Fréttablaðið - 30.04.2003, Side 4
4 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
Hefurðu farið á kaffihús í apríl?
Spurning dagsins í dag:
Hverjir verða Íslandsmeistarar í hand-
bolta karla ?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
57,2%
42,8%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun
frétt.is
STÉTTARFÉLÖG Æskilegt er að verka-
lýðshreyfingin og Samtök atvinnu-
lífsins nái sameiginlegri sýn á
stöðu efnahagsmála og breytingar
á launakostnaði næstu misseri,
sagði Ingimundur Sigurpálsson,
forstjóri Eimskipafélags Íslands og
nýkjörinn formaður Samtaka at-
vinnulífsins, á aðalfundi félagsins í
gær.
„Í því skyni þarf forysta verka-
lýðshreyfingarinnar og Samtaka at-
vinnulífsins að ræða fyrr en seinna
þær meginlínur, sem koma til með
að móta kjarasamninga á næsta
samningstímabili, þar með talið
samningstíma og kostnaðarbreyt-
ingar,“ sagði Ingimundur, sem tek-
ur við formennsku í SA af Finni
Geirssyni. „Það verður að vera for-
gangsverkefni forystumanna aðila
vinnumarkaðarins að afstýra því að
fyrirsjáanleg þensla vegna mikilla
framkvæmda á næstu árum verði
til þess að valda ólgu á vinnumark-
aði og vinnudeilum.“
Ingimundur sagði kaupmáttar-
aukningu undanfarinna ára að öll-
um líkindum hafa gengið lengra en
æskilegt mætti telja, því hlutur
launa og launatengdra gjalda í
verðmætasköpuninni væri nú orð-
inn 70%, en væri um 60% í saman-
burðarlöndum. ■
INGIMUNDUR SIGURPÁLSSON
Nýkjörinn formaður Samtaka atvinnulífsins
segir kaupmáttaraukningu undanfarinna
ára að öllum líkindum hafa gengið of
langt.
Nýr formaður Samtaka atvinnulífsins ræddi
um komandi kjarasamninga:
Forgangsverkefni
að draga úr þenslu
Efnahagur Þýskalands:
Margslung-
inn vandi
EFNAHAGSMÁL Hverfandi hagvöxt-
ur, mikið atvinnuleysi og lítil at-
vinnuþátttaka eru sjúkdómsein-
kenni sem Ottheinrich von
Weitershausen, yfirhagfræðingur
BDA, þýsku samtaka atvinnulífs-
ins, rekur fyrst og fremst til sí-
vaxandi útgjalda til félagsmála og
lítils sveigjanleika á þýskum
vinnumarkaði.
Weitershausen ræddi á aðal-
fundi Samtaka atvinnulífsins um
helstu orsakir þýska efnahags-
vandans. Hann sagði ríka upp-
sagnarvernd helstu orsökina og
auk hennar væri óbeinn launa-
kostnaður mjög hár, allt að 66%. ■
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir:
Menntun er
grunnurinn
STJÓRNMÁL Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir, forsætisráðherraefni Sam-
fylkingarinnar, sagði á kosninga-
fundi í Háskóla Reykjavíkur í gær
að komandi kosningar snúist um
völd og það hvernig menn um-
gangist vald.
