Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 36

Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 36
Ætli það séu ekki 20 fermetr-ar á haus,“ segir Þorvaldur Stefán Jónsson, verkefnisstjóri hjá Orkuveitu Reykjavíkur, um vinnusvæði starfsmanna fyrir- tækisins. Alls eru nývígðar höf- uðstöðvar Orkuveitunnar 14 þúsund fermetrar en í útreikn- ingum Þorvaldar er einungis gengið út frá 5 þúsund fermetra skrifstöðuaðstöðu. Væri heild- arfjölda fermetranna deilt niður á starfsmennina hefði hver og einn um 60 fermetra til ráðstöf- unar. Þá eru bílastæði undan- skilin. „Í skrifstofurýminu gætum við hins vegar tvöfaldað fjölda starfs- manna því leiðslur og lagnir bjóða upp á það,“ segir Þorvaldur Stef- án og leggur áherslu á sveigjan- leika aðstöðunnar, sem býður upp á margs konar möguleika í upp- röðun enda vinnusvæðið allt opið. Hefur því verið vel tekið af starfsmönnum þó Þorvaldur geti ekki neitað því að sumum hafi þótt erfitt að koma úr lokaðri skrifstofu og í þetta opna rými: „En menn venjast þessu,“ segir hann. Enn standa tvær hæðir í höfuð- stöðvum Orkuveitunnar auðar og er stefnt að því að leigja þær út. Frá því hefur enn ekki verið gengið. ■ 32 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR ORKUVEITAN Enn standa tvær hæðir auðar en stefnt að því að leigja þær út. 20 fermetrar á haus Tryggingar ■ Höfuðstöðvar Orkuveitunnar rísa eins og brúin á Titanic upp úr melunum í Árbæ. Alls 14 þúsund fermetrar og þar starfa 400 manns. Skrifstofuhúsnæðið er þó aðeins 5 þúsund fermetrar. Kröfuganga á afmælisdegi 52 ÁRA „Ég fer alltaf í kröfugöngu á afmælisdaginn og ég held að ég hafi gert það á hverju einasta ári ævinn- ar“, segir Álfheiður Ingadóttir, líf- fræðingur og þingframbjóðandi Vinstri grænna. „Pabbi var mikill verkalýðssinni og 1. maí var alltaf haldinn hátíðlegur í minni fjöl- skyldu. Ég hef haldið þeirri hefð áfram og finnst það skipta máli.“ Frídagur verkalýðsins er vita- skuld einnig persónulegur hátíðis- dagur hjá Álfheiði. „Ég var alveg sannfærð um það, áður en ég komst til vits og ára, að lúðrablásturinn og skrúðgöngurnar væru út af því að ég ætti afmæli.“ Afmælishald Álf- heiðar hefur jafnan tekið mið af deginum og seinni árin hefur hún haft það fyrir sið að bjóða sínum nánustu í hádegissnarl áður en lagt er af stað í kröfugönguna. „Ég hélt stóra veislu þegar ég varð fimmtíu ára enda finnst mér gaman að bjóða til mín gestum og geri það við hvert tækifæri. Þar sem afmælið ber upp 1. maí hefur það sett hátíðarhöldum svolítinn ramma en þannig var alltaf hægt að gera sér glaðan dag kvöldið áður, þar sem dagurinn eftir var almenn- ur frídagur. Þetta kom sér sérstak- lega vel þegar maður var á partí- aldrinum en svo hefur þetta þróast í hádegisverð með ættingjum og vin- um.“ Álfheiður er á kafi í kosninga- baráttunni og hefur gaman af. „Mín vegna mættu vera kosningar á tveggja ára fresti. Vinstri grænir verða með baráttufund í Iðnó eftir gönguna. Ætli hann verði ekki bara afmælisveislan í ár og þá er best að taka það fram að afmælisgjafir eru óþarfar en fólk má gjarnan kaupa miða í kosningahappadrætti Vinstri grænna“, segir kröfugönguglaði frambjóðandinn og hlær. ■ Afmæli ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR ■ líffræðingur er 52 ára á morgun. Hún heldur upp á daginn með því að fara í kröfugöngu en hún hefur ekki látið sig vanta í þær frá því hún var barn og gildir þá einu hvort hún hefur verið búsett er- lendis eða hér heima. www.samfylking.is ÁLFHEIÐUR INGADÓTTIR Ætlar að ganga undir merkjum femínista í kröfugöngunni 1. maí.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.