Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 20
12. maí 2003 MÁNUDAGUR20
JUST MARRIED 3.45, 5.50, 8, 10.10 SKÓGARLÍF 2 m/ísl.tali kl. 3.50
DREAMCATCHER kl. 6 og 10.10
QUIET AMERICAN kl. 5.50, 8 og 10.20
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 3, 6 og 9
Sýnd kl. 6, 8 og 10 bi 16
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10
kl. 8NÓI ALBINÓI
kl. 68 FEMMES
kl. 9SAMSARA
Sýnd kl. 4, 5.30, 8, 9.05 og 10.20 b.i. 16
Sýnd í lúxus kl. 5.30, 8 og 10.20
kl. 4 500kr.DIDDA OG DAUÐI KÖTT...NATIONAL SECURITY bi 12 kl. 4 RECRUIT bi 16 kl.5.30, 8 og 10.30
kl. 6THE PIANIST
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10
Hljómsveitin „Ég“ er ný af nál-
inni og tekur sig greinilega ekkert
allt of alvarlega. Á fyrstu plötu
hennar, „Skemmtileg lög,“ má til að
mynda finna lagaheiti á borð við
„Dvergalagið,“ „Heimsmeistara-
keppnin“ og „Maradona.“ Hljóm-
sveitarmeðlimir fara ekki leynt
með fótboltaáhuga sinn því umslag
plötunnar er einnig tileinkað þess-
ari mætu íþrótt.
Byrjun plötunnar lofaði ekki
sérlega góðu. Titillagið var bara
alls ekkert skemmtilegt (svekkj-
andi!) og þá sérstaklega bjagaður
og vælugjarn söngurinn. Annað
lagið var lítið skárra og aftur fór
söngurinn í taugarnar á mér. Brún
mín lyftist þó aðeins er ég heyrði
„Geitungarnir mínir,“ sem er lítið
og nett stuðlag. „Heimsmeistara-
keppnin“ og „Leyndarmál“ hljóm-
uðu einnig ágætlega og um leið
kunnuglega enda afturhvarfið til
gamalla tíma í algleymingi. Önnur
lög á plötunni voru ekki eins
skemmtileg.
Þeir sem vilja hlusta á saklaust
bítlarokk sem hægt er að dilla sér
við í partíum gætu þó gert margt
vitlausara en að skella plötunni á
fóninn. Fótboltaleikur í sjónvarp-
inu með hljóðið af myndi heldur
ekki spilla fyrir.
Freyr Bjarnason
ÉG: Skemmtileg lög
Umfjölluntónlist
Fótboltarokk
Breska pressan hefur hreinlega
verið að missa sig yfir þessari sveit,
Yeah Yeah Yeahs. Frumraun þeirra
kom út í Bandaríkjunum í fyrra en
ekki í Evrópu fyrr en nú. Þessi plata
hefur þess vegna legið inni á borði
breskra blaðamanna í talsverðan
tíma og hafa þeir þess vegna fengið
langan tíma til þess að hita almenn-
ing upp fyrir útgáfu plötunnar þar í
landi. „Hæpið“ er því gífurlegt.
Yeah Yeah Yeahs eru hluti af
ruslrokksenunni sem á upptök sín í
New York. Tríóið fékk samning
nokkrum vikum eftir að The
Strokes sló í gegn. Tónlistin er
töffaraleg og minnir dálítið á
Daisy Chainsaw. Lagasmíðar eru
þó poppaðri og útsetningar ekki
eins groddaralegar. Lögin eru þó
töluvert hressari en hjá The
Strokes og The White Stripes.
Demanturinn í pylsuendanum er
svo söngkonan Karen O sem er ekta
rokkstúlka, með lúkkið á hreinu og á
víst að vera frábær á sviði. Það er
skortur á alvöru stelpum í rokkinu í
dag. Karen O fyllir mig von um að
enn sé hægt að finna stúlkur þarna
úti sem gera engar tilraunir til þess
að laða mann að tónlistinni með því
að sýna á sér naflann, brjósta- eða
rassaskoruna. Þetta er skotheld
rokkskífa. Gegnheil af slögurum og
ávísun á að minnsta kosti fjögur
„luftgítars“-köst. Ég bara verð að
sjá þessa sveit á tónleikum!
Birgir Örn Steinarsson
YEAH YEAH YEAHS: Fever to Tell
Umfjölluntónlist
Já, já og já
Fréttiraf fólki
ÉG ER ARABI / GAMLA BRÝNIÐ kl. 8
FYRSTA FERÐIN / VIÐ BYGGJUM HÚS kl. 8
STEVIE kl. 5.30
BIGGIE & TUPAC kl. 10
HEIMILDA- OG STUTTMYNDAHÁTÍÐ
Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 b.i. 14 ára
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
TÓNLIST Rokkarinn Marilyn Manson
hefur gert allt það sem telst á
skjön við bandarískt þjóðfélag að
sínu. Hann hefur notað Alice
Cooper sem fyrirmynd og stigið
skrefinu lengra. Þó hann hafi
kannski ekki ætlað sér það lenti
Marilyn Manson í miðjunni á hinni
endalausu baráttu gegn ritskoðun
og hefur haldið uppi fána mál-
frelsis í Bandaríkjunum.
