Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 10
KOSNINGAR Bæði Sjálfstæðisflokk-
urinn og Samfylkingin fengu
fjóra þingmenn í Suðvesturkjör-
dæmi. Enginn
þingmaður kjör-
dæmisins missti
sæti sitt á þingi,
en þrír nýir koma
inn.
Alls voru
48.857 manns á
kjörskrá í kjör-
dæminu, en at-
kvæði greiddu
43.252 og var
kjörsókn því
88,5%. Auðir og
ógildir seðlar
voru 420. Athygli
vekur að meiri-
hluti þingmanna kjördæmisins er
konur, eða sex af ellefu. Það er
töluvert hærra hlutfall en á land-
inu í heild, þar sem aðeins 20 af
63 þingmönnum eru konur.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk
tæp 44,7% í gamla Reykjanes-
kjördæminu fyrir fjórum árum
og tapaði því rúmum 6 prósent-
um nú miðað við úrslitin þá.
Sjálfstæðismenn fengu samt sem
áður fimm þingmenn kjörna.
Bjarni Benediktsson, 33 ára lög-
fræðingur úr Garðabæ, náði
kjöri sem uppbótarþingmaður og
kemur nýr inn á þing.
Samfylkingin fékk tæp 33% í
kjördæminu, um 5 prósentum
meira en flokkurinn fékk fyrir
fjórum árum í gamla Reykjanes-
kjördæminu. Allir þrír þingmenn
flokksins í kjördæminu héldu
sætum sínum og Katrín Júlíus-
dóttir, 28 ára Kópavogsbúi, náði
auk þess kjöri.
Frjálslyndi flokkurinn bætti
verulega við sig miðað við kosn-
ingarnar fyrir fjórum árum.
Hann fékk 4,6% þá en í fyrradag
fékk hann 6,7%. Gunnar Örn Ör-
lygsson kemur nýr inn á þing fyr-
ir flokkinn. Hann komst inn sem
uppbótarþingmaður.
Vinstri grænir fengu svipaða
útkomu og í gamla Reykjanes-
kjördæminu, 6,2%. Það dugði
hins vegar ekki til þess að
flokkurinn næði manni inn.
Óhætt er að segja að Fram-
sóknarflokkurinn hafi unnið
varnarsigur í kjördæminu. Hann
fékk 14,9% og einn þingmann.
Páll Magnússon var nálægt því
að komast inn, en hann vantaði
rúm 300 atkvæði til þess.
trausti@frettabladid.is
10 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
Maður í gæslu:
Stakk fimm
með hnífi
LÖGREGLUMÁL Maður um tvítugt
var handtekinn á laugardagmorg-
un eftir að hann
stakk fimm
menn með hnífi
í Mosfellsbæ.
Fimmmenning-
arnir voru allir
fluttur á slysa-
deild Landspít-
ala. Enginn er í
lífshættu. Hníf-
urinn fannst.
Um tuttugu
voru saman
þegar stungumaðurinn réðst að
mönnunum. Talið er að hann hafi
þekkt gestina og átt það erindi eitt
að efna til leiðinda. Hann flúði en
náðist fljótt. Hann var undir
áhrifum áfengis en situr nú í
gæsluvarðhaldi. Málið er í rann-
sókn. ■
Þrír nýir þingmenn í
Suðvesturkjördæmi
Þjónustuver VÍS svarar fyrirspurnum í
síma 560 5000 eða á
upplysingar@vis.is. Vátryggingafélag
Íslands, Ármúla 3, 108 Reykjavík,
www.vis.is
Hvernig
röðum við saman
tryggingunum
okkar?
Mars 2003
Fjölskylduvernd VÍS
Hringdu í síma 560 5000
og fáðu sendan bækling um
fjölskylduvernd VÍS.
Lítið eða stórt, einfalt eða margbrotið
Fjölskylduhagir eru með ýmsu móti en allir eiga það þó sameiginlegt að þurfa
tryggingu við hæfi. Til að koma til móts við mismunandi þarfir býður VÍS mjög breitt
úrval trygginga fyrir fjölskyldur og heimili, því ætti enginn að vera ótryggður. Nýjasta
afurðin í þessum flokki er Festa, sem veitir víðtæka vernd á hagstæðum kjörum.
