Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 27
VARÐVEISLA „Haft var eftir Steini Steinarr, sem var um tíma aðstoð- arvitavörður á Reykjanesvita, að honum hefði leiðst svo hræðilega að hann hefði byrjað að yrkja,“ segir Kristján Sveinsson sagn- fræðingur. Kristján vinnur á Sigl- ingastofnun og er jafnframt einn þeirra sem hyggjast stofna Ís- lenska vitafélagið í lok mánaðar- ins. Vitaverðir með fasta búsetu heyra nú sögunni til, en eftir standa vitarnir. Reykjanesviti var fyrsti vitinn sem var reistur hér á landi árið 1878. „Síðan gerðist ekki mikið fyrr en þrír vitar voru byggðir við Faxaflóa 1897,“ segir Kristján. „Þetta voru á sínum tíma geysilega mikilvæg öryggistæki sjómanna. Nú hafa menn á fleira að treysta.“ Kristján segir ástæðu stofnun- ar vitafélags vera þá að þau sem að félaginu standa hafi orðið vör við mikinn áhuga á því að skoða vitana og fræðast um þá. Það haldist í hendur við aukinn úti- vistaráhuga. „Við viljum gera þá aðgengilegri fyrir fólk og kynna þá. Svo viljum við vinna að því að mótuð sé stefna um varðveislu þeirra.“ Umhverfi vitanna er í mörgum tilfellum geysilega fal- legt. „Ég held að fólk sjái koma saman í vitanum, þetta mann- gerða og þetta náttúrulega.“ ■ MÁNUDAGUR 14. apríl 2003 Pondus eftir Frode Øverli Enn einn dagur... frábært! Maður kærður í San Diego: Stal 560 þús- und krónum í nafni Bjarkar FÓLK Tuttugu og fimm ára gamall maður hefur verið kærður í San Diego fyrir að féfletta eiganda skemmtistaðar í nafni Bjarkar Guðmundsdóttur. Maðurinn, sem heitir Alex Conate, á að hafa tekið við peningum frá eigand- anum gegn því loforði að Björk kæmi þar fram á tónleikum. Ein- hvern veginn náði hann að sann- færa hann að Björk væri á með- al vina hans. Miðar voru seldir á 40 dollara (rúmar 3.000 kr.) og fékk maður- inn rúmar 560 þúsund krónur í kassann og flúði svo til Hawaii þar sem hann var handtekinn. Eigandi skemmtistaðarins kærði manninn fyrir stórþjófnað. Alex Conate, sem heldur fram sakleysi sínu, þarf að mæta fyr- ir rétt til þess að svara fyrir sig. Upphafsdagur réttarhaldanna verður ákveðinn síðar. Talsmenn Bjarkar segja það ekki hafa verið á dagskránni að halda tónleika í San Diego. Í sumar leikur hún þó á tónleikum um helgar og kemur m.a. fram á stærri tónleikahátíðum í Evr- ópu. Tónleikaferðin hefst í Val- encia á Spáni þann 30. maí. ■ BJÖRK Þessi skemmtilega ljósmynd af söng- konunni var tekin af ljósmyndaran- um Jürgen Teller. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Skipið var dregið til Hafnar- fjarðar. Sænskir aðalsmenn eru 26.000 talsins. Dóttir Jóns Stefánssonar heitir Bryndís. Viðurkenndu það! Ha? Þú dýrkar líkama minn! HAHA... Hættu þessu, rugludallurinn þinn! Þú fílar það! VITINN OG UMHVERFIÐ Straumnesviti í Skagafirði er verk Axels Sveinssonar, verkfræðings sem teiknaði marga vita víða um land. Áhugafélag ■ Stefnt er að því stofna félag um vita í lok mánaðarins. Vitarnir eru margir merkar byggingar og standa víða mitt í fagurri náttúru. Leiddist svo hræðilega að hann byrjaði að yrkja

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.