Fréttablaðið - 12.05.2003, Side 2
2 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
„Ég útiloka ekkert.“
Kristján Pálsson bauð sig fram til Alþingis undir
merkjum T-lista óháðra. Hann náði ekki kjöri.
Spurningdagsins
Kristján, á að reyna aftur eftir fjögur
ár?
Kosningar
2003
17,7% 12 þingmenn
12 þingmenn 18,4% 1999
33,7% 22 þingmenn
26 þingmenn 40,7% 1999
7,4% 4 þingmenn
2 þingmenn 4,2% 1999
31,0% 20 þingmenn
17 þingmenn 26,8% 1999
1,0% Enginn þingmaður 8,8% 5 þingmenn
6 þingmenn 9,12% 1999
0,5% Enginn þingmaður
Halldór heldur um taumana
Stjórnin hélt traustum meirihluta þrátt fyrir umtalsvert tap Sjálfstæðisflokksins. Samfylkingin
bætti mestu við sig en náði forsætisráðherraefni sínu ekki inn á þing.
KOSNINGAR Mest spennandi kosn-
inganótt um langt skeið lauk með
því að Samfylkingin bætti við sig
mestu fylgi allra flokka í kosning-
unum en mistókst það markmið
sitt að koma ríkisstjórninni frá
völdum. Forsætisráðherraefni
flokksins féll fyrir borð á síðustu
atkvæðunum sem voru talin.
Sjálfstæðismenn misstu 17% at-
kvæðamagns síns frá kosningun-
um 1999 og horfa upp á að Hall-
dór Ásgrímsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, hefur líf ríkis-
stjórnarinnar í höndum sér.
Það eru ekki ýkja margar vik-
ur síðan fylgi Framsóknarflokks-
ins mældist ítrekað innan við tíu
prósent. Þá settu Framsóknar-
menn sér það markmið að ná 15%
atkvæða og þar með tíu þing-
mönnum. Það markmið náðist og
gott betur. Flokkurinn tapaði lítil-
lega fylgi milli kosninga en hélt
öllum sínum mönnum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur
aðeins tvisvar tapað meira fylgi
en nú. Það var 1987, þegar fram-
boð Borgaraflokksins leiddi til
11,5 prósentustiga fylgistaps, og
1978, þegar flokkurinn tapaði tíu
prósentustigum í vinstribylgj-
unni miklu. Framsóknarflokk-
urinn hefur tvisvar fengið slakari
kosningu, 16,9% 1978 og 15,6%
þegar hann gerði bandalag við Al-
þýðuflokkinn og bauð ekki fram
víða um land. Þingmeirihluti
stjórnarinnar hefur minnkað um
sex sæti frá því hún var fyrst
mynduð 1995. Hann er þó enn
traustur.
Tap stjórnarflokkanna rann til
tveggja flokka. Samfylkingin
bætti við sig rúmum fjórum pró-
sentum og þremur þingmönnum,
en Frjálslyndi flokkurinn jók
fylgi sitt um rúm þrjú prósent og
tvöfaldaði þingmannafjöldann,
varð annar nýi flokkurinn í sög-
unni til að bæta við sig fylgi í öðr-
um kosningum sínum. Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð var
eini stjórnarandstöðuflokkurinn
til að tapa fylgi og þingmanni.
brynjolfur@frettabladid.is
Rumsfeld undir smásjánni:
Fleiri leyndarmál á yfirborðið
LONDON, GUARDIAN Talsvert hefur
verið rætt um ótrúlegar kringum-
stæður þess að Halliburton, fyrir-
tæki sem varaforseti Bandaríkj-
anna stýrði um tíma, hefur fengið
feitustu bitana í endurreisnar-
starfi Írak.
Nú greinir breska blaðið
Guardian frá því að komið hefur í
ljós að Donald Rumsfeld, varnar-
málaráðherra Bandaríkjanna, sat
í stjórn fyrirtækis sem fyrir
þremur árum seldi kjarnaofna til
Norður-Kóreu. Tveim árum síðar,
í nýju starfi, lýsti hann því yfir að
N-Kórea væri hryðjuverkaríki og
setti landið á lista yfir „möndul-
veldi hins illa“ vegna tilrauna til
að smíða kjarnorkusprengju..
Hefur þetta enn beint kastljós-
inu að viðskiptatengslum hátt-
settra bandarískra ráðamanna,
sem þykja í besta falli siðlaus.
Talsmenn Rumsfeld segja að
hann muni ekki eftir að hafa feng-
ið vitneskju um þessi viðskipti. ■
RUMSFELD
Minnist þess ekki að hafa fengið vitneskju um málið.
200 ára afmæli H.C.
Andersen:
Danir
ráðgera
hátíðahöld
KAUPMANNAHÖFN, AP Árið 2005 mark-
ar tímamót fyrir Dani, því þá eru
200 ár síðan frægasti rithöfundur
þeirra, H.C. Andersen, fæddist.