Það gildir einu hvort heimilið er lítið eða stórt, einfalt eða ríkulega búið. Í því eru
fólgin verðmæti fyrir hvern og einn ef til tjóns kemur. F plús, Festa, Kjarni,
Heimilistrygging og Innbústrygging eru tryggingar ætlaðar einstaklingum og
fjölskyldum. Bótasvið hverrar tryggingar og iðgjöld eru mismunandi þannig að allir
ættu að geta fundið tryggingu við sitt hæfi. Hafðu samband við VÍS og við metum
með þér hvað hentar í þínu tilviki.
Nánari upplýsingar um tryggingarnar er að finna í skilmálum þeirra.
Er eignatrygging fyrir innbú á heimili. Í henni er innbú tryggt gegn áhættu af ýmsu
tagi s.s. bruna, innbroti, ráni og þjófnaði svo fátt eitt sé nefnt.
Innbústrygging tryggir eingöngu innbú fyrir bruna, vatni og innbroti.
Ábyrgðartrygging einstaklings
Þessi trygging tekur til ábyrgðar gagnvart þriðja aðila ef einhver meðlimur í fjölskyldunni
veldur þriðja aðila tjóni sem felur í sér skaðabótaskyldu.
Málskostnaðartrygging
Tryggingin greiðir málskostnað vegna ágreinings í tilteknum einkamálum.
Innbústrygging Verð 6.053 kr. á árieða 504 kr. á mánuðiInnbústrygging *
Heimilistrygging
Verð 6.492 kr. á ári
eða 541 kr. á mánuðiTrygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings *
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
Trygging á innbúi Ábyrgðartrygging einstaklings Málskostnaðartrygging
VÍS fjölskylduvernd Trygging á innbúi
ÁRNI M.
MATHIESEN
Árni, sem var
fyrsti þingmaður
Reykjaneskjör-
dæmis, er nú
orðinn fyrsti þing-
maður Suðvestur-
kjördæmis.
Næstyngsti maðurinn til að ná kosningu á Alþingi:
Aðstoðarmaðurinn fer á þing
KOSNINGAR „Maður er náttúrlega
bara að átta sig á þessu núna,“
sagði Birkir Jón Jónsson
nokkrum klukkustundum eftir
að hann varð næstyngsti maður-
inn í Íslandssögunni til að ná
kjöri á Alþingi. 23 ára og 290
daga gamall er hann tæplega
fjórum mánuðum eldri en Gunn-
ar Thoroddsen þegar hann var
kosinn á þing fyrir Sjálfstæðis-
flokkinn 1934, 23 ára og 177 daga
gamall.
„Ég veit nokkurn veginn út í
hvað ég er að fara,“ segir Birkir,
sem hefur verið aðstoðarmaður
Páls Péturssonar félagsmálaráð-
herra undanfarin ár. „Ég hef
verið þingflokknum innan hand-
ar í ýmsum
málum þannig
að ég veit að
e i n h v e r j u
leyti út á hvað
þetta gengur.“
Eftir að
Birkir náði
fjórða sætinu
á lista Fram-
sóknar í Norð-
a u s t u r k j ö r -
dæmi í próf-
kjöri sagði
hann í viðtali
við Frétta-
blaðið að
stefnan væri sett á þingsæti.
Hann neitar því þó ekki að þing-
sætið hafi komið á óvart. „Það
var mikil sveifla með okkur í
síðustu vikunni. Þetta var að
snúast okkur þá í vil, miðað við
að fyrir mánuði mældumst við
með 18% í Norðausturkjördæmi
hjá Gallup.“ Gunnar Thoroddsen
var 36 ár á þingi og því spurning
hvort Birkir ætli að sitja við
Austurvöll jafn lengi: „Ég lofa
þér því nú ekki.“
Yngsti maðurinn til að taka
sæti á Alþingi er Sigurður
