Fréttablaðið - 14.04.2003, Blaðsíða 31
MÁNUDAGUR 14. apríl 2003
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". / 01"234# /
0
# 567. 894:
/
) ;
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
1
?
""2
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". / 51"234# /
0
# 567. 894:
/
:- &
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
4 =/ @'
. :67A5:B
: $#'( :"-"01"23# / /
!! "#$ %
!
!&' !!"#
1
? : $#'( :"-"01"23 /
1
?
""2
!
"#
$% &#'(
) * +,-+
"-". 0
# 567. 894:
/
:- &
"#
5. <=
/=!
3
.;%
43 #4
( (> 5!
!!"#$
1
? : $#'( :"-" /
Heróp forstjórans í innanhúspósti
FJÖLMIÐLAR Sigurður G. Guðjóns-
son, forstjóri Norðurljósa, stappar
stálinu í starfsfólk sitt í innanhús-
pósti sem hann sendi á dögunum.
Hvetur hann þar fólk til að halda ró
sinni og láta ekki glepjast af gylli-
boðum samkeppnisaðila og þá sér-
staklega á útvarpssviðinu. Í innan-
húspóstinum spáir forstjórinn því
að útvarpsstöðvar samkeppnisaðila
muni sameinast áður en langt um
líður – eina ferðina enn.
Nefnir forstjórinn dæmi um
brotthvarf tveggja starfsmanna
sem nú rói á önnur mið; Guðrún
Gunnarsdóttir sé hætt í Íslandi í
dag og hafi afþakkað starf á út-
varpsstöðvum Norðurljósa og
Ágúst Héðinsson, fyrrum dag-
skrárstjóri útvarpsstöðva fyrirtæk-
isins, sé genginn til liðs við útvarps-
samsteypuna sem rekur Steríó,
Múzík og Íslensku útvarpsstöðina. Í
innanhúspósti Sigurðar G. Guðjóns-
sonar segir meðal annars:
„Eins og ávallt þegar nýir miðlar
fara af stað eða reynt er að endur-
vekja gamla er leitað að fólki hjá
þeim sem fyrir eru. Ágúst (fyrrum
dagskrárstjóri) sem þekkir síma-
númerin hjá öllum hér innandyra
hefur verið að leita hér en án árang-
urs enn. Við vitum þó aldrei hvað
gerist. Grasið er oft grænna hinum
megin og ekkert við því að segja þó
fólk vilji róa á ný mið. Þeim sem
vilja fara er auðvitað frjálst að
fara. Plís bara enga dramatíska út-
göngu...“ biður forstjórinn í bréfi
sínu og klykkir svo út með framtíð-
arsýn sinni í útvarpsmálunum með
hliðsjón af núverandi stöðu mála:
„Reikna má með að allt þetta út-
varpsbix renni saman á endanum
og sagan endurtaki sig.“ ■
Samkeppni
■ Forstjóri Norðurljósa hvetur starfsfólk
til að halda ró sinni og láta ekki ginnast
af gylliboðum samkeppnisaðila. Grasið
sé ekki alltaf grænna hinum megin. Spáir
samruna frjálsra útvarpsstöðva einn
ganginn enn.
Útlendir glaumgosar gerðustrandhögg í Reykjavík um
helgina og lögðu vitaskuld snörur
sínar fyrir íslenskt kvenfólk með
misjöfnum árangri. Vitleysingarnir
í Jackass-genginu mættu í stefnu-
mótaþáttinn Djúpu laugina á Skjá
einum þar sem þeir ætluðu að næla
sér í keppendur í fegurðarsam-
keppninni Ungfrú Ísland.is. Þeir
voru pöddufullir og forsprakki
hópsins, Steve-O, lognaðist víst út af
í förðunarstólnum þreyttur mjög
eftir gegndarlaust djamm. Það tókst
þó með einhverjum ráðum að vekja
kappann en það hafði ekkert upp á
sig þar sem íslensku dömurnar af-
þökkuðu stefnumót með sauð-
drukknum kjánaprikunum.
Kjánaprikin létu þessi skakkaföllí kvennamálunum ekki á sig fá
og mættu galvaskir til að skemmta
aðdáendum sínum í Háskólabíói.
Mörgum aðdáendanna fannst þeir
þó fá frekar lítið fyrir sinn snúð þar
sem hetjurnar entust ekki nema í
um það bil 40 mínútur á sviðinu. Á
meðan Steve-O og félagar fóru sér
að voða í Háskólabíói tryllti eró-
bikkteknóhljómsveitin Scooter lýð-
inn í Laugardalshöllinni. Þeir gerðu
sér dælt við dömurnar, að hætti
poppara, og varð víst einna mest
ágengt með ólögráða unglingsstúlk-
ur sem tóku þeim svo opnum örm-
um að sómakæru fólki sem varð
vitni að atganginum varð nóg um.
Kjánaprikin héldu aðra skemmtuná laugardag. Sýningin stóð að-
eins lengur en daginn áður eða í tæp-
an klukkutíma. Áhorfendur töldu
það þó meira en nóg og voru orðnir
fullsaddir af uppátækjum þeirra fé-
laga. Þeir byrjuðu á því að drekka
hálfa flösku af tekíla eftir að hafa
hellt salti í nefið á sér og sett lime-
safa í augað. Því næst ældu þeir út
allt sviðið. Þá hófst viðbjóðurinn fyr-
ir alvöru. Steve-O, eitt aðal kjána-
prikið, skar meðal annars í tunguna
á sér með glerbroti þar til hún var
orðin vel blóðug og festi punginn á
sér við nárann með heftibyssu.
GUÐRÚN GUNNARSDÓTTIR
Úr sjónvarpinu – vildi ekki í útvarpið.
JARÐARFARIR
13.30 Alda Pétursdóttir, Holtsgötu 37,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fossvogskirkju.
13.30 Margrét Eggertsdóttir, söngkona,
verður jarðsungin frá Langholts-
kirkju.
15.00 Herdís Guðmundsdóttir frá Sæ-
bóli, Aðalvík, verður jarðsungin frá
Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði.
ANDLÁT
Sigurður Hallgrímsson, vélaverkfræð-
ingur, lést 10. apríl.
Sigurveig Halldórsdóttir lést á hjúkrun-
arheimilinu Eir 10. apríl.
Margrét Lilja Ólafsdóttir lést 10. apríl.
Guðlaug Helga Sveinsdóttir, Suðurhól-
um 26, lést 11. apríl.
Málfríður Jóhanna Matthíasdóttir,
Boðahlein 12, lést 11. apríl.
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, Heiðvangi
7, lést 11. apríl.
Sigrún Guðmundsdóttir, síðast til
heimilis á Óðinsgötu 16, lést 11. apríl.
■ Tímamót
Fréttiraf fólki