Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 38
Hrósið 34 30. apríl 2003 MIÐVIKUDAGUR
Vinnan er stór hluti af lífinu einsog hjá mörgum opinberum
starfsmönnum. Henni lýkur sjaldn-
ast klukkan fjögur,“ segir Sigurður
Þórðarson ríkisendurskoðandi, sem
leikið hefur aukahlutverk og jafn-
vel stundum aðalhlutverk í opinber-
um hneykslismálum sem skekja
þjóðfélagið með reglulegu millibili.
En Sigurði finnst það ekkert sér-
staklega spennandi: „Við upplifum
okkur ekki sem hetjur í sjónvarps-
þáttum. Þetta er bara vinna,“ segir
hann.
Sigurður er endurskoðandi að
mennt, lauk námi 1982 í síðasta ár-
gangi endurskoðenda áður en við-
skiptafræðimenntun var gerð að
skilyrði fyrir löggildingu. Var einn
af þeim fyrstu sem lögðu tölvunám
fyrir sig og var í Danmörku þeirra
erinda um það leyti sem Kennedy
Bandaríkjaforseti var skotinn í
Dallas. Starfaði um skeið við tölvur
hjá Loftleiðum og Skýrsluvélum
ríkisins, þar sem hann var stjórnar-
formaður í 13 ár. Síðan lá leiðin í
fjármálaráðuneytið og ríkisendur-
skoðandi hefur Sigurður verið frá
árinu 1986. Sigurður er borinn og
barnfæddur Hafnfirðingur og býr
þar enn.
Það getur verið slítandi að liggja
yfir pappírum daglangt en við því
sér Sigurður með því að stunda lík-
amsrækt þrisvar í viku í Teknosport
í Hafnarfirði. Það auðveldar honum
pappírsvinnuna og gefur honum
þrek til frekari endurskoðunar: „Í
æsku var ég ötull sundmaður og
keppti meðal annars í skriðsundi.
Vann meira að segja til verðlauna
en var aldrei bestur,“ segir Sigurð-
ur af hógværð og hefur viðhaldið
sundkunnáttunni í Laugardalslaug-
inni eins og tími hefur gefist til. „Já,
ég er vel syndur,“ segir hann.
Sigurður 61 árs að aldri og
ekkjumaður. Eiginkona hans, Hin-
rika Halldórsdóttir, lést í desember-
mánuði síðastliðnum. Saman áttu
þau þrjú börn. ■
Persónan
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON
■ ríkisendurskoðandi leikur aukahlutverk
og stundum aðalhlutverk í opinberum
hneykslismálum sem skekja þjóðfélagið
með reglulegu millibili. En vinnan er
einnig annað og meira. Og lífið líka.
Fær Ellert B. Schram fyrir aðhalda æskuljómanum í nýju
embætti sem formaður Samfylk-
ingarfólks 60 ára og eldra – 60
plús.
Endurskoðandi í skriðsundi
KAFTEINN OFURBRÓK
Bjarni Fr. Karlsson þýðir ótrúleg ævintýri
Kafteins Ofurbrókar, en þriðja bókin um
kappann var valin besta þýdda barnabókin
í keppni Borgarbókasafnsins um Bókaverð-
laun barnanna.
Kafteinn Ofurbrók:
Ómótstæði-
leg hetja
BÆKUR Kafteinn Ofurbrók átti
góðan dag á afmælishátíð Borg-
arbókasafnsins á sumardaginn
fyrsta en hann sigraði með yfir-
burðum í flokki þýddra bóka í
keppninni um Bókaverðlaun
barnanna. Val barna á aldrinum
6 til 12 ára liggur að baki verð-
launaafhendingunni og mikill
meirihluti þeirra taldi Kaftein
Ofurbrók og innrás ótrúlega
asnalegu eldhúskerlinganna
utan úr geimnum bestu barna-
bókina sem kom út á síðasta ári.
Þetta er þriðja bókin um Of-
urbrókina sem kemur út á ís-
lensku hjá JPV-Útgáfu og út-
gáfustjórinn Jóhann Páll Valdi-
marsson segist „auðvitað mjög
stoltur fyrir hönd hins merka
Kafteins Ofurbrókar, sem börn-
in hafa tekið fagnandi hér á
landi sem erlendis.“ Þá má geta
þess að ævintýrum ofurhetjunn-
ar á nærbrókinni er síður en svo
lokið og fjórða bókin um kapp-
ann er væntanleg í vetur. ■
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
Mjódd • Dalbraut • Austurströnd
1000 kr. tilboð
Aukaálegg að eigin
vali kr. 150
kr. 1.000
Stór pizza með
2 áleggstegundum
SIGURÐUR ÞÓRÐARSON
Einn af þeim fyrstu sem lærðu á tölvur og
var í Danmörku við nám í þeim fræðum
árið sem Kennedy Bandaríkjaforseti var
skotinn í Dallas.
Magadans
góður fyrir bakið
Þetta er líkamsrækt og alhliðaafþreying,“ segir Elísabet
Grétarsdóttir, sem á dögunum
stofnaði Magadansafélag Reykja-
víkur ásamt vinkonum sínum.
Magadansinum kynntist Elísabet í
Kramhúsinu en upptökin má
rekja til tveggja palestínskra
stúlkna sem hér búa og fluttu
magadansinn með sér að heiman.
