Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 39

Fréttablaðið - 30.04.2003, Síða 39
35MIÐVIKUDAGUR 30. apríl 2003 ■ Leiðrétting Að gefnu tilefni skal tekið fram að Blaða- mannafélag Íslands hefur fengið Marshall- aðstoð. ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Víetnam. Kjartan Gunnarsson. Jennifer Lopez. ÞEIR FISKA SEM RÓA, EÐA HVAÐ? Hún er ekki fiskilegt vatn tjörnin, skrifaði Steinn Steinarr um Reykjavíkurtjörn. Ungt Samfylkingarfólk reri þar samt í gær. Til- gangurinn var að benda á það með tákn- rænum hætti að núverandi fiskveiðistjórn- unarkerfi hindri nýliðun í greininni. Nýliðar geti ekki hafið veiðar nema kaupa rétt af þeim sem fyrir eru í greininni. Lýsuhólsskóli: Umhverfis- vænn skóli VIÐURKENNING Lýsuhólsskóli hefur bæst í hóp þeirra skóla sem hafa orðið þess heiðurs aðnjótandi að hljóta Grænfánann. Fáninn er al- þjóðleg viðurkenning fyrir fram- úrskarandi starf að umhverfis- vernd og umhverfis- og náttúru- fræðslu. Ólöf Guðný Valdimarsdóttir, formaður Landverndar, afhenti skólanum fánann og alþjóðlegt skjal til staðfestingar viðurkenn- ingunni. Lýsuhólsskóli er fimmti skólinn sem hlýtur þessa viður- kenningu, en einn leikskóli hefur fengið hana. ■ STEINGRÍMUR JOÐ Einstakur að nafninu til. Aðeins einn Steingrímur Joð FÓLK Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands er aðeins einn einstaklingur sem heitir Stein- grímur Jóhann í þjóðskrá. Með því skapar Steingrímur J. Sigfús- son sér sérstöðu meðal formanna stjórnmálaflokkanna, en allir hin- ir eiga sér fjölda alnafna sé litið til eiginnafna hvort sem þau eru eitt eða tvö. Sé Joðinu sleppt eru Steingrímarnir á landinu öllu 290 talsins. Össur Skarphéðinsson heitir sjaldgæfu nafni því aðeins 23 bera það nafn með honum. Davíð- ar eru 932 og Halldórar 1.521. Guðjónar eru 1.211 en sé milli- nafninu Arnar bætt við eins og hjá formanni Frjálslynda flokksins reynast þeir aðeins 10 að tölu. Sé Ingibjörgu Sólrúnu bætt í hópinn kemur í ljós að Ingibjörg- ur í landinu eru alls 2.437 talsins en Ingibjörgur Sólrúnar aðeins 4. Hörð barátta var um Norður-landameistaratitil í pípu- lögnum á móti sem haldið var í Finnlandi. Smári Freyr Smárason stóð sig frábærlega í keppninni. „Það eru veitt fyrstu verðlaun, en dómari sagði mér að frammi- staða mín hefði þýtt annað til þriðja sæti.“ Mistök urðu í undirbúningi keppninnar. Keppendur fengu sendar upplýsingar um með hvaða efni yrði unnið hálfum mánuði fyrir keppni. Upplýsing- arnar komu ekki til Smára. „Þetta var mest kopar, sem við vinnum nánast ekkert með hér. Þarna voru því hlutir sem ég hafði aldrei gert áður,“ segir Smári. „Ef ég hefði vitað það og æft mig á koparnum, þá hefði ég unnið þessa keppni. Ég er með það á hreinu.“ Honum tókst að leysa vandamálin og var ekki langt á eftir Finnanum sem sigr- aði. „Hann náði forskoti fyrsta daginn og tókst að halda því.“ Það sem skiptir máli í keppn- inni er að klára verkið, að lögnin líti vel út og að hún haldi þrýst- ingi. Keppnin stendur í þrjá vinnudaga. „Það er mikil krafa um nákvæmni og skekkjumörk í beygjum eru kannski um tveir millimetrar.“ Smári segir að pressan hafi verið mikil, enda keppnin í stórri sýningarhöll og þúsundir áhorfenda. Aldursmörk eru í keppninni og má Smári ekki keppa aftur. Hann segist þó luma á góðum ráðum til næsta keppanda fyrir Ísland. „Þeir voru allir með þjálfara þessir strákar og ég ætla að leggja til að við gerum það líka næsta ár.“ ■ HÆRRA, HRAÐAR, MEIRA Smári Freyr Smárason beitir logsuðugræj- unum af mikilli leikni fyrir framan áhorf- endur á Norðurlandameistaramótinu í pípulögnum. Pípulagnir SMÁRI FREYR SMÁRASON ■ stóð sig feikivel í Norðurlandamóti í pípulögnum, þrátt fyrir skemmri undir- búning en hinir og efnivið sem er lítið notaður hér á landi. Pípari í fremstu röð

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.