Fréttablaðið - 30.04.2003, Page 12
LANDBÚNAÐUR Ef áfram heldur sem
horfir verður stór hluti svína-
bænda gjaldþrota, að sögn Ara
Teitssonar, formanns Bændasam-
taka Íslands.
„Undanfarið hálft ár hefur
svínakjöt og kjúklingakjöt verið
framleitt langt undir kostnaðar-
verði,“ segir Ari. „Þetta hefur
staðið yfir án þess að maður sjái
nokkur merki þess að markaður-
inn hafi lagað sig að framleiðslu-
kostnaði. Menn halda áfram að
framleiða langt undir kostnaðar-
verði. Fyrir bændur er þetta bara
ávísun á launaleysi og fátækt.“
Ari segir að bændur standi ráð-
þrota gagnvart vandanum. Sam-
keppnislög leggi beinlínis hömlur
á sameiginleg inngrip, þó sam-
staða sé ekki um neitt slíkt hjá
bændum.
Ari segir að í mars hafi bænd-
ur fengið um 120 til 130 krónur
fyrir kílóið en fyrir einu og hálfu
ári hafi þeir fengið 230 til 240
krónur. Á landinu eru rúmlega 20
svínabændur og segir að Ari að
enginn þeirra standi vel, þeir
standi bara misilla. Hann segir að-
eins tímaspursmál hvenær ein-
hverjir þeirra fari á hausinn.
Flestir þeirra eigi nú allt sitt und-
ir lánadrottnum.
„Ég hugsa að meirihluti þeirra
sé kominn í þannig vanskil að þeir
eigi líf sitt undir sinni lánastofn-
un.“ ■
12 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
TEKIÐ Á
Þegar lögreglan minntist 200 ára afmælis
síns var meðal keppt í bíladrætti. Lög-
reglukonan á myndinni gefur ekkert eftir.
Formaður Bændasamtaka Íslands segir ástandið á kjötmarkaði enn mjög slæmt:
Stór hluti svínabænda
stefnir í gjaldþrot
Kolmunni:
Hoffellið
með 1.300
tonn
AFLABRÖGÐ Hoffell SU kom til
löndunar hjá Loðnuvinnslunni úr
sínum fyrsta kolmunnatúr á árinu
aðfaranótt þriðjudags. Aflinn var
um 1.300 tonn sem fengust suður
af Færeyjum. Kolmunnakvóti
Hoffellsins er 15.400 tonn á þessu
fiskveiðiári. Loðnuvinnslan hefur
nú tekið á móti 10.600 tonnum af
kolmunna á árinu og á fimmtu-
daginn er skip væntanlegt til Fá-
skrúðasfjarðar til að lesta 600
tonnum af mjöli. ■
Klögubréf LÍÚ látin á Netið
Varaformaður Frjálslynda flokksins og framkvæmdastjóri LÍÚ deildu hart í Silfri Egils um
„brottrekstur“ þess fyrrnefnda frá Sjónvarpinu. Bréf LÍÚ vegna fréttamannsins sett á Netið.
SJÁVARÚTVEGUR „Framkvæmda-
stjóri LÍÚ fullyrti í þættinum að
þeir hefðu haft fullan sigur og ýj-
aði að því að ég hefði verið rekinn
vegna bréfaskriftanna. Þetta er
rangt,“ segir Magnús Þór Haf-
steinsson, fyrrverandi fréttamað-
ur Sjónvarpsins og varaformaður
Frjálslynda flokksins, sem nú hef-
ur sett klögubréf stjórnenda
Landssambands íslenskra útvegs-
manna á Netið. Í þættinum Silfri
Egils á Skjá Ein-
um deildu Frið-
rik Jón Arn-
grímsson og
Magnús Þór
harkalega um
fiskveiðistefnu
F r j á l s l y n d a
flokksins. Deil-
urnar spunnust
út í það að Friðrik skoraði á Magn-
ús Þór að segja frá því af hverju
hann hefði verið rekinn.
