Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 25

Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 25
kl. 16 -18 fimmtudaga til sunnudaga og stendur til 4. maí.  Björg Örvar er með málverkasýn- ingu í Galleríi Sævar Karls. Sýningin er opin virka daga á opnunartíma verslun- arinnar.  Málverkasýning Stefáns Bergs var opnuð á sumardaginn fyrsta á veitinga- staðnum Kránni, Laugavegi 73.  Ferðafuða nefnist sýning á miniatúr- um, sem var opnuð í Áhaldahúsinu í Vestmannaeyjum um páskana. Sýning- in stendur til 27. apríl. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003 21 B A R Á T T U D A G U R V ER K A LÝ Ð SI N S Reykjavík: 1. maí kaffi í Iðnó að lokinni kröfugönguDagskrá: - Atli Gíslason, lögmaður og frambjóðandi í 2. sæti í Reykjavík norður flytur hátíðarræðu - Steinunn Birna Ragnarsdóttir, píanóleikari, Hrólfur Sæmundsson, barítón, og félagar úr Maíkórnum troða upp. Kaffigjald: 500 krónur Kópavogur: 1. maí kaffi á kosningaskrifstofunni í Bæjarlind 12 frá 16-18 Dagskrá hefst klukkan 17: - Þorleifur Friðriksson, sagnfræðingur, fjallar um 1. maí í sögulegu ljósi - Kristján Hreinsson flytur nokkur lög - Jóhanna B. Magnúsdóttir, frambjóðandi í 1. sæti í SV-kjördæmi flytur hátíðarræðu Hafnarfjörður: 1. maí kaffi í boði hafnfirskra frambjóðenda á U-listanum sem taka á móti gestum með Þóreyju Eddu Elísdóttur í broddi fylkingar frá klukkan 16 til 18 1. maí kaffi á kosningaskrifstofum VG um land allt Akranes: Kirkjubraut 18 klukkan 17 til 19 Borgarnes: Borgarbraut 44 klukkan 17 til 19 Ísafjörður: Hafnarstræti 14 klukkan 16 til 19 Sauðárkrókur: Aðalgötu 20 klukkan 17 til 19 Siglufjörður: Grundargötu 3 klukkan 16 Ólafsfjörður: Aðalgötu 1 klukkan 16 Akureyri: Hafnarstræti 94 klukkan 15:30 til 17 Húsavík: Neðri-Vör klukkan 17 Hérað: Gömlu TF-búðinni í Fellabæ Neskaupstaður: Kosningaskrifstofa opnuð í Steininum með 1. maí kaffi klukkan 14 Selfoss: Austurvegi 44 frá klukkan 16 Reykjanesbær: Hafnargötu 54 frá klukkan 16 Vinstrihreyfingin – grænt framboð sendir launafólki baráttukveðjur og hvetur landsmenn til að taka þátt í 1. maí hátíðahöldum um land allt. Leiðrétting Í dálkinum Besta kaffið í bæn- um, sem birtist í blaðinu í gær, átti að vera mynd af Eygló Harð- ardóttur myndlistarkonu. Fyrir mistök birtist mynd af alnöfnu hennar og er beðist velvirðingar. Í minningu læriföður Það má segja að fyrri sónatan séöllu ljóðrænni og að sumu leyti einfaldari í uppbyggingu. Seinni sónatan er aftur á móti flóknara verk og mjög dramatísk. Hún gefur líka til kynna síðasta tímabilið á ferli Brahms, sérstaklega þá fyrsti kaflinn,“ segir Gunnar Kvaran sellóleikari. Hann ætlar ásamt Jónasi Ingi- mundarsyni píanóleikara að flytja báðar sellósónötur Jóhannesar Brahms á tónleikum í Salnum í Kópavogi í kvöld. Þessi tvö verk eru það eina sem Brahms samdi um æv- ina fyrir þessa hljóðfæraskipan. „Fyrri sónatan, opus 38 í e-moll, var samin árið 1865, en sú síðari, sem er opus 99 í F-dúr, var samin árið 1886. Það leið því 21 ár á milli þeirra og þær gefa því afskaplega áhugaverða mynd af tónskáldskap Brahms.“ Gunnar segir að þeir Jónas hafi lengi haft í huga að leika þessar tvær sónötur saman á tónleikum, en ekkert orðið af því fyrr en nú. Jónas hefur áður leikið fyrri sónötuna, en aldrei þá síð- ari. Gunn- ar hefur l e i k i ð þær báð- ar áður, en þá seinni aldrei hér á Íslandi fyrr en nú. „Við Jónas ákváðum að tileinka þessa tónleika Árna Kristjánssyni, píanóleikara og píanókennara, sem lést fyrir fáeinum vikum. Árni var kennari Jónasar í Tón- listarskólanum í Reykjavík og þeim varð vel til vina. Gunnar kynntist Árna líka vel og lék með honum kammertónlist við nokkur tæki- færi. „Mér fannst alltaf að ég væri í raun nemandi Árna Kristjánssonar. Hann hafði gífurleg áhrif á þróun tónlistarlífs á Íslandi á 20. öldinni og það má segja að hann hafi verið goðsögn í lifanda lífi.“ Árni lék báðar sellósónötur Brahms margoft um ævina. Jónas Ingimundarson segist aldrei hafa heyrt Árna leika nokkurt verk jafn- oft og seinni sónötuna. „Okkur þykir því ákaflega vænt um að geta vottað honum virðingu okkar með þessum verkum.“ gudsteinn@frettabladid.is ■ TÓNLIST JÓNAS INGIMUNDARSON OG GUNNAR KVARAN Þeir flytja báðar selló- sónötur Brahms á tónleik- um í Salnum klukkan átta í kvöld.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.