Fréttablaðið - 30.04.2003, Blaðsíða 14
Þótt 10 dagar eigi að vera lang-ir í pólitík samkvæmt kenn-
ingunni er líklega ekki að vænta
mikilla breytinga í málflutningi
stjórnmálaflokkanna fram að
kosningum. Flest það er komið
fram sem mun á annað borð
koma fram. Allir
hafa þegar lofað
því sem þeir ætla
sér að lofa. Og
þeir sem hafa
skammast munu
nú draga úr
s k ö m m u n u m .
M e g i n v e r k e f n i
flokkanna nú er að
koma út þeim boð-
um að þeim sé treystandi. Að at-
kvæði greitt þeim muni ekki
kippa fótunum undan efnahag
þjóðarinnar, velferð hennar,
fiskveiðum við Íslandsstrendur,
lýðræði í samfélaginu. Þvert á
móti. Atkvæði greitt flokknum
er ávísun á að þetta samfélag
okkar þroskist á heilnæman og
jákvæðan hátt næstu fjögur
árin.
Þetta samspil loforða um
góða tíð og óttans við hrakfarir
og hallæri er svolítið kostulegt.
Ef við gerum ráð fyrir að flokk-
arnir séu þjónustufyrirtæki sem
keppi á kjósendamarkaði eru
auglýsingar þeirra og yfirlýs-
ingar nokkuð groddalegar. Aug-
lýsingar Sjálfstæðisflokksins
gætu reyndar allt eins verið aug-
lýsingar Eimskips á sama hátt
og auglýsingar Framsóknar
gætu verið frá Samskipum. Það
þyrfti bara að skipta út vöru-
merkjum og andlitum stjórnend-
anna. Allar þessar auglýsingar
segja lítið annað en að það sé ör-
uggt að skipta við þessi fyrir-
tæki. Forstjórar Eimskips og
Samskipa koma hins vegar ekki
fram í fréttum og spá öllu illu
fyrir þeim sem kaupa flutninga
af samkeppnisfyrirtækinu. Þeir
geta kært hvorn annan til Sam-
keppnisstofnunar en þeir láta
ekki að því liggja að andstæðing-
urinn muni klúðra flutningnum –
ekki hitta á rétta höfn, týna gám-
um eða sökkva skipinu.
Það er erfitt að finna þessari
hörku stað í kosningastefnu-
skrám flokkanna. Þær eru furð-
anlega keimlíkar. Kjósendur
standa fremur frammi fyrir
Pepsi og Coke-þraut en vali á
milli gosdrykks og arseniks. Það
má merkja örlítið meiri áherslu
á atvinnulíf hjá Framsókn en
Samfylkingunni og Vinstri
grænir leggja aðeins meiri
áherslu á velferðarkerfið en
Sjálfstæðisflokkurinn og stjórn-
arandstöðuflokkarnir vilja
ganga örlítið lengra í að sníða
galla af fiskveiðistjórnunarkerf-
inu en stjórnarflokkarnir. Flest
er þetta bitamunur en ekki fjár.
Hvernig svo sem þessar kosn-
ingar fara mun ekki verða afger-
andi breyting á íslensku samfé-
lagi á næstu árum. Til að trúa
öðru þurfa kjósendur að lifa sig
inn í áróður flokkanna. Að þeir
geti ýmist forðað þjóðinni frá
eða kalla yfir hana óreiðu, óáran
– ragnarök.
Kannski yrðu stjórnmálin
óbærilega leiðinleg ef þessi upp-
spennta óttatilfinning og ákafi
sigurvilji fylgdi ekki. Það er alla
vega skemmtilegra að horfa á
fótbolta ef maður heldur með
öðru liðinu. En þótt hörðustu
bullurnar á áhorfendapöllunum
falli saman við tap og verði herr-
ar heimsins við hvern sigur þá
eru leikmenn og þjálfarar lið-
anna ekki svona heitir. Í stjórn-
málum er hins vegar verstu bull-
unum treyst fyrir forystusætun-
um. Þeir halda með KR en hata
þó einkum Val.
