Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 36
49 ÁRA „Ég man að einhvern tíma
átti Laxness afmæli og hringdu þá
í hann útvarpsmenn. Karlinn hváði
og svaraði svo: Afmæli? Eru það
ekki bara smábörn sem halda uppá
það? Ha?“ segir Daði Guðbjörns-
son listmálari – afmælisbarn dags-
ins.
Kona Daða er leikskólastjórinn
Soffía Þorkelsdóttir og Daði segir
hana oftast reyna að gera eitthvað
úr afmælisdegi hans þó enn hafi
hún gripið til þess, sem afmælis-
barnið bindur þó nokkrar vonir við
að verði, að útbúa á hann kórónu
líkt og tíðkast í leikskólum. „Sjáðu
til, það voru engir leikskólar þegar
ég var á leikskólaaldri. Svo
kannski dúkkar upp kóróna núna,
hver veit?“
Þó þetta sé lognið á undan
storminum, en næst verður sjálft
hálfrar aldar afmælið, gerir Daði
fastlega ráð fyrir því að nokkur
gleði verði ríkjandi hjá fjölskyld-
unni. Sonur hans af fyrra hjóna-
bandi átti afmæli í gær. Hann er 19
ára menntskælingur og býr hjá
þeim hjónum. Hann átti að verða
afmælisgjöfin fyrir 19 árum en
mætti of snemma til veislu.
„Stóra stundin verður náttúr-
lega að ári og að einhverju leyti
reynir maður að halda sig til hlés í
dag. Ekki verður blásið í neina
lúðra.“
Eftirminnilegasta afmælis-
veislan í tengslum við afmæli
Daða var þegar hann var tuttugu
og níu ára gamall en þá létu yngri
bræðurnir Gunnar og Guðbjörn,
tenórarnir glöðu, heldur betur til
sín taka. „Margir kollega minna
eru enn að tala um þessa veislu.
Við bræður dönsuðum Zorba-dans
við mikinn fögnuð. Þeir vissu ekk-
ert hvað þeir ættu að gefa mér, og
það varð úr að þeir keyptu 10
svínakótilettur í afmælisgjöf. Svo
mættu þeir í heimsókn daginn eft-
ir, elduðu kótiletturnar og átu.“
jakob@frettabladid.is
36 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
Hvernig er nýja úrið þitt?Alveg frábært! Það fer
klukkutímann á 55 mínútum.
■ Jarðarfarir
■ Andlát
Með súrmjólkinni
Afmæli
DAÐI
GUÐBJÖRNSSON
■ listmálari er 49 ára í dag þá má gera ráð
fyrir að hinir kátu tenórbræður Gunnar og
Guðbjörn láti til sín taka líkt og þeir gerðu í
eftirminnilegustu afmælisveislu Daða.
Fjölmiðlafræði | samfélags- og hagþróunarfræði | sálarfræði | lögfræði
www.unak.is
Nánari upplýsingar á heimasíðunni og í síma 463 0900. Umsóknarfrestur er til 5. júní 2003.
Nýtt og spennandi nám við félagsvísinda- og lagadeild
Það eru litlir sigrar á hverjumdegi,“ segir Kári Ólafsson, sem
ásamt tveimur félögum sínum úr
Fjölbrautaskólanum í Ármúla er í
maraþonpróflestri. Þeir félagarnir
fengu til afnota lausa kennslustofu
sem þeir búa í þar til prófum lýkur.
Það eina sem þeir leyfa sér er að
skjótast út til að fara í sturtu. Kári
hefur verið í fjarnámi í vetur,
stundaði sjóinn frá Rifi á Snæfells-
nesi fyrstu þrjá mánuði ársins.
Hinir tveir hafa hlaðið á sig náms-
einingum og nú á að taka á því.
„Við gerðum þetta fyrir síðustu
annarpróf og árangurinn varð
mjög góður.“ Þau próf sem þeir
hafa þegar tekið nú hafa gengið
vel. Þá fór tími til spillis í að fara
heim og sofa. Nú eru þeir að allan
sólarhringinn. „Hér fer þjófavarn-
arkerfi í gang klukkan tíu á kvöld-
in, en við flytjum okkur þá fram í
anddyri þar sem við erum með
borð og dýnur.“ Hann segir skóla-
meistara hafa tekið vel í þessa
hugmynd, fundist jákvætt að þeir
legðu þetta á sig fyrir námið.