„Við erum orðnar 20 og æfum
einu sinni í viku en stefnum á öfl-
ugra starf og fleiri félaga,“ segir
hún.
Elísabet og hinar magadans-
meyjarnar vilja breyta ímynd
dansins hér á landi og leggja
áherslu á að upphaflega hafi dans-
inn eingöngu verið ætlaður kon-
um – fyrir konur. Það séu seinni
tíma hugmyndir að magadans-
meyjar dansi fyrir karlmenn á
eggjandi hátt með skírskotun til
frekari kynna:
„Þetta eru hressandi æfingar
og sérstaklega góðar fyrir bakið.
Þá eykur dansinn sjálfsöryggi og
þá ekki síst þegar dansararnir
finna konuna í sjálfum sér,“ segir
Elísabet, sem er tilbúin að koma
fram á skemmtunum ásamt vin-
konum sínum og nefnir þá sér-
staklega árshátíðar: „En við döns-
um ekki í karlasamkvæmum því
þá halda karlarnir að þeir séu að
fá allt annað en til stóð. Það er eitt
af því sem við viljum koma til
skila,“ segir hún.
Magadansarafélagið hélt hátíð
í Kebab-húsinu við Grensásveg
um síðustu helgi og mættu þar
hartnær hundrað konur sem
reyndu með sér í magadansi við
glymjandi arabíska tónlist og
dýrlegar veitingar í mat og
drykk. Stefnt er að framhaldi á
slíkum skemmtunum. Annars
starfar Elísabet Grétarsdóttir
sem markaðsfræðingur hjá hug-
búnaðarfyrirtæki í höfuðborg-
inni. Frá því starfi er magadans-
inn góð hvíld.
eir@frettabladid.is
MAGADANS Á GRENSÁSVEGI
Tilbúnar á skemmtikvöld – þó ekki í karlaklúbba.
Magadans
■ Hópur kvenna hefur stofnað maga-
dansafélag og æfir stíft. Magadansinn er
sagður góður fyrir heilsuna og ekki síst
þegar dansararnir finna konuna í sjálfum
sér. Þær dansa nú 20 saman.
Símafyrirtækið Og Vodafoneefnir til fagnaðar við sundin
blá síðdegis í dag. Er þangað
boðið velunnurum fyrirtækisins
og ýmsum viðskiptavinum – þó
ekki öllum því ekkert hús á
landinu rúmar þann fjölda allan.
Til tíðinda telst að í veislunni
ætla forráðamenn Og Vodafone
að frumsýna Formúlu 1 Ferrari-
bifreið Michael Schumacher
kappaksturskappa. Sjálfur verð-
ur Michael ekki á staðnum en
líklega í símasambandi og þykir
það vel við hæfi.
Það verður mikið um dýrðirÞegar verktakafyrirtækið
Ístak vígir nýjar höfuðstöðvar
sínar 8. maí næstkomandi.
Byggt hefur verið nýtt hús að
Engjateigi 7 eftir teikningu
danska arkitektsins Jan Sönd-
ergaard, sem hafði Almannagjá
á Þingvöllum til hliðsjónar við
gerð hússins. Arkitektinn mun
hafa heillast mjög af Almanna-
gjá er hann kom þangað en að
öllu jöfnu starfar hann sem
hönnuður hjá Bang & Olufsen í
Kaupmannahöfn.
Róbert Marshall, fréttamaðurá Stöð 2, var kjörinn for-
maður Blaðamannafélags Ís-
lands á aðalfundi félagsins á
mánudaginn. Hann lagði Guð-
rúnu Helgu Sigurðardóttur,
blaðamann á Frjálsri verslun, í
kosningu með 32 atkvæðum
gegn 26. Samkvæmt fréttavefn-
um www.frettir.com, sem fjöl-
miðlamaðurinn Steingrímur
Ólafsson heldur úti, töldu marg-
ir blaðamenn að stjórnin ætlaði
að koma Guðrúnu Helgu í for-
mannssætið átakalaust, meðal
annars með því að boða sem
fæsta félaga til fundarins, en
einhver misbrestur hafði orðið
á að félagar fengju „bréflega
boðun eins og þó er skylt sam-
kvæmt lögum félagsins“. Frett-
ir.com nefna þessu til stuðnings
að „óvenju lágt fór að formað-
urinn Hjálmar Jónsson, blaða-
maður á Morgunblaðinu, hygð-
ist segja af sér formennsku.“
Þrátt fyrir að sex framboð séuí boði á landsvísu og eitt að
auki í Suðurkjördæmi hefur ver-
ið haft á orði að eitt framboð
vanti. Þar er um að ræða fram-
boð Félags íslenskra þjóðernis-
sinna. Jón Vigfússon, formaður
félagsins, sagði í janúar að verið
væri að vinna að framboði
flokksins í öllum kjördæmum
nema Norðausturkjördæmi.
Sjálfur átti hann að vera oddviti
í Norðvesturkjördæmi og bróðir
hans, Hlynur Freyr, varaformað-
ur félagsins sem dæmdur var
fyrir kynþáttafordóma, í öðru
sæti. ■
M
YN
D
/I
N
G
A
R
AN
N
VE
IG
Fréttiraf fólki