Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 1
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík — sími 515 7500 Miðvikudagurinn 30. apríl 2003 Tónlist 22 Leikhús 22 Myndlist 22 Bíó 24 Íþróttir 18 Sjónvarp 26 KVÖLDIÐ Í KVÖLD FRÉTTIR Klögubréf á Netinu ÍÞRÓTTIR Eiður undir eftirliti MIÐVIKUDAGUR 98. tölublað – 3. árgangur bls. 18 AFMÆLI Í kröfugöngu á afmælisdaginn bls. 12 FÓTBOLTI Karlalandsliðið í fótbolta leikur vináttuleik gegn Finnum í nágrenni Helsinki í dag. Leikurinn fer fram á Pohjola-leikvanginum í Vantaa og hefst kl. 14:00 að íslensk- um tíma. Þetta er tíunda viðureign þjóðanna. Þær mættust síðast í Norðurlandamótinu árið 2000, en þá höfðu Íslendingar betur. Landsleikur við Finna í dag FUNDUR Heimssýn stendur fyrir opnum fundi á Grand Hóteli klukk- an 12.15. Yfirskrift fundarins er: Evran eða krónan? Er það álitlegur kostur að taka upp evru á Íslandi? Aðalræðumaður verður Ragnar Árnason Ph.D., prófessor við við- skipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Óli Björn Kárason, rit- stjóri DV, flytur inngangsorð. Evran eða krónan? LOKAFRESTUR Í dag eru síðustu for- vöð að skrá sig hjá Vinnumiðlun skólafólks fyrir sumarið 2003. Þeir sem eru fæddir 1986 eða fyrr, hafa sótt skóla á árinu og eru með lög- heimili í Reykjavík geta sótt um hjá Vinnumiðlun skólafólks. Í boði eru sumarstörf hjá stofnunum Reykjavíkurborgar og eru störfin mjög fjölbreytt. Vinnumiðlun skólafólks bls. 32 REYKJAVÍK Breytileg átt 3-8 metrar á sekúndu, skýjað með köflum og yfirleitt þurrt. Hiti 2 til 8 stig. VEÐRIÐ Í DAG + - - + VINDUR ÚRKOMA HITI Ísafjörður 5-10 Skýjað 4 Akureyri 3-8 Skýjað 1 Egilsstaðir 3-8 Skýjað 1 Vestmannaeyjar 3-8 Skýjað 7 ➜ ➜ ➜ ➜ STJÓRNMÁL Davíð Oddsson forsætis- ráðherra sakaði stjórnarandstöðu- flokkana um að hafa rofið sátt sem auðlindanefndin hefði náð um ís- lenska fiskveiðistjórnunarkerfið. „Fiskveiðistjórnunarkerfið sem við búum nú við er auðvitað ekki gallalaust,“ sagði Davíð á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í gær. „En það er óumdeilanlegt að það kerfi hefur skilað sjávarútveginum og þá um leið þjóðinni allri miklum ávinningi.“ Davíð sagði að þeirri sáttagerð sem fólst í niðurstöðu auðlinda- nefndarinnar, þ.e. að leggja ætti hóflegt gjald á sjávarútveginn um- fram það sem gert væri við aðrar atvinnugreinar, hefði verið ætlað að skapa frið um málið. „Það hljóta því að teljast mikil vonbrigði að stjórnarandstöðu- flokkarnir, Samfylking, Vinstri grænir og Frjálslyndi flokkurinn, skuli vísvitandi hafa rofið þá sátt í aðdraganda kosninga.“ Forsætisráðherra sagði flokk- ana hafa náð saman um eina tillögu í sjávarútvegsmálum, svokallaða fyrningarleið. Næði slík stefna fram að ganga yrði það rothögg á sjávarútveginn og um leið alvarleg atlaga gegn hinum dreifðu byggð- um landsins. Tillögurnar væru hreint tilræði við íslenskt efna- hagslíf, stöðugleikann og kjör fólksins í landinu. Davíð sagði íslenskt efnahags- lífs standa í miklum blóma og við- skiptahalli hefði breyst í viðskipta- jöfnuð á undraskömmum tíma. Þetta hefði gerst miklu fyrr en nokkur fræðimaður hefði látið sig dreyma um. Reyndar hefðu gengis- sveiflur orðið til þess að ýmsir vildu skoða það að taka upp evruna, en því væri hann hins vegar alfarið á móti. „Þegar grannt er skoðað þá kemur á daginn að sveiflur á milli evru og dollara eru síst minni og miklu óviðráðanlegri en sveiflur á milli íslenskrar krónu og evru. Þessar sveiflur hverfa auðvitað ekki við upptöku evru.