Ætla frændur vorir að fagna tilefn-
inu vel og hafa af því tilefni boðið
nokkrum stórstjörnum að vera op-
inberir boðberar danska skáldsins á
heimsvísu. Er ætlunin að breiða út
boðskap Andersen, kynna líf hans
og skoðanir og halda nafni hans á
lofti sem eins helsta rithöfundar
heimsins. Frægastur varð Ander-
sen fyrir ævintýri sín, sem enn
þann dag í dag njóta mikilla vin-
sælda. Borgarstjóri Kaupmanna-
hafnar tilkynnti að fyrsta stjarnan
sem hlýtur þennan heiður verður
brasilíski knattspyrnusnillingurinn
Pele og verður það formlega kynnt
af ríkisarfa Dana, Friðrik krón-
prins, í næstu viku. ■
Gísli S. Einarsson vonsvikinn:
„Með ólíkindum hvernig þetta fór“
KOSNINGAR „Ég er ánægður með
flokkinn en ekki mitt gengi,“
sagði Gísli S. Einarsson, fráfar-
andi alþingismað-
ur fyrir Samfylk-
inguna, sem ekki
náði inn í Norð-
vesturkjördæmi.
„Það eru ákveðin
vonbrigði að Ingi-
björg Sólrún náði ekki inn á þing
og að stjórnin heldur en svona er
þetta bara.“
Kjördæmi Gísla var hið eina
þar sem Sjálfstæðisflokkurinn
hélt sínu frá síðustu kosningum.
„Mér finnst það alveg með
hreinum ólíkindum hvernig
þetta fór eftir alla vitleysuna í
kringum prófkjör þeirra. Enda
hefur verið skýrt frá því að tals-
vert hafi verið um útstrikanir í
kjördæminu og það kemur ekk-
ert á óvart.“
Gísli sagðist ekki vita hvað
tæki nú við eftir að hafa dottið
út af þingi. „Nú er bara að fara
að leita sér að vinnu. Það vantar
ábyggilega sópara einhvers
staðar.“ ■
GÍSLI S. EINARSSON
Veit ekki hvað tekur við.
■
„Það vantar
ábyggilega
sópara einhvers
staðar.“
Kynferðisleg áreitni:
Prestur
fundinn
sekur
MADRID, AP 73 ára gamall kaþ-
ólskur prestur hefur verið fund-
inn sekur við réttarhöld í
Madrid á Spáni um að hafa áreitt
unga stúlku kynferðislega í níu
ár.
Hann var dæmdur til 10 ára
fangelsisvistar, að hluta til
vegna þess að dómarinn í málinu
leyfði notkun gagna sem byggð
voru á framburði stúlkunnar
undir dáleiðslu. Er það í fyrsta
sinn sem það er leyft fyrir
spænskum dómstólum. ■
AÐGERÐIR Í TIKRIT
Bandarískir hermenn hafa beitt sér gegn
leifum Baath-flokksins.
Tommy Franks:
Baath ei
meir
BAGDAD, AP „Arabíski Baath-sósí-
alistaflokkurinn hefur verið leyst-
ur upp,“ sagði Tommy Franks, yf-
irmaður Bandaríkjahers í Írak, í
yfirlýsingu þar sem hann til-
kynnti að frekari starfsemi
flokksins og félaga hans sem
beindist gegn bandaríska setulið-
inu yrði ekki þoluð.
Franks hefur lofað að eyða
áhrifum flokksins sem hélt Írak í
heljargreipum í 35 ár. Það veldur
þó vandræðum að þúsundir
íraskra embættismanna eru
tengdar flokknum. ■
Saddam Hussein:
Njóti
réttarstöðu
stríðsfanga
WASHINGTON, AP Alþjóða Rauði
krossinn hefur farið fram á það að
fá aðgang að þeim írösku ráða-
mönnum sem bandaríski innrás-
arherinn hefur í haldi.
Jakob Kellenberger, yfirmaður
stofnunarinnar, segir að þeir 55
samstarfsmenn Saddams
Husseins sem eftirlýstir eru af
bandarískum yfirvöldum eigi að
njóta sama réttar og aðrir stríðs-
fangar, samkvæmt alþjóðalögum.
Það er í verkahring Alþjóða
Rauða krossins að hafa eftirlit
með meðferð stríðsfanga og hefur
því verið lögð fram formleg
beiðni um að fá aðgang að þeim
mönnum sem nú eru í haldi.
Bandaríkjamenn hafa handtekið
20 af þeim 55 sem eru á listanum
fræga yfir eftirlýsta ráðamenn úr
stjórnartíð Saddams Husseins. ■
Tilraun með apa:
Enginn
Shakespeare
LONDON, AP Gefðu óendanlega mörg-
um öpum óendanlega margar ritvél-
ar og á endanum munu þeir koma
með Shakespeare-verk, segir kenn-
ingin. Vísindamenn við Plymouth-
háskóla hafa reynt að sanna þessa
kenningu undanfarið með slökum
árangri.
„Þeir ýttu mjög oft á s-ið,“ sagði
einn rannsóknarmanna. „Það má
ekki gleyma því að enska tungumál-
ið er þeim ekki meðfætt.“ Rann-
sóknin leiddi í ljós að sex apar fyrir
framan tölvu í einn mánuð fram-
leiddu tómt bull. Aðrir bókstafir
sem aparnir voru hrifnir af voru
stafir eins og A, J, L og M. ■