„Þeir hótuðu öllu illu til að láta
mig hætta. En stjórnendur Ríkis-
útvarpsins stóðust þrýstinginn.
Þessi bréf sýna hreina og klára
skoðanakúgun,“ segir Magnús
Þór.
Fyrsta bréfið er stílað á Boga
Ágústsson, fréttastjóra Sjón-
varpsins, dagsett 29. júní árið
2000. Þar er heiðarleiki frétta-
mannsins dreginn í efa. Eftir rök-
stuðning í löngu máli þar sem efn-
istökum Magnúsar Þórs varðandi
brottkast á fiski er fundið margt
til foráttu lýsir formaður LÍÚ því
að samtökin vilji ekki eiga orða-
stað við Magnús Þór framvegis.
„Þeir kölluðu mig fréttamann
innan gæsalappa, sem er mál-
flutningur sem jafnast á við að
menntaskólastrákar séu í skít-
kasti,“ segir Magnús.
Bogi Ágústsson fréttastjóri
svaraði bréfinu 4. júlí þar sem
hann vísaði á bug „aðdróttunum“
um að Magnús nýtti sér aðstöðu
sína sem fréttamaður til að koma
höggi á kvótakerfið.
Ekki dró til frekari tíðinda í
málinu fyrr en 2. ágúst 2001 þegar
bæði formaður og framkvæmda-
stjóri LÍÚ rituðu sameiginlega
undir ítarlegt klögubréf sem stílað
var á útvarpsstjóra. Þar er þess
krafist að „gripið verði til viðeig-
andi ráðstafana“ varðandi frétta-
manninn. Vísað er til viðtals við
Magnús Þór í Sjómannablaðinu
Víkingi þar sem fram komi andúð
fréttamannsins á kvótakerfinu.
Þessu bréfi var svarað og enn lýsti
Bogi fréttastjóri stuðningi við sinn
mann. Enn rituðu forystumenn
LÍÚ bréf til útvarpsstjóra þann 20.
september 2001 þar sem krafan
um að gripið verði til viðeigandi
ráðstafana er ítrekuð.
„Ég hætti að mestu að fjalla
um sjávarútvegsmál í Sjónvarp-
inu eftir viðtalið í Sjómannablað-
inu Víkingi. Því var borið við að
fjárskortur hafði ráðið þeirri
ákvörðun. En ég var áfram með
fréttir hjá Fréttastofu Útvarps-
ins og sá meðal annars um Auð-
lindina á Rás 2. Ég var því ekki
rekinn vegna aðfarar LÍÚ,“ segir
Magnús Þór.
rt@frettabladid.is
Hrísey:
Sjálfbært samfélag
UMHVERFISMÁL Stefnt er að því að
gera Hrísey í Eyjafirði að sjálf-
bæru samfélagi.
Siv Friðleifsdóttir umhverfis-
ráðherra og Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðarráðherra skrifuðu
undir samning þessa efnis á föstu-
daginn.
Stuðningur stjórnvalda við
verkefnið í Hrísey mun m.a. renna
til þess að ljúka við gerð skýrslu
um orkuvinnslu í eynni. Einnig til
þess að kaupa jarðgerðarílát til
allra heimila á eynni á þessu ári,
sem notuð verða til þess að jarð-
gera lífrænan úrgang og draga
þar með verulega úr því sorp-
magni sem flutt er frá Hrísey. ■
MAGNÚS ÞÓR HAFSTEINSSON
Segir forsvarsmenn Landssambands íslenskra útvegsmanna hafa viljað að gripið yrði til
viðeigandi ráðstafana á Fréttastofu Sjónvarpsins.
„Þeir köll-
uðu mig
fréttamann
innan gæsa-
lappa.
SIV FRIÐLEIFSDÓTTIR
Umhverfisráðherra og Valgerður Sverrisdóttir iðnaðarráðherra hafa undirritað samning um
innleiðingu Staðardagskrár 21 í fámennum sveitarfélögum.
ARI TEITSSON
Formaður Bændasamtaka Íslands
segir að bændur standi ráðþrota
gagnvart vandanum.