Fréttablaðið - 14.04.2003, Side 16
16 14. apríl 2003 MÁNUDAGUR
MIKE WEIR
Upphafshögg Kanadamannsins Mike Weir
á 17. holu í 3. umferð bandaríska Masters-
mótsins um helgina.
Golf
Víngerðarverslunin þín!
Fremstir síðan 1959 Gæðavara á góðu verði
Ný sending komin
sem fer beint á útsölu.
Vertu tilbúinn fyrir grillið í sumar!
Ármúla 15 - 108 Reykjavík - Sími: 533 3070 - www.vinhussins.isOpið föstud. 10 - 18 og laugard. 11 - 14 -
RISA ÚTSALA!
KÖRFUBOLTI „Þetta kom ekki mjög á
óvart. Við vorum búnir að spila
mjög vel í úrslitakeppninni,“ seg-
ir Sigurður Ingimundarson, þjálf-
ari karlaliðs Keflavíkur í
körfuknattleik. Keflavík tryggði
sér Íslandsmeistaratitilinn í
körfuknattleik á fimmtudaginn
var með því að leggja granna sína
í Grindavík að velli, 3-0, í úr-
slitarimmunni.
„Við vorum ekki að velta okkur
upp úr því að vinna 3-0 eða eitt-
hvað slíkt,“ segir Sigurður. „Við
ákváðum bara að spila eins vel og
við gátum. Við spiluðum einstak-
lega vel í þessari úrslitakeppni.“
Keflvíkingar unnu alla bikara
sem í boði voru, Íslandsmeistara,
bikarmeistara og fyrirtækja, en
urðu að sjá á eftir deildarmeist-
aratitlinum til Grindvíkinga.
„Við vorum með jafnmörg stig
og liðið sem vann deildarmeist-
aratitilinn þannig að ég held að
við getum ekki annað en verið
ánægðir. Við unnum alla aðra titla
og öll þau æfingamót sem við tóku
þátt í,“ segir Sigurður.
Sigurður hefur verið afar sig-
ursæll sem þjálfari og leikmaður,
hefur unnið Íslandsmeistaratitil-
inn tíu sinnum, þar af sjö sem
þjálfari.
Hann vann þrjá Íslandsmeist-
aratitla sem leikmaður með Kefla-
vík, árin 1989, 1992 og 1993. Hann
stýrði kvennaliði Keflavíkur sem
varð fjórum sinnum Íslandsmeist-
ari á árunum 1992-1996. Karlalið
Keflavíkur vann síðan sinn þriðja
Íslandsmeistaratitil undir stjórn
Sigurðar á fimmtudaginn var.
„Það er alltaf jafn gaman að
vinna titla og ég geri ekki upp á
milli þeirra,“ segir Sigurður að-
spurður hver þeirra sé eftir-
minnilegastur. „Eigum við ekki
bara að segja sá síðasti. Það var
mjög gaman að vinna núna og ég
er ánægður með að hafa unnið
núna.“
Sigurður segir veturinn í ár
hafa verið afar skrýtinn en jafn-
framt mjög skemmtilegan. „Það
hefur ýmislegt gengið á en í gegn-
um heilt erum við með mjög góðan
hóp sem hefur staðið sig vel,“ seg-
ir þjálfarinn.
Sigurður telur að Íslandsmótin
í körfu hafi verið afar jöfn síðustu
ár – nokkuð góð.
„Það hefur verið ágætis þróun í
deildinni, kannski engir stórkost-
legir hlutir, en við erum í góðum
málum að ég held. Framtíðin er
björt og alveg rúmlega það,“ segir
Sigurður.
Samningur Sigurðar við Kefla-
víkurliðið er runninn út. Hann
segir framtíðina óráðna. „Við höf-
um ekki rætt framhaldið. Við
ákváðum að klára þessa keppni en
það er ekkert víst að ég verði
áfram.“
En ef til Sigurðar verður leitað
er hann þá til?
„Hugsanlega! Það er ekkert
víst,“ segir Sigurður Ingimundar-
son, þjálfari Íslands-, bikar- og
fyrirtækjameistara Keflavíkur í
körfuknattleik. ■
Alltaf jafn gaman
að vinna titla
Keflavík varð Íslandsmeistari í körfuknattleik karla. Sigurður
Ingimundarson stýrði liðinu til sigurs í þriðja sinn. Segir alltaf jafn
gaman að vinna titla. Framtíðin óráðin.
SIGURÐUR INGIMUNDARSON
Hefur þjálfað karlalið Keflavíkur í sjö ár. Í þrígang hefur liðið unnið Íslandsmeistaratitilinn.
FÓTBOLTI Paul Scholes skoraði
þrennu þegar Manchester United
vann Newcastle 6-2 á St. James’
Park á laugardag. Hann varð þar
með fyrstur leikmanna United til
að skora þrennu á heimavelli
Newcastle síðan Enoch West skor-
aði öll mörkin í 3-1 sigri árið 1912.
Sagan segir að United hafi upp-
götvað Paul Scholes fyrir tilvilj-
um. Útsendarar félagsins voru að
kanna hæfileika markvarðar í leik
unglingaliða í Oldham þegar þeir
komu auga á Scholes.
Scholes lék fyrst með aðalliði
United haustið 1994 en framan af
ferlinum fékk hann helst tæki-
færi þegar Mark Hughes og Eric
Cantona voru meiddir eða í leik-
banni. Eftir að þeir hurfu á braut
hefur Scholes jafnan átt fast sæti
í aðalliðinu og verið mikilvægur
liðsmaður á sigursælasta tímabil-
inu í sögu United.
Scholes kann best við sig á
miðjunni og hættulegastur er
hann þegar hann laumar sér af
miðsvæðinu og inn í eyðurnar í
teignum. Hann nýtir færin sín vel
og afgreiðir þau jafnan með við-
stöðulausum skotum. ■
Enska úrvalsdeildin:
Þriðja þrenna
Scholes
PAUL SCHOLES
Paul Scholes skorar eitt þriggja marka
sinna gegn Newcastle á laugardag.
Scholes hafði áður skorað þrennu í lands-
leik gegn Póllandi árið 1999 og í deildar-
leik gegn West Ham árið 2000.
LEIKIR OG MÖRK
PAUL SCHOLES
Man. United 1994-2003 372 98
England 1997-2003 54 13
Esso-deild kvenna:
ÍBV og
Haukar
í úrslitum
HANDBOLTI ÍBV og Haukar leika til
úrslita í Esso-deild kvenna eftir
sannfærandi sigra í undanúrslit-
um.
Eyjastúlkur unnu Val 27-22 að
Hlíðarenda á laugardag en höfðu
áður unnið með tíu marka mun á
heimavelli. Haukastúlkur héldu
upp á afmæli félagsins með 24-16
sigri á Stjörnunni í Garðabæ. Þær
unnu fyrri leikinn með sjö marka
mun á miðvikudag.
Fyrsti leikur ÍBV og Hauka
verður í Eyjum 26. apríl. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T