Marilyn Manson heitir réttu
nafni Brian Warner og er fæddur
og uppalinn í Canton í Ohio. Þegar
hann var 18 ára gamall fluttist
hann til Miami og gerðist tónlistar-
blaðamaður. Árið 1989 kynntist
hann gítarleikaranum Scott
Mitchell og saman ákváðu þeir að
stofna hljómsveit. Ákveðið var að
liðsmenn myndu allir búa sér til
sviðsnöfn þar sem fyrra nafnið
væri eftir þjóðþekktri konu en eft-
irnafnið eftir þekktum fjöldamorð-
ingja. Upphaflega var hljómsveitin
kölluð Marilyn Manson and the
Spooky Kids en nafnið var fljótlega
stytt.
Sveitin Mansons gaf út tónlist
sjálf á kassettum og varð fljótlega
með vinsælari tónleikasveitum í
Miami. Trent Reznor, höfuðpaur
Nine Inch Nails, kom auga á
Manson og bauð honum útgáfu-
samning auk þess að hita upp fyrir
sveit sína í tónleikaferð um Banda-
ríkin. Reznor stjórnaði svo upptök-
um á fyrstu plötu Manson,
„Portrait of an American Family“,
sem kom út árið 1994.
Manson varð strax umdeildur
enda þekktur fyrir að ögra áhorf-
endum sínum. Hann komst til
dæmis í fréttirnar eftir að hann
reif trúarbók Mormóna á tónleik-
um í Salt Lake City, sem er vagga
trúarhreyfingarinnar og mjög
mótuð af henni. Manson braust svo
upp á yfirborðið í Bandaríkjunum
með útgáfu sinni á Eurythmics-lag-
inu „Sweet Dreams (Are Made of
This)“ sem var að finna á
þröngskífunni „Smells Like
Children“. Önnur breiðskífan „Ant-
ichrist Superstar“ og vinsældir
smáskífulagsins „Beautiful
People“ varð svo til þess að Man-
son fangaði athygli heimsins.
biggi@frettabladid.is
Beyoncé Knowles undirbýr núútgáfu fyrstu sólóplötu sinnar.
Plata hennar „Dangerously in
Love“ kemur út í júlí. Á meðal
gesta á plötunni verða fyrrum
kærasti hennar Jay-Z, Missy
Elliott, Sean Paul
og Big Boi úr
Outkast. Stúlk-
an er líka
væntanleg aft-
ur upp á hvíta
tjaldið í sept-
ember í
myndinni
„The Fight-
ing
Tempations“
þar sem hún
leikur á
móti Ósk-
arsverð-
launahafan-
um Cuba
Gooding Jr.
Leikarinn Roger Moore er ábatavegi eftir að leið yfir hann
á miðri leiksýningu í New York á
miðvikudag. Stöðva þurfti sýning-
una í tíu mínútur en gamli Bond
sneri aftur til þess að klára sýn-
inguna. Læknar Moore segja hann
hafa þjáðst af ofþreytu og vatns-
skorti í líkamanum.
Rokkarinn Ozzy Osbourne hefurákveðið að slíta samning sín-
um við Sony. Hann hefur gefið út
plötur hjá útgáfunni í 23 ár. Sam-
kvæmt fréttatilkynningu var
ákvörðunin tekinn eftir fráhvarf
forstjórans Tommy Mottola í janú-
ar. Hvort ákvörðun hans tengist
því eitthvað að dóttur hans Kelly
var sparkað fyrr í vikunni er ekki
vitað.
Madonna þakkaði Frökkum sér-staklega fyrir að hafa verið
mótfallnir stríðsátökum í Írak.
Þetta gerði hún þegar hún kom
fram í útvarpsþætti. Að loknu við-
tali tók hún svo lagið fyrir þá 200
manns sem fengu aðgang. Að lok-
um sagðist henni líða eins og
heima hjá sér í Frakklandi en ekki
heimalandinu.
Fjórir einstaklingar hafa veriðkærðir fyrir að stela eintökum
af væntanlegri Harry Potter-bók
frá framleiðanda. Einn 44 ára
gamall starfsmaður bókaprentun-
ar var kærður fyrir að stela bók-
unum og þrír unglingar fyrir að
taka vísvitandi við þýfinu.
Manson snýr aftur
Í dag gefur þungarokkarinn Marilyn Manson út plötuna „The Golden Age of
Grotesque“. Rokkarinn hefur verið umdeildur frá fyrstu plötu enda hápólitískur
og ekki þekktur fyrir að sitja á skoðunum sínum.
MARILYN MANSON
Það væri eflaust hægt að fylla heila opnu með hlutum sem Marilyn Manson hefur verið
umdeildur fyrir. Stærsta málið er þó án efa þegar reiðir foreldrar í Bandaríkjunum vildu
kenna tónlist hans um skotárásina í Columbine-skóla þegar tveir táningsstrákar skutu
13 skólafélaga sína til bana.