Við svokallaðar lofgjörðir í
frelsunarsöfnuðum má oft heyra
svipaðan tón. Þar er messað um
þær helvítispíslir sem vantrúað-
ir munu þola á efsta degi en
minna um kosti þess að lifa með
Kristi. Boðskapur hinna frels-
uðu er náttúrlega mikilvægari
en fótboltabullanna. Hann varð-
ar ekki aðeins lífið heldur eilífa
lífið; hvernig við munum hafa
það um alla eilífð – út í hið óend-
anlega. En það hversu lítill mun-
ur er á fótboltabullunni og frels-
unarpredikaranum segir okkur
að málefnið skipti ekki mestu
heldur hvernig við viljum taka á
því. Málefni verða ekki mikil-
vægari þótt við stöppum niður
fætinum.
Þetta stand á stjórnmála-
flokkunum er hvimleitt. Ekki
aðeins vegna þess að umræðan
fyrir kosningar er mestmegnis
bull og þvæla heldur veldur
þessi harða liðsskipan því að
einstakir flokksmenn afklæðast
alltaf eigin skoðunum fyrir yfir-
frakka flokkanna. Ef flokkarnir
tækju önnur þjónustufyrirtæki
sér til fyrirmyndar og færðu sig
nær nútímalegum viðhorfum
myndi margt skána. Annar
kostur væri að þeir byggju sér
til stefnu sem væri nógu róttæk
til að standa undir tilfinninga-
hitanum. ■
Mín skoðun
GUNNAR SMÁRI EGILSSON
■ veltir fyrir sér um hvað
fólk kýs eftir tíu daga.
14 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
Útgáfufélag: Frétt ehf.
Ritstjóri: Gunnar Smári Egilsson
Fréttastjóri: Sigurjón M. Egilsson
Ritstjórnarfulltrúar: Reynir Traustason
og Steinunn Stefánsdóttir
Auglýsingastjóri: Þórmundur Bergsson
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing:
Suðurgötu 10, 101 Reykjavík
Aðalsími: 515 75 00
Símbréf á fréttadeild: 515 75 06
Rafpóstur: ritstjorn@frettabladid.is
Símbréf á auglýsingadeild: 515 75 16
Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is
Setning og umbrot: Frétt ehf.
Prentvinnsla: Ísafoldarprentsmiðja ehf.
Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuð-
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er
hægt að fá blaðið í völdum verslunum á lands-
byggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu
sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði.
Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni
blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum
án endurgjalds.
Frjálslyndi flokkurinn legguráherslu á að málefni eldra
fólks eru málefni alls samfélags-
ins og varða fólk á
öllum aldri. Aldurs-
samsetning þjóðar-
innar hefur breyst
á síðastliðnum ára-
tugum og meðalald-
ur hækkað sem
meðal annars hefur
leitt til þess að
öldruðum hefur
fjölgað hlutfalls-
lega hraðar en
þjóðinni í heild.
Eldra fólk hefur
því í vaxandi mæli
látið að sér kveða
varðandi hags-
munamál sín og gerir þá eðlilegu
kröfu að fá að hafa áhrif á þau.
Málefni aldraðra
Frjálslyndi flokkurinn telur
sjálfsagt að eldra fólk komi að
ákvörðunum og hafi áhrif á
helstu þjóðfélagsmál, enda hafa
eldri borgarar vakið athygli á
bágum kjörum sínum með ýms-
um hætti um langa hríð. Eldra
fólki hefur með því móti tekist
að kynna baráttumál sín og al-
menningur hefur lýst stuðningi
sínum við þau.
Við viljum marka okkur
stefnu til framtíðar í málefnum
eldra fólks og hafa samráð við
það um framkvæmdina, þar sem
við bætum kjör þeirra og bætum
þeim það sem af þeim hefur ver-
ið tekið á umliðnum árum.
Frjálslyndi flokkurinn hefur
við afgreiðslu fjárlaga lagt fram
tillögur til úrbóta á kjörum aldr-
aðra og öryrkja. Tillögurnar
hafa ávallt miðað að því að leið-
rétta stöðu þeirra sem verst eru
settir og lifa eingöngu af lág-
marksbótum, enda teljum við
það brýnast.