Kári segir að þeir nýti tímann
vel og haldi hver öðrum við efnið.
„Það er helst að tekin sé ein og ein
skák á Netinu.“ Hann segir sólar-
hringinn vera farinn að skekkjast
hjá þeim. „Maður lærir þangað til
maður er farinn að þreytast og þá
leggur maður sig, sama hvað
klukkan er.“ Þeir skiptast á að sofa
og vekja hver annan ef svefninn
ætlar að dragast á langinn. Ekkert
hangs þar. „Það fer ekki mikill tími
til spillis, helst að við spjöllum
saman smávegis. Tökum fimm
mínútna spjall og höldum svo
áfram. Það er ekki hægt að hugsa
sér skemmtilegri og betri aðferð
til að halda sér við efnið í
próflestrinum.“
Kári hefur hug á því að fara í
lögfræði. „Þetta er ágætis undir-
búningur undir það. Vera hér og
gera ekkert annað en að lesa. Mér
skilst að það sé svoleiðis í laga-
deildinni.“
Þeir félagar eru með heima-
síðu, þar sem fylgjast má með
námsframvindunni. Heimasíðan
er http://www2.fa.is/~n19088159/webcam.
haflidi@frettabladid.is
ÚTVARP Jón Gnarr er á förum úr
starfi hjá útvarpsstöðinni muzik
FM 88,5 en þar var hann ráðinn til
að stjórna morgunþætti:
„Það var erfitt að fá auglýsing-
ar eftir umræður um meint barna-
klám sem hér hafði átt að vera,“
segir Valgeir Magnússon, einn
eigenda stöðvarinnar, en Jón
Gnarr flutti leikþætti í morgunút-
varpi sínu þar sem kynferðisleg
misnotkun á börnum kom við
sögu. „Jón Gnarr hefur ákveðið að
hætta og snýr sér að öðrum störf-
um frá og með næstu mánaðamót-
um. Þetta gekk ekki eins og við
vonuðum. Nú setjum við stöðina í
endurskoðun því hún skilaði ekki
hagnaði,“ segir Valgeir.
Í síðustu hlustendakönnun náði
muzik FM 88,5 ágætri hlustun hjá
karlmönnum á aldrinum 18-29
ára. Hjá öllum aldurshópum og
báðum kynjum var hlustunin hins
vegar aðeins 2,7 prósent. ■
13.30 Aðalsteinn Thorarensen, Háholti
23, Hafnarfirði, verður jarðsung-
inn frá Hallgrímskirkju.
14.00 Sigríður Narfheiður Jóhannes-
dóttir, Tjarnargötu 22, Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkur-
kirkju.
15.00 Ólafur Jónsson verður jarðsung-
inn frá Kapellunni í Fossvogi.
17.00 Minningarathöfn um Þórönnu
Rósu Jensdóttur verður í Fella-
og Hólakirkju.
Kristín Alexanders, Tangagötu 23, Ísa-
firði, lést 8. maí.
Birgir Karlsson, Reynilundi 11, Garða-
bæ, lést 7. maí.
Bernhard Adolf Andrésson, Rofabæ
43, Reykjavík, lést 3. maí. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey.
10 svínakótilettur tenórbræðranna kátu
DAÐI GUÐBJÖRNSSON
Bindur vonir við að konan útbúi á hann
kórónu í tilefni dagsins.
JÓN GNARR
Hættir í útvarpi.
Auglýsendur vildu
ekki barnaklám
Engum tíma sóað
MARAÞONMENN
Kári Ólafsson og Ingvar Gylfason taka á því fyrir prófin. Þeir búa saman í kennslustofu
fram yfir próf. Á myndina vantar Jón Leví.
Próflestur
■ Þrír félagar í Ármúlaskóla ákváðu að
vera saman allan sólarhringinn í skólan-
um og lesa fyrir próf. Þeir láta ekki tím-
ann fara til spillis.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
R
Ó
B
ER
T