Fréttablaðið - 14.04.2003, Page 32

Fréttablaðið - 14.04.2003, Page 32
B R IM B O R G / G C I Á ÍS LA N D I - (G R EY C O M M U N IC AT IO N S IN TE R N AT IO N A L) E R H LU TI A F G C I G R O U P SE M E R H LU TI A F G R EY G LO B A L G R O U P Öruggur staður til að vera á Annarskonar hugmynd Verð frá kr. 1.889.000 / Rekstrarleiga frá kr. 31.872 á mánuði í 3 ár.* Frakkarnir eru hrifnir af sínu fólki enda eru þeir þekktir fyrir meðfædda löngun til að skapa. Stoltir Evrópubúar segja, að Citroën Xsara Picasso sé tákn evrópsks hugvits sem einkennist af snilldarlegri sérvisku og ótrúlegri smámunasemi og er fáum gefin. Citroën Xsara Picasso er skapaður af ástríðufullri þörf fyrir formfegurð, nytsemi og þægindi sem er fyrir suma Evrópubúa, önnur orð yfir hæfilegan skammt af leti. Í raun grundvallast þessi löngun eftir fullkomnun, á þrá eftir betra og öruggara lífi. Þráðu. Eigðu annarskonar hugmynd eins og Citroën Xsara Picasso. Brimborg Reykjavík sími 515 7000 • Brimborg Akureyri sími 462 2700 • Bílavík Reykjanesbæ sími 421 7800 • brimborg.is *Smur- og þjónustuskoðanir eru inni- faldar í leigugreiðslu. Leigugreiðslan er háð breytingum á gengi erlendra mynta og vöxtum þeirra. Kynntu þér málið nánar hjá ráðgjöfum Brimborgar. SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500 Bakþankar ÞRÁINS BERTELSSONAR Við, fórnarlömb hagfræðinnar,höfum haft af því áhyggjur um nokkurt skeið að Ítalirnir sem sjá um stærstu framkvæmdir Íslands- sögunnar og örvæntingarfull kosn- ingaloforð um vegaframkvæmdir og vanhugsaðar skattalækkanir kunni að setja íslenska hagkerfið úr skorðum. Við höfum haft af því áhyggjur að hér fari allt úr böndun- um, vextir rjúki upp úr þakinu og gengið hrynji ofan í kjallara. ALLIR HEILVITA MENN sjá hversu nauðsynlegt það er að við- halda mátulegu hitastigi á efnahags- lífinu svo að rekstarleigurnar fái sínar mánaðarlegu afborganir af forstjórajeppunum með góðum skil- um og fjöldi fátæklinga fari ekki upp fyrir þau 7% sem talin eru passleg í okkar elskulega þjóðfélagi. Allt verður að vera í fullkomnu jafnvægi svo að velmegun haldist á landinu bláa og peningaskríllinn geti haldið áfram að kaupa fölsuð málverk af dönskum veggfóðrurum fyrir milligöngu prakkara sem með grátbroslegum hætti hafa brugðið á loft spéspegli svo að menningarma- fían fékk um leið tækifæri til að horfast í augu við sjálfa sig á brók- inni. SVARTSÝNISVÆLIÐ í fórnar- lömbum hagfræðinnar hefur farið í taugarnar á stjórnmálamönnum sem þvert ofan í það sem reynslan sýnir telja að þeir stjórni hagkerf- inu, og nú hafa þeir fundið ráð til að þagga niður jarmið í lömbunum og ákveðið að tryggja framtíðarstöðug- leika í efnahags- og atvinnulífi þjóð- arinnar. Það hefur ekki verið vanda- laust að finna það ráð sem dugir til að tryggja hér enn um sinn hinn eft- irsóknarverða stöðugleika sem felst í því að hinir fátæku verða stöðugt fátækari og hinir ríku stöðugt ríkari SÁ STÖÐUGI STÖÐUGLEIKI sem hér hefur stöðugt ríkt á undan- förnum árum byggir á þeirri grund- vallarforsendu hagfræðinnar að oft veltir lítil þúfa þungu hlassi. Sam- kvæmt þessari kenningu eru stórar þúfur eins og 20 milljarða ríkis- ábyrgð eða 23 milljarða skattalækk- un gersamlega hættulausar. Það eru litlu þúfurnar sem ber að varast og því minni sem þúfurnar eru, þeim mun varasamari eru þær. Og vara- samast af öllu væri að rústa efna- hag þjóðarinnar með því að ráðast í byggingu tónlistarhúss! ■ Lítil þúfa

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.