Tryggur ellilífeyrir
Frjálslyndi flokkurinn hefur
einnig lagt fram á Alþingi athygl-
isverða tillögu til þingsályktunar
um tryggan lífeyri. Meginefni til-
lögunnar er að bæta skuli þjóðfé-
lagsstöðu lífeyrisþega sem fá
minni lífeyri greiddan úr lífeyris-
sjóði sínum en 40 þús. kr. á mán-
uði með því að breyta bótareglum
almannatrygginga þannig að líf-
eyrisgreiðslur undir 40 þús. kr. á
mánuði skerði ekki grunnlífeyri,
tekjutryggingu, heimilisuppbót
eða aðrar bætur lífeyrisþegans.
Ísland er talið fimmta ríkasta
land heims. Þrátt fyrir það eru
kjör aldraðra og öryrkja verri
hér en í löndum með sambærileg-
ar þjóðartekjur. Það er athyglis-
vert, að núverandi valdhafar hafa
átt í stöðugum deilum við hópa
eldra fólks og öryrkja um kjör
þeirra allt kjörtímabilið, en núna
rétt fyrir kosningar lofar ríkis-
stjórnin þeim gulli og grænum
skógum.
Það er ekki forsvaranlegt í okk-
ar velferðarsamfélagi, að eldra
fólk skuli þurfa að þola að njóta
ekki sama réttar og aðrir þjóð-
félagsþegnar að lokinni langri
starfsævi. ■
Guðs
smurður
forseti
Sigurður Sigurðarson skrifar:
Samkvæmt því sem Gunnar íKrossinum sagði í Omega (að
kveldi sjöunda apríl) þá er Bush
forseti Bandaríkjanna ekki kjörinn
af sinni þjóð. Nei sei sei nei. Hann
er kjörinn af drottni sjálfum á
himnum. Og þess vegna er hann
drottins smurði, þar af leiðandi
óskeikull. Gunnar segist styðja allt
sem hann gjörir í guðs nafni, Hall-
eljúje. Ekki Halelúja eins og ís-
lenskir sveitaprestar segja. En
Gunnar getur ekki vonast til þess
að hafa fundið þessa vitrun fyrst-
ur. Nei ekki aldeilis. Davíð og Hall-
dór eru fyrir löngu búnir að finna
þetta út. Reyndar var það daginn
sem þeir ákváðu að borga 300
milljónir til þess að koma fall-
byssufóðrinu á réttan brottfara-
rstað af plánetu þessari. Það var
aftur sama dag og varðskipin okk-
ar fengu ekki olíu á tankana og
vantaði þyrluspaða handa flug-
sveit landhelgisgæslunnar. Rétt
forgangsröðun, það er lóðið!
Áfram Kristsmenn krossmenn! ■
Um daginnog veginn
MARGRÉT K.
SVERRISDÓTTIR
■ framkvæmdastjóri
Frjálslynda flokksins
og oddviti listans í
Reykjavík suður skrifar
um kjör aldraðra.
Eldra fólkið hafi áhrif
■ Bréf til blaðsins Regla eða ragnarök
Steingrímur J. Sigfússon
formaður Vinstri grænna
Óljós
úrskurður
Úrskurðurinn er í fyrsta lagi ekki nógu góður og
ekki nógu skýr. Það voru vonbrigði að ráðherra skyldi
ekki manna sig upp í að hafna þessari framkvæmd.
Mannvirkjagerð, hvort sem hún er útfærð svona eða á
hinn veginn, á einfaldlega ekki heima í Þjórsárver-
um. Menn skýla sér á bak við friðlandsmörkin, beinar
línur dregnar á kort, afleiðing málamiðlana og deilna
frá löngu liðinni tíð. Sjálf Þjórsárver eru náttúrufars-
lega og landfræðilega miklu stærri en friðlandið. Nái
Landsvirkjun sínu fram, með því að túlka miður ljós-
an úrskurð ráðherra sér í hag, glatast óumdeilanlega
hluti Þjórsárvera.
