Fréttablaðið - 14.04.2003, Page 13
13MÁNUDAGUR 14. apríl 2003
Alþjóðagjaldeyris-
sjóðurinn:
Spáir 2%
verðbólgu
EFNAHAGSMÁL Samkvæmt Alþjóða-
gjaldeyrissjóðnum hefur verð-
bólga verið mjög lítil í þróuðum
ríkjum og búist er við að hún
verði undir 2% á þessu ári.
Verðbólgan er talin geta auk-
ist aðeins í Bandaríkjunum þar
sem gengi dollars hefur lækkað
og olíuverð hækkað en líklegt
þykir að sú hækkun gangi til
baka. Á evrusvæðinu hefur
hækkun á gengi evrunnar vegið á
móti olíuverðshækkunum. Gert
er ráð fyrir að áfram dragi úr
verðbólgu þar og að hún verði um
1,5% á næsta ári.
Í Japan heldur verðhjöðnun
áfram en hún gæti jafnvel orðið
víðtækara vandamál, til dæmis í
Þýskalandi þar sem var nánast
engin verðbólga seinni hluta árs-
ins 2002. ■
Stjórnvöld í Svasílandi:
Ekkert
nema góðar
fréttir
SVASÍLAND, AP Upplýsingaráðherra
Svasílands hefur bannað ríkis-
reknum fjölmiðlum landsins að
flytja umdeildar fréttir. Þetta er
gert vegna þess að stjórnarand-
stæðingar ætla að efna til mánað-
arlangra mótmæla gegn stjórn
landsins.
Meðal þess sem upplýsingaráð-
herrann vill ekki sjá í ríkisrekn-
um fjölmiðlum eru fréttir af
kaupum hins einvalda konungs
landsins á nýrri þotu á kostnað
ríkissjóðs og fréttir af atvikum
þar sem lög og regla hafa látið
undan síga. ■
Ensk sveitarstjórn:
Flytjið til
Frakklands
LONDON, AP Sveitarstjórninni í
Kent líst ekkert á hugmyndir um
að tugþúsundir nýrra heimila
verði byggðar í sýslunni á næstu
árum til að mæta húsnæðisþörf.
Hún hefur því brugðið á það ráð
að hvetja fólk til að flytja til
Frakklands.
„Húsnæðisverð í Norður-
Frakklandi er mun lægra en í
Kent,“ segir oddviti sveitarstjórn-
arinnar. „Fólk gæti unnið hérna
en notið þess sem Frakkland hef-
ur upp á að bjóða.“ Hann leggur
því til að fólk búi í Norður-Frakk-
landi en fari um Ermarsunds-
göngin til að komast til vinnu í
Suður-Englandi. Þegar ný hraðlest
kemst í notkun á svæðinu tekur
aðeins klukkutíma að ferðast frá
Calais til London með lest. ■
STJÓRNMÁL T-listinn, sem býður
fram í Suðurkjördæmi, leggur
fyrst og fremst áherslu á hækk-
un skattleysismarka í 90 þús-
und krónur og lækkun á virðis-
aukaskatti á matvælum.
Kristján Pálsson, þingmaður
og stofnandi T-listans, segist
vilja stíga varlega til jarðar í
öllum yfirlýsingum í skattamál-
um. Þær séu háðar því að svig-
rúm skapist í opinberum fjár-
málum og líta verði til þess að
við afgreiðslu fjárlaga í vetur
hafi aðeins 1,2 milljarðar króna
staðið eftir. Það sé því ekki eins og
ríkið hafi einhverja sjóði til að
ganga í.
„Við teljum að skattalækk-
anir eigi að hagnast þeim sem
lægstar hafi tekjurnar og
hækkun skattleysismarka ger-
ir það,“ segir Kristján. „Enn
fremur viljum við skoða hvort
grundvöllur sé fyrir að hækka
hátekjuskattsmörkin og lækka
virðisaukaskatt á matvæli.“
Kristján segir að T-listinn vilji
enn fremur skoða vandlega
hvort ekki sé rétt að hækka frí-
tekjumark námsmanna sem
séu á námslánum. Núverandi
kerfi virki letjandi á náms-
menn, því námslánin byrji að
skerðast svo fljótt, eða við svo lág-
ar tekur. ■
Kristján Pálsson, þingmaður og stofnandi T-listans:
Vill hækka skattleysismörk
KRISTJÁN PÁLSSON
Kristján segir að T-listinn vilji skoða vand-
lega hvort ekki sé rétt að hækka frítekju-
mark námsmanna sem séu á námslánum.
VALLETTA, AP Eddie Fenech Adami,
forsætisráðherra Möltu, hrósaði í
gær sigri eftir þingkosningar á
laugardag. Talningu atkvæða var
þó ekki lokið.
Adami sagði að nú yrði ekki
snúið af braut aðildar að Evrópu-
sambandinu.
Alfred Sant, leiðtogi stjórnar-
andstöðunnar og fyrrverandi for-
sætisráðherra, hafði heitið því að
undirrita ekki aðildarsamning ef
hann hlyti sigur í kosningunum. Í
gær viðurkenndi hann þó ósigur
sinn og sagðist virða vilja þjóðar-
innar.
Malta er eitt tíu ríkja sem ætla
að ganga í Evrópusambandið á
næsta ári. Leiðtogar allra ríkj-
anna eiga að undirrita aðildar-
samning í Grikklandi nú á mið-
vikudaginn. ■
Forsætisráðherra Möltu:
Hrósar
sigri
EVRÓPUSINNAR FAGNA
Evrópusinnum á Möltu virðist nú ekkert að
vanbúnaði að undirrita aðildarsamning á
miðvikudaginn.