, sem eru tveir þriðju af íbúum Mosul, eiga erfitt með að sætta sig við kúrd- neska hermenn í borginni. „Okkur finnst sem arabar séu að verða annars flokks borgarar í okkar eigin borg,“ segir Abdullah Jaber leigubílsstjóri. „Ef þessu heldur áfram óttast ég að Mosul verði tvískipt af reiði: Kúrdar öðru megin og arabar hinu megin.“ ■ 6 14. apríl 2003 MÁNUDAGURVeistusvarið? 1Leki komst að norska selveiðiskipinuPolarsyssel vestur af Ísafjarðardjúpi á föstudag. Hvert var skipið dregið til hafn- ar? 2Sænska þingið svipti sænska aðals-menn fríðindum. Hve margir eru sænskir aðalsmenn? 3Dóttir Jóns Stefánssonar listmálarasegir að fimm málverk sem honum eru eignuð séu allt of mikil flatneskja til þess að faðir hennar geti hafa málað þau. Hvað heitir dóttir Jóns? Svörin eru á bls. 27 Milljóna tjón á Akureyri Hundrað rúður brotnar LÖGREGLUMÁL Hundrað rúður voru brotnar í skólum og nýbyggingu á Akureyri aðfaranótt laugardags. Samkvæmt upplýsingum lögregl- unnar á Akureyri var 81 rúða brotin í Síðuskóla, 18 í Glerár- skóla og ein í nýbyggingu við Skálateig. Talið er að tjónið nemi vel á aðra milljón króna. Lögreglu- menn við eftirlitsstörf komu að Síðuskóla um klukkan þrjú um nóttina og sáu hvað hafði um garð gengið. Tilkynning um rúðubrot í Glerárskóla barst lögreglu að morgni laugardags. Engin til- kynning um hávaða barst um nóttina þrátt fyrir að skólarnir séu í íbúðahverfi og rúðurnar hafi verið brotnar með grjótkasti. Vitni sem taldi sig hafa heyrt brothljóð um nóttina gaf sig ekki fram við lögreglu fyrr en um morguninn. Málið er í rannsókn og allir þeir sem hafa upplýsingar um málið eru beðnir um að hafa samband við lögregluna á Akur- eyri. ■ Barist í heima- bæ Saddams Bandaríski herinn mætti lítilli mótsöðu í Tikrit. Helstu ráðamenn Íraks sagðir flúnir til Sýrlands og annarra landa. Bandaríkjamenn segjast hafa lífsýni úr Saddam Hussein. FLUGFREYJUR MEÐ GRÍMUR Flugfreyjum Hong Kong-flugfélagsins Cat- hay Pacific Airways hefur verið fyrirskipað að ganga með grímur fyrir öndunarfærum til þess að verja sig gegn HABL-vírusnum. HABL-faraldurinn í Hong Kong: Fimm létust um helgina HEILSUFAR Fimm einstaklingar í Hong Kong létust af völdum heil- kennis alvarlegrar bráðrar lungnabólgu, eða HABL, um helg- ina. Það er til viðbótar við þá fjörutíu sem þegar hafa látist af völdum sjúkdómsins. Fjórir þeir- ra sem létust um helgina höfðu verið heilbrigðir áður en þeir smituðust af vírusnum. Á sunnudag sendi yfirmaður flugfélagsins Cathay Pacific Airways yfirvöldum bréf þar sem hann sagði að flugfélagið væri í hættu að missa öll viðskipti sín vegna ástandsins. Yfirvöld sendu frá sér yfirlýsingu í síðustu viku þar sem ferðamenn voru hvattir til þess að halda sig fjarri borg- inni og íbúar hvattir til þess að halda sig innan borgarmarka. ■ VÉLSLEÐAMAÐUR SÓTTUR MEÐ ÞYRLU Tilkynnt var um slasaðan vélsleðamann við Skjaldbreiður um miðjan dag á laugardag. Mað- urinn var sóttur með þyrlu Land- helgisgæslunnar og fluttur á slysadeild. Talið er að hann hafi fallið af vélsleða og meiðst á baki. SKÓLABRUNINN Í SYDYBAL Ravshan Islamov, 13, komst lífs af úr skólabrunanum í Sydybal. Myndin er tekin á spítala í