Að sögn Ingibjargar Sólrúnar
eru aðaláhersluatriði Samfylking-
arinnar í næstu kosningum
menntun, atvinna og velferðar-
þjónusta. Að þessum málaflokk-
um yrði unnið með jafnrétti að
leiðarljósi. Hún sagði menntunina
grundvöll áframhaldandi velsæld-
ar. Væri henni ekki sinnt
drægjust Íslendingar hratt aftur
úr öðrum þjóðum í þeirri alþjóða-
væðingu sem nú stæði yfir. ■
Ögmundur Jónasson:
Stjórnin
fengi orðu
frá Stalín
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson, for-
maður þingflokks Vinstri grænna,
sagði á kosningafundi í Háskóla
Reykjavíkur að ríkisstjórnarflokk-
arnir væru berir að
tvískinnungi varð-
andi einkavæðingu
annars vegar og
ríkisafskipti hins
vegar. Á sama tíma
og ýmis grunnþjón-
usta væri einka-
vædd stæðu ráð-
herrar ríkisstjórn-
arinnar fyrir
mestu ríkisafskipt-
um Íslandssögunn-
ar með stórframkvæmdunum fyrir
austan. „Þeir myndu allir fá medal-
íu frá Jósef Stalín væri hann uppi,“
sagði þingflokksformaðurinn. ■
STJÓRNMÁL Ögmundur Jónasson,
formaður þingflokks Vinstri
grænna, telur Halldór Ásgríms-
son, formann Framsóknarflokks-
ins og utanríkisráðherra, orðinn
veruleikafirrtan af því að dveljast
stöðugt á fimm stjörnu hótelum
erlendis. Þetta kom fram á vel
sóttum kosningafundi Visku – Fé-
lags stúdenta í Háskóla Reykja-
víkur.
Auk Ögmundar og Halldórs
voru mættir frambjóðendurnir
Geir Haarde fjármálaráðherra
fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn, Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir,
forsætisráðherra-
efni Samfylkingar-
innar, Margrét
S v e r r i s d ó t t i r ,
framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokks-
ins, og Jón Magn-
ússon frá Nýju afli.
Jón Magnússon gagnrýndi að á
sama tíma og milljörðum króna
væri varið til byggingar sendi-
ráða væri ekki hægt að sinna
heilabiluðu fólki.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra sagði mikilvægi alþjóða-
samskipta vera afar mikið. Í Asíu
væri mikill vöxtur í viðskiptum. Í
raun hafi það verið stjórnarand-
staðan og Ögmundur Jónasson
sem hafi haft þá framsýni að
leggja til að sendiráð yrði opnað í
Japan.
„Ekki fyrir milljarð,“ sagði Ög-
mundur.
„Þið vissuð alveg að það væri
dýrt í Japan,“ svaraði Halldór.
„Þú ert veruleikafirrtur eftir
allt of langa dvöl á fimm stjörnu
hótelum í útlöndum,“ var næsta at-
hugasemd Ögmundar.
Halldór sagði þá að hag-
kvæmara hefði reynst að kaupa
fremur en leigja hús fyrir sendiráð
í Japan. Hver einasti maður í utan-
ríkismálanefnd Alþingis hefði
samþykkti þá leið:
„Svo leyfa stjórnarandstæðing-
ar sér það að segja allt annað í
þessu máli fyrir kosningar og
blanda þessu máli inn í málefni
fatlaðra,“ sagði Halldór.
Ögmundur sagði Halldór fara
með rangt mál. Hann frábiði sér að
vera gerður ábyrgur fyrir bruðli í
utanríkisþjónustunni.
„Þetta er ekki sæmandi og ég
mótmæli að það sé gert hér á þess-
um fundi. Það er ekki bruðlað í ut-
anríkisþjónustunni. Þetta er nauð-
synleg þjónusta hverri sjálfstæðri
þjóð. Það getur engin þjóð sótt
fram í alþjóðavæðingunni nema
eiga öfluga utanríkisþjónustu. Ég
fullyrði það að við getum ekki tek-
ið öflugan þátt í alþjóðavæðing-
unni ef við veikjum okkar utanrík-
isþjónustu,“ bætti Halldór við.
gar@frettabladid.is
KOSNINGAFUNDUR Í HÁSKÓLA REYKJAVÍKUR
Nokkuð hitnaði í kolunum á kosningafundi Visku, félags stúdenta í Háskóla Reykjavíkur,
sem haldinn var í skólanum í gær.
Halldór sagður
veruleikafirrtur
Ögmundur Jónasson, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra veruleikafirrtan eftir langdvalir
á fimm stjörnu hótelum í útlöndum. Halldór vísar gagnrýninni á bug.