“ Davíð gerði Evrópusambandið einnig að umtalsefni og gagnrýndi hann íslenska evrópusinna fyrir málflutning sinn. Sérstaklega gagnrýndi hann þá fyrir að halda því fram að íslenskur sjávarútveg- ur myndi ekki skaðast við inn- göngu í sambandið. Engin rök væru fyrir þeim málflutningi og máli sínu til stuðnings vísaði Davíð á nýlega íslenska rannsókn um málið. Í henni kæmi fram að fisk- veiðistefnan yrði ekki íslensk held- ur evrópsk, gengi Ísland í Evrópu- sambandið. trausti@frettabladid.is Meira á bls. 4 Stjórnarandstaðan hefur rofið sáttina Forsætisráðherra gagnrýndi stjórnarandstöðuna harðlega á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins í gær. Hann sagði fyrningarleiðina í sjávarútvegi tilræði við íslenskt efnahagslíf. FERÐALÖG Fjórtán manna hópur er á leið til landsins í sérstaka „James Bond-ferð“. Mennirnir, sem allir eru vellauðugir, verða á landinu í þrjá daga og kostar ferðin tæplega millj- ón krónur á mann. Mennirnir tóku það sérstaklega fram þegar þeir pöntuðu ferðina að þeir legðu mikið upp úr því að fá að vera í friði. Vegna þessa vildi for- svarsmaður ferðaskrifstofunnar sem skipuleggur ferðina ekki að nafn ferðaskrifstofunnar kæmi fram í fjölmiðlaumfjöllun um málið. Hann segir mjög óalgengt að menn biðji sérstaklega um að fá að vera í friði, en aðspurður sagði hann að þetta væru ekki heimsfrægir menn. „Þetta eru bara menn sem eiga fullt af peningum og vilja gera fullt af skemmtilegum hlutum,“ segir forsvarsmaður ferðaskrifstofunnar. „Þar með talið gista þeir í íshelli og það eru alls konar stælar í kringum þá.“ Mennirnir munu mest verða á ferðalagi um landið, en þó er líklegt að þeir eyði einni nótt í höfuðborg- inni. Einkaþjónar munu fylgja hópn- um allan tímann. ■ Vellauðugir útlendingar á leið í þriggja daga James Bond-ferð til Íslands: Borga milljón á mann BOGI ÁGÚSTSSON Haft er eftir Boga að athugasemdunum, sem hafi verið réttmætar, hafi verið komið á framfæri. Formaður Útvarpsráðs: Skammar fréttastofu STJÓRNMÁL Útvarpsráð fjallaði á fundi sínum í gær um þær fréttir sem fluttar voru af fundi Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á Ísafirði og greindu frá því að valinkunnir sjálfstæðismenn vestra hefðu ráðlagt forsætisráð- herra að tala ekki um kvótakerfið. Gunnlaugur Sævar Gunnlaugs- son, formaður Útvarpsráðs, sem þar situr fyrir hönd Sjálfstæðis- flokksins, lýsti undrun sinni á við- brögðum Kára Jónassonar í Fréttablaðinu og sagði frá athuga- semdum sem hann sendi Boga Ágústssyni, forstöðumanni frétta- sviðs, vegna fréttaflutningsins af fundi Davíðs á Vestfjörðum. Bókað var á fundi Útvarpsráðs eftir Boga Ágústssyni að hann hafi rætt mál- ið við Kára Jónasson, fréttastjóra fréttastofu Útvarpsins. Haft er eftir Boga að athugasemdunum, sem hafi verið réttmætar, hafi ver- ið komið á framfæri. Annar útvarpsráðsmaður, Anna Kristín Guðmundsdóttir, lét bóka að hún „treysti fréttamati og framsetningu fréttamanns RÚV á Vestfjörðum fullkomlega“. Kjartan Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks- ins, kvartaði til fréttastofunnar og taldi fréttaflutninginn ekki vera boðlegan. Bæði Kári Jónasson, fréttastjóri Útvarpsins, og Finn- bogi Hermannsson, forstöðumað- ur Svæðisútvarps Vestfjarða, töldu að fréttin héldi og væri eðli- lega unnin. ■ NOKKRAR STAÐREYNDIR UM MEÐALLESTUR FÓLKS Á ALDRINUM 12 TIL 80 ÁRA Á HÖFUÐBORGARSVÆÐINU ER 73% SAMKVÆMT FJÖLMIÐLAKÖNNUN GALLUP Í FEBRÚAR 2003. Fr é tt a b la ð ið M o rg u n b la ð ið Meðallestur 25 til 49 ára samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup frá febrúar 2003 14% D V 90.000 eintök 73% fólks lesa blaðið Hvaða blöð lesa 25 til 49 ára íbúar á höfuðborgar- svæðinu á miðviku- dögum? 61% 77% BOND, JAMES BOND Ekki fylgir sögunni hvort hinir vellauðugu menn drekki vodka martini hristan eða hrærðan. Siv Friðleifsdóttir skipar 1. sæti á lista Framsóknarflokksins í Suð-vestur kjördæmi Kjósum launajafnrétti DAVÍÐ ODDSSON FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð sagði að næði sjávarútvegsstefna stjórnarandstöðuflokkanna fram að ganga yrði það rothögg á sjávarútveginn og um leið alvarleg atlaga gegn hinum dreifðu byggðum landsins. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.