Fréttablaðið - 30.04.2003, Qupperneq 29
MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003 25
SÍMI 553 2075
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10Sýnd kl. 4, 6.30, 9 og 11
THE CORE kl. 8 b.i 12 ára
SKÓGARLÍF 2 kl. 6
ABRAFAX OG SJÓRÆN. kl. 4 tilb. 400 5.45, 8 og 10.15
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.30 b.i.14.ára
THE HOURS b.i. 12 kl. 5.40
CHICAGO b.i. 12 kl. 8
MAID IN MANHATTAN kl. 8 og 10.20
Sýnd kl. 5.30, 8.30 og 11 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20 b.i. 12 ára
SHANGHAI KNIGHTS
Það hvarflar nú varla að manni aðmynd sem beri titilinn Skotheld-
ur munkur geti verið góð. Það er
eitthvað svo yfirmáta hallærislegt
við þessa yfirskrift að innihaldið
getur ekki verið upp á marga fiska
þannig að það er ekki hægt að
skammast yfir því að Bulletproof
Monk sigli undir fölsku flaggi.
Nafnið er asnalegt og myndin líka.
Hinn annars ágæti leikari Chow
Yun Fat leikur hér Tíbetmunk sem
kann að slást eins og hetjurnar í
Crouching Tiger, Hidden Dragon og
Matrix og við fáum því nóg af
karate sem er óháð þyngdarlögmál-
inu. Hann er verndari gamallar bók-
rullu sem er þeim göldrum gædd að
sá sem les hana verður almáttugur.
Gamall nasisti vill öðlast þetta vald
og nota það í þjóðernishreinsunum
og upphefst því mikill eltingarleik-
ur munks og nasista í San Francisco
nútímans, en ekki hvað?
Þetta er auðvitað galið og slags-
málin, hasarinn og niðursuðudósa-
heimspekin nægja ekki að bæta
hriplekt handritið. Hér er hverri
hasamyndaklisjunni smurt ofan á
aðra og þegar maður er búinn að
sjá fyrstu 10 mínúturnar er maður
eiginlega búinn að sjá myndina
alla.
Fat er hátt skrifaður hjá undir-
rituðum en það verður að segjast
eins og er að hann hefur ekki notið
sín sem skyldi í Hollywood. Það
fer honum miklu betur að bregða
brandi en slást og fyrir vikið er
þessi mynd sú alversta sem hann
hefur komið nálægt frá því hann
kom funheitur frá Hong Kong.
Þórarinn Þórarinsson
BULLETPROOF MONK
Aðalhlutverk: Chow Yun-Fat,
Seann William Scott
Umfjöllunkvikmyndir
Hjakkað í klisjum
Sjónvarpssápuleikkonan JenniferLove Hewitt er líklegast þekkt-
ust fyrir allt annað en söng, a.m.k. í
Evrópu. Þessi 24 ára gamla hnáta
var þó búin að gefa út þrjár breið-
skífur áður en hún gaf út „Bare-
naked“ sem hér er umtalsefni.
Hún er svolítið sæt og reynir eft-
ir bestu getu að ryðja sér til rúms á
þeim sveitapoppsmarkaði sem land-
ar hennar Shania Twain og Faith
Hill eru allsráðandi á. Söngpuðið
virðist loksins vera að skila henni
einhverjum árangri og lagið „Can I
Go Now?“ komið í spilun á MTV.
Jennifer lætur smíða utan um sig
lögin og réð hina gallhörðu Mer-
edith Brooks, sem söng „I’m A
Bitch“ hérna um árið, til verksins.
Þeir sem muna eftir því lagi vita
eiginlega nákvæmlega að hverju
þeir ganga hér.
Ég var aldrei neitt sérlega hrif-
inn af hinni sjálftitluðu tík, ungfrú
Brooks, og gat því ekki haft gaman
af þessari. Undarlegast finnst mér
þó að stelpa sem er rétt skriðin yfir
tvítugt skuli reyna að troða sér inn á
35+ tónlistarsenuna. Þeir unglings-
strákar sem hafa verið slefandi yfir
henni frá því þeir sáu hana fyrst í
„Party of Five“ hlusta líklegast á
öllu þyngri tónlist.
Þessi plata hentar vel í bíla-
geislaspilara tveggja barna mæðra
á leið í Bláa Lónið á frídegi.
Þessi leiðindi hreyfa lítið við
okkur hinum. Flagð undir fögru
skinni, eða bara saklaus áttavilt
smástelpa?
Birgir Örn Steinarsson
JENNIFER LOVE HEWITT: Barenaked
Umfjölluntónlist
Orðin of
gömul of ung
28 DAYS LATER b.i. 16 kl. 10.20
THE GOOD GIRL b.i. 16 kl. 6
Fréttiraf fólki
Okkur Íslendingum finnst vístskemmtilegt að tengja okkur
við hluti úti í hinum stóra heimi.
Kvikmyndin
„Bulletproof
Monk“, sem nú
er í bíó, er ekki
laus við Íslands-
tengslin þó lang-
sótt séu. Leikar-
inn Ingvar E.
Sigurðsson fór
nefnilega í prufu
fyrir myndina. Reyndi hann að
hreppa eitt aðalhlutverkið við hlið
Chow-Yun Fat en laut í lægra haldi
fyrir gamanleikaranum Seann
William Scott.
Jack Osbourne, sonur rokkaransOzzy, er á leiðinni í meðferð.
Ekki er gefið upp hvaða lyfjum
hinn 17 ára gamli piltur er orðinn
háður. Pabbi hans var alræmdur
fyrir misnotkun sína á drykk og
eiturlyfjum.