■
Í raun hafi það
verið stjórnar-
andstaðan og
Ögmundur Jón-
asson sem hafi
haft þá fram-
sýni að leggja
til að sendiráð
yrði opnað í
Japan.
STJÓRNMÁL „Mér fannst ræðan í
heild óttalega ómerkileg,“ segir
Jóhanna Sigurðardóttir, þing-
maður Samfylkingarinnar, sem
hlustaði á ræðu Davíðs Oddson-
ar forsætisráðherra á aðalfundi
Samtaka atvinnulífsins í gær.
Jóhanna segir ómaklegt af
forsætisráðherranum að ráðast
á sjávarútvegsstefnu stjórnar-
andstöðuflokkanna í miðri kosn-
ingabaráttunni á vettvangi Sam-
taka atvinnulífsins.
„Það virðist vera venja Dav-
íðs að ráðast gegn öðrum þegar
hann sjálfur er í vernduðu um-
hverfi. Það kom líka berlega í
ljós að Davíð þekkir ekki mun-
inn á stefnum flokkanna í kvóta-
málum, því hann setti alla flokk-
ana undir einn hatt. Verulegur
munur er hins vegar á stefnu
Samfylkingarinnar og Frjáls-
lyndra.“
Jóhanna segir með ólíkindum
að forsætisráðherra skuli segja
það blákalt að ef stefna Samfylk-
ingarinnar kæmist til fram-
kvæmda myndi það ganga af
byggðunum dauðum. Ekki síst
þar sem þeim væri nú þegar að
blæða út í núverandi kerfi. Um
gagnrýni Davíðs á Evrópusam-
bandið segir Jóhanna að and-
staða hans við sambandið sé
ekkert ný af nálinni. Í allri þeir-
ri umræðu skeyti hann engu um
þjóðarhag. ■
JÓHANNA SIGURÐARDÓTTIR
„Það virðist vera venja Davíðs að
ráðast gegn öðrum þegar hann
sjálfur er í vernduðu umhverfi,“
segir þingmaður Samfylkingarinnar.
Jóhanna um ræðu Davíðs:
Óttalega ómerkileg
VIÐ RÍKISSPÍTALANN Í TORONTO
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur tekið
Toronto í Kanada út af listanum yfir þau
svæði sem ferðamönnum er ráðlagt að
forðast.
Neyðarfundur vegna
bráðalungnabólgu:
Óvenjuleg
samstaða
Asíulanda
BANGKOK, AP Leiðtogar tíu landa í
Suðaustur-Asíu komu saman á
neyðarfundi í Bangkok vegna
bráðalungnabólgunnar. Markmiðið
var að leita leiða til þess að hefta
útbreiðslu sjúkdómsins og endur-
vinna traust alþjóðasamfélagsins.
Á fundinum viðurkenndu kín-
verskir ráðamenn að ekki hefði
verið brugðist rétt við þegar sjúk-
dómurinn kom fyrst upp í landinu.
Engu að síður sögðust þeir sann-
færðir um að með tímanum tækist
Kína að snúa stöðunni við. Kínverj-
ar lögðu til að stofnaður yrði sam-
eiginlegur sjóður til þess að rann-
saka HABL.
Alls hafa yfir 5.300 manns
veikst af bráðalungnabólgu í heim-
inum öllum og eru að minnsta kosti
355 þeirra látnir. ■
ÖGMUNDUR
Segir Stalín
mundu hafa orð-
ið hrifinn af Kára-
hnúkavirkjun.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
Hús og garðar 2003
Hafið samband við Petrínu eða Ester á auglýsingadeild Fréttablaðsins
í síma 515 7517 eða 515 7500 fyrir 5. maí.
Fylgir Fréttablaðinu 7. maí.
Allt um það sem þarf að huga að í upphafi sumars.
Húsið, garðurinn, trjábeðin, hellulögnin, málningin,
pallurinn, sumarhúsið o.fl.