Fréttablaðið - 14.04.2003, Page 12

Fréttablaðið - 14.04.2003, Page 12
12 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR FERMINGARTILBOÐ A50 - Frábær nýr farsími frá Siemens Í tilefni ferminga bjóðum við eftirfarandi búnað á góðu verði: A50 farsíma Krusell tösku Handfrjálsan búnað Auka fram- og bakhlið Tilboðsverð: 12.900 Stakur sími kostar 9.900 kr. Nóatúni 4 - S. 520 3000 - www.sminor.is O D D I H F- J6 04 2 EFNAHAGSMÁL Gert er ráð fyrir hægfara efnahagsbata í heimin- um á þessu ári samkvæmt nýrri efnahagsspá Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins. Í vefriti fjármálaráðuneytisins er fjallað um skýrsluna og þar segir að hagvaxtarspár fyrir 2003 og 2004 hafi verið lækkaðar frá síðustu spá sjóðsins sem kom út síðastliðið haust. Hagvöxtur árs- ins 2002 reyndist örlítið meiri en síðasta spá gerði ráð fyrir, en samkvæmt þessari nýjustu spá sjóðsins er reiknað með að hag- vöxtur á evrusvæðinu verði 1,1% á þessu ári og 2,3% á því næsta. Í Bandaríkjunum er búist við örari vexti en þar er reiknað með 2,2% vexti í ár og 3,6% á næsta ári. Samkvæmt spánni stafar hæg- ur hagvöxtur að undanförnu að hluta til af óvissu sem skapaðist vegna yfirvofandi stríðs í Írak en einnig vegna viðvarandi áhrifa af lækkunum á hlutabréfamörkuð- um. Atvinnuleysi hefur aukist og iðnaðarframleiðsla staðnað auk þess sem dregið hefur úr alþjóða- viðskiptum. Afturkippur í efna- hagslífinu hefur enn fremur veikt stöðu ríkisfjármála í flestum löndum og leitt til halla og skulda- söfnunar á nýjan leik. Svigrúm stjórnvalda til mótvægisaðgerða hefur því þrengst. ■ SARAJEVÓ, AP Friðargæsluliðar Nató hafa handtekið 35 ára gaml- an Bosníumúslíma sem ákærður er fyrir stríðsglæpi gegn Serbum. Naser Oric var yfirmaður her- sveita múslíma í borginni Srebr- enica þar sem serbneskar her- sveitir myrtu fjölda óbreyttra múslíma í Bosníu-stríðinu. Ákæra stríðsglæpadómstólsins í Haag á hendur Oric er í sex lið- um og hljóðar upp á brot gegn Genfarsáttmálanum, morð, pynt- ingar og tilefnislausa eyðilegg- ingu. Oric er gefið það að sök að hafa pyntað og myrt serbneska fanga í Srebrenica og hafa farið ránshendi um fimmtán þorp í ná- grenni borgarinnar. Serbar hafa ásakað Oric og hersveitir hans um að hafa drepið um 2.000 óbreytta borgara í ránsferðum sínum. Ákæran var ekki gerð opinber strax, sem gerði yfirvöldum kleift að koma Oric að óvörum. Hann var handtekinn fyrir utan heimili sitt í borginni Tuzla af hópi borg- aralega klæddra friðargæsluliða og hefur nú þegar verið fluttur til Haag. ■ BERLÍN, AP Lögreglan í Berlín réðst til inngöngu í strætisvagn þar sem bankaræningi hélt tveimur manneskjum í gíslingu í fjórar og hálfa klukkustund. Sérsveitar- menn lögreglunnar brutu rúður á strætisvagninum til þess að kom- ast inn og skutu ræningjann í öxl- ina. Farþegi og lögreglukona, sem hafði elt manninn inn í vagn- inn, sluppu ómeidd. Forsaga málsins er sú að tveir grímuklæddir menn á þrítugs- aldri frömdu vopnað rán í banka í Steglitz-hverfinu í Berlín. Komust þeir undan með ótil- greinda peningaupphæð og tóku yfir strætisvagn sem stóð fyrir utan bankann. Yfir 20 farþegar voru um borð en þeir höfðu nær allir komist undan þegar lögregl- unni tókst að stöðva vagninn um klukkustund síðar. Lögreglan umkringdi vagninn og leyniskyttur tóku sér stöðu skammt frá. Á meðan á umsátr- inu stóð heyrðist byssuhvellur inni í vagninum en óvíst er hvort það var ræninginn eða lögreglu- konan sem skaut. Félagi manns- ins var á bak og burt þegar lög- reglan gerði áhlaup á strætis- vagninn en ekki liggur fyrir hvenær hann lét sig hverfa. ■ Ræningi komst undan í strætisvagni: Yfirbugaður eftir fjögurra tíma umsátur UMSÁTRI LOKIÐ Bankaræningi særðist lítillega þegar lög- reglan gerði áhlaup á strætisvagn þar sem hann hélt tveimur manneskjum í gíslingu. NASER ORIC Á meðal Bosníu-múslíma er Naser Oric álitinn þjóðhetja fyrir að hafa reynt að halda uppi vörnum gegn hersveitum Serba í borginni Srebrenica þegar Bosníu-stríðið stóð sem hæst. Bosnísk þjóðhetja: Sakaður um stríðsglæpi Efnahagsspá Alþjóðagjaldeyrissjóðsins: Búist við hægum efnahagsbata LÆKKUN HLUTABRÉFAMARKAÐA Hægur hagvöxtur að undanförnu stafar meðal annars vegna viðvarandi áhrifa af lækkunum á hlutabréfamörkuðum. Egilsstaðir: Ekki með- gjöf með Eiðakirkju SVEITARSTJÓRNIR Sóknarnefnd Eiða- kirkju fær enga meðgjöf frá Aust- ur-Héraði þegar nefndin tekur við kirkjunni frá sveitarfélaginu. Samkvæmt kaupsamningi milli Austur-Héraðs og einkafélagsins Eiða ehf. á kirkjan ásamt lóð og kirkjugarði að afhendast sóknar- nefndinni. Nefndin taldi að með þyrftu að fylgja peningar svo unnt yrði að byggja þjónustuhús við kirkjuna. Bæjarráð Austur-Héraðs vildi ekki láta fé af hendi rakna en segir að uppfylla eigi samninginn um af- hendingu kirkjunnar. ■ HEILBRIGÐISMÁL Campylobacter- sýkingum í mönnum hefur fækkað um 80% hérlendis á síðustu þremur árum. Þetta kom fram í ræðu Sivj- ar Friðleifsdóttur umhverfisráð- herra á málþingi um campylo- bacter á föstudaginn. Siv sagði að sú staðreynd að fjöldi sýkingatil- fella væri um fimmtungur af því sem hann hefði verið árið 1999 þýddi sparnað upp á 130 til 260 milljónir króna á ári. ■ SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR Umhverfisráðherra segir að litið sé til Íslands sem fyrirmyndar. Campylobacter-sýkingar: Um 80% fækkun

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.