Hjálmar Árnason
þingmaður Framsóknarflokksins
Sigur fyrir
náttúruvernd
Þetta er ósköp einfalt, úrskurður Jóns Krist-
jánssonar ráðherra um Norðlingaölduveitu er
afar skýr og felur í sér að Þjórsárverum er
hlíft. Síðan túlkaði ráðherra úrskurð sinn enn
frekar í umræðum á Alþingi þegar hann taldi
sig byggja á 566 metrum. Þetta er túlkun ráð-
herra á úrskurði sínum, sem er mikill sigur
fyrir náttúruvernd og nýtingarsjónarmið.
Ég trúi ekki öðru en að hugmyndir um að
fara út fyrir þann úrskurð byggi á því að
menn séu að skoða, en úrskurðurinn
stendur engu að síður
Er úrskurður ráðherra nógu skýr?
Skiptar skoðanir
■ Af Netinu
Stúdentar ánægðir með LÍN
„Ef leggja má út af þögninni er
engu líkara en að stúdentar séu
ánægðir með LÍN eins og sjóður-
inn er rekinn í dag. Þó vita allir
að af meiru en nógu er að taka
þegar úrbætur á LÍN eru annars
vegar.“
PÉTUR MAACK ÞORSTEINSSON
Á VEFNUM POLITIK.IS
Kynferðið skiptir öllu
„...umræddur frambjóðandi,
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, virð-
ist með öllu búin að afskrifa
þann möguleika að hún verði
kosin vegna annars en eigin kyn-
ferðis.“
RITSTJÓRNARGREIN Á VEFÞJÓÐVILJANUM
Á ANDRIKI.ISURGUR ER Í UMHVERFISVERNDARFÓLKI VEGNA ÁFORMA LANDSVIRKJUNAR UM AÐ HAFA LÓN VIÐ NORÐLINGAÖLDU. SPURNING ER HVORT ÚRSKURÐUR RÁÐHERRA HAFI VERIÐ NÓGU SKÝR.
■
Hvernig svo
sem þessar
kosningar fara
mun ekki verða
afgerandi
breyting á ís-
lensku samfé-
lagi á næstu
árum.
■
„Það er athygl-
isvert, að nú-
verandi vald-
hafar hafa átt í
stöðugum deil-
um við hópa
eldra fólks og
öryrkja um kjör
þeirra allt kjör-
tímabilið, en
núna rétt fyrir
kosningar lofar
ríkisstjórnin
þeim gulli og
grænum skóg-
um.“
ALDRAÐIR BÚA VIÐ BÁG KJÖR
Tryggja þarf að aldraðir njóti sama réttar og aðrir.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
N
G
O
www.samfylking.is
Félag einstæðra foreldra
Tjarnargötu 2d, Reykjavík sími 551 1822
Framhaldsaðalfundur Félags einstæðra foreldra
Framhaldsaðalfundur Félags einstæðra foreldra verður haldinn
föstudaginn 2. maí 2003 í Skeljahelli, sal félagsins, í Skeljanesi 6, kl: 16:00.
Dagskrá:
1. Fundur settur, skipan fundarstjóra og fundarritara.
2. Lagabreytingar. Tillaga til breytingar á 2.gr., 9.gr, 10gr., laga félagsins.
3. Kosning í stjórn, nefndir og kosning formanns.
4. Kosning löggiltra endurskoðenda.
5. Fundi slitð.
Á aðalfundi ræður afl atkvæða úrslitum og hafa allir skuldlausir félagsmenn
rétt til að kjósa. Hver félagsmaður hefur eitt atkvæði.
Styrktarmeðlimir hafa rétt til setu á aðalfundi en ekki atkvæðisrétt.
Félagsmönnum er bent á að greiða félagsgjald sitt fyrir árið 2003 inn á
reikning félagsins, Félags einstæðra foreldra
í Landsbanka Íslands 0111-26-24290, kt: 490371-0289
fyrir fundinn og sýna kvittun fyrir því ef þeir mæta.