Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 28
14. apríl 2003 MÁNUDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 Bi llu nd Bi llu nd DANMÖRK Beint leiguflug me› ICELANDAIR 29 . m aí - 4. s ep t. 21 .6 52 21 .6 52 V er › fr á kr. á mann m. v. að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja-11 ára, ferðist saman. Innifalið er flug og flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman, 24.950 kr á mann. Takmarkað sætaframboð 72 ÁRA „Ég mundi nú ekkert eftir þessu fyrr en ég las þetta í ein- hverju blaði,“ segir Haraldur Bessa- son, fyrrverandi prófessor í Winnipeg og háskólarektor á Akur- eyri, um sjötíu og tveggja ára af- mælið sitt í dag. Hann tekur því líf- inu með ró og lætur veisluhöld eiga sig. „Mér hafa verið haldnar veislur, bæði þegar ég var fertugur og fimmtugur. Þá töldu margir að ég væri orðinn svo gamall að það væri við hæfi að halda mér veislu en það eru nú orðin tuttugu og tvö ár síð- an.“ Haraldur segir að sjötugsafmæl- isdagurinn, fyrir tveimur árum sé sér minnisstæður. „Þá vorum við stödd í Kaupmannahöfn, í Jónshúsi, og vinir mínir sendu mér afmælisrit sem var ansi stórt. Þá samdi forseti Alþingis, Halldór Blöndal, mér nýja Völuspá sem var lesin fyrir mig. Mér þykir það betra kvæði en það eldra og þá er nú langt til jafnað.“ Þegar Haraldur kom heim frá Kanada varð hann fyrsti rektor Há- skólans á Akureyri og festi skólann í sessi á átta ára rektorsferli sínum. „Eftir að ég varð of gamall til að sinna opinberu starfi hef ég grúskað ýmislegt. Síðustu árin hef ég unnið með dr. Baldri Hafstað og við höfum gefið út tvær bækur um goðafræði- bókmenntir og þjóðsögur. Þá hef ég verið að rifja dálítið upp endurminn- ingar mínar frá Kanada og hef verið þar með annan fótinn. Ég býst við að ég haldi þessu eitthvað áfram enda er margs að minnast og mér finnst það nánast vera skylda mín að koma því, kannski ekki endilega á prent, en í það minnsta á blað.“ ■ Afmæli ■ Haraldur Bessason, fyrrverandi rektor Háskólans á Akureyri er 72 ára í dag. Hann ætlar að taka lífinu rólega í dag. Þegar hann varð sjötugur var gefið út af- mælisrit honum til heiðurs og Halldór Blöndal orti honum nýja Völuspá. Fékk nýja Völuspá sjötugur HARALDUR BESSASON Er þjóðkunnur fyrir störf sín, ekki síst vest- an hafs, en hann var prófessor á Íslend- ingaslóðum í Kanada í 31 ár og var auk þess eins konar óopinber sendiherra Ís- lands meðal Vestur-Íslendinga. ÍÞRÓTTIR Forsvarsmenn hnefa- leikaklúbba hér á landi standa í forundran og klóra sér í kollinum. Kvenfólk streymir á hnefaleika- æfingar og sýnir síst minni áhuga en karlmenn. Við þessu var ekki búist: „Við liggur að við þurfum að skipta um búningsklefa og láta konurnar hafa karlaklefana, sem að sjálfsögðu eru stærri,“ segir Ólafur Guðlaugsson hjá Hnefa- leikafélagi Reykjavíkur og undir orð hans tekur Guðjón Sigurðsson í BAG-hnefaleikafélaginu í Reykjanesbæ: „Hjá okkur er þetta orðið fiftí-fiftí. Mest konur sem eru að koma sér í form því þær vita sem er að boxið er fínt fyrir fittið,“ segir Ólafur, sem undrast áhugann: „Þetta eru ekki allt bardagahundar en sumar kon- urnar eru verulega grimmar og ég gæti best trúað að við ættum eftir að eignast stórstjörnu í kvennaboxinu.“ Hjá Hnefaleikafélagi Reykja- víkur hafa karlarnir stúderað stíl kvennanna og ýmislegt lært: „Konurnar eru námsfúsari og leggja sig betur fram. Þær eru mýkri í hreyfingum og mætti helst líkja við sportbíl. Slagkraft- urinn er hins vegar ekki jafn mik- ill og karlanna frekar en togkraft- urinn,“ segir Ólafur. Guðjón hjá BAG í Reykjanes- bæ segir þróunina hér vera á svip- uðum nótum og í Danmörku: „Þar hafa menn einnig verið að undrast mikla þátttöku kvenna. Skýring Dananna er sú sama og okkar. Konurnar hafa fundið að boxið er góð hreyfing og hreint frábær til að komast í form.“ Hjá Hnefaleikafélagi Reykja- víkur eru um 300 virkir félagar sem æfa box reglulega. Þar af eru hartnær hundrað konur. Í Reykja- nesbæ er hlutfallið hærra því þar lætur nærri að konur séu um helmingur iðkenda eins og fyrr greindi. eir@frettabladid.is HÚSAFRIÐUN Húsafriðunarnefnd ríkisins er nú að leggja lokahönd á lista yfir byggingar sem lagt er til að verði friðaðar. Meðal nýmæla á listanum er hákarlahús í Hrísey og gamla Apótekið í miðbæ Akur- eyrar. Hefur starfsmaður nefnd- arinnar, Magnús Skúlason arki- tekt, verið á ferð fyrir norðan að skoða ástand bygginganna auk þess að líta á fleiri sem hugsan- lega koma til greina í friðunar- flokk framtíðarinnar. Á slíkum lista er að finna Norræna húsið en á þeim lista sem nú verður lagður fram eru auk fyrrgreindra bygg- inga Þjóðleikhúsið og Sundhöll Reykjavíkur við Barónsstíg. Í Sundhöllinni hafa menn fylgt fast eftir friðunaráformum og meðal annars hafa nýlegir sturtuhausar verið látnir víkja fyrir stærri og upprunalegri, sem ávallt hafa ver- ið meðal helstu kosta þessa mann- virkis Guðjóns Samúelssonar. ■ SUNDHÖLLIN Friðuð með Þjóðleikhúsinu og gamla Apótekinu á Akureyri. Hákarlahús friðað í Hrísey Konurnar streyma í boxið Hnefaleikar ■ Kvenfólk hefur sýnt nýfengnu frelsi í boxi áhuga. Þær streyma í hnefaleika- klúbbana og eru nú nærfellt helmingur iðkenda. Grimmar en liprar. KONUR MEÐ HANSKA Námfúsari, liprari og mýkri en karlarnir í hringnum. FORM Konurnar vita sem er að hoppið í hringnum gerir þær fitt. ÁSÓKN Áhugi kvennanna kom á óvart. M YN D IR /V ÍK U R FR ÉT TI R

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.