Makhachkala í Dagestan í suð- urhluta Rússlands. Skólinn var fyrir heyrn- arlaus börn. Skólabruninn í Sydybal: Fórnarlömb- in 22 jörðuð RÚSSLAND Ættingjar, vinir og yfir- völd í rússneska smábænum Sydybal héldu minningarathöfn á sunnudag fyrir 22 nemendur sem létust er skóli þeirra brann til kaldra kola í síðustu viku. Skóla- húsið var gamalt tréhús og var ekki hægt að bera kennsl á öll líkin vegna þess hversu illa bruninn þau voru. Þrjátíu og fimm önnur börn eru á spítölum og eru mörg þeirra með mikil brunasár. Hinir látnu voru jarðaðir við tregafulla athöfn í elsta kirkju- garði bæjarins. Nemendurnir voru á aldrinum 11-18 ára. Í kjölfar brunans var skóla- stjórinn sakaður um vanrækslu og rekinn. Nýr skóli verður byggður á nýjum stað úr steinsteypu. ■ FERNT Á SLYSADEILD Tvær bifreiðar rákust á á Biskups- tungnabraut um klukkan þrjú á laugardag. Ökumaður og þrír far- þegar úr annarri bifreiðinni voru fluttir á slysadeild. Tvennt var í hinum bílnum og sluppu þau ómeidd. Áreksturinn átti sér stað við vegamót. Héraðsdómur Norðurlands eystra: Sparisjóður dæmdur til að greiða 14 milljónir DÓMSMÁL Héraðsdómur Norður- lands eystra hefur dæmt Sparisjóð Ólafsfjarðar til að greiða bróður fyrrverandi sparisjóðsstjóra Spari- sjóðs Ólafsfjarðar 13,7 milljónir króna. Þá er sparisjóðnum og gert að greiða 700 þúsund í málskostnað. Á árunum 1995-1996 komu upp grunsemdir um að ekki væri allt með felldu í fjármálastjórn bankans viðvíkjandi lánveitingum og ábyrgðum. Bankaeftirlitið tók málið til athugunar og í skýrslu þess kom m.a fram að þrír fjárhagslega tengdir aðilar voru með heildar- skuldbindingar yfir 40% af eigin fé sjóðsins. Leiddu þessar upplýsingar til þess að sparissjóðsstjórinn sagði af sér. Í dómsmálinu var deilt um það hvort sparisjóðnum bæri að endur- greiða bróðurnum peninga sem bankinn tók við vegna ábyrgða sem sparisjóðsstjórinn fyrrverandi hafði tekist á hendur. Bróðir spari- sjóðsstjórans fyrrverandi byggði kröfurnar á því að sparisjóðsstjór- inn fyrrverandi yrði ekki látinn sæta refsingu ef ábyrgðin yrði gerð upp. ■ DANIR VINNA SVART Fjórði hver Dani hefur á síðasta ári unnið sér inn laun sem hann gefur ekki upp til skatts. Þetta kemur fram í könnun sem skýrt er frá á vefsíðu danska blaðsins Berl- ingske Tidende. Á MÓTI AF TRÚARÁSTÆÐUM Kjell Magne Bondevik, forsæt- isráðherra Noregs, segir að trú- arlegar ástæður hafi legið á bak við ákvörðun sína um að lýsa ekki yfir stuðningi við innrás Bandaríkjanna í Írak. Hann seg- ir það ekki samræmast kristn- um lífsskilningi sínum að hefja þetta stríð. Þetta sagði hann í viðtali við norska dagblaðið Dagsavisen. HÉRAÐSDÓMUR NORÐURLANDS EYSTRA Bróðir sparisjóðsstjórans fyrrverandi byggði kröfurnar á því að sparisjóðsstjórinn fyrrver- andi yrði ekki látinn sæta refsingu ef ábyrgðin yrði gerð upp. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /J AN U S SÍÐUSKÓLI 81 rúða var brotin í Síðuskóla um helgina ■ Norðurlönd ■ Innlent ■ Innlent AP /H U SS EI N M AL LA BANDARÍKJAMENN Í BAGDAD Bandarískir hermenn gera leit að fólki sem grunað er um að hafa stundað gripdeildir í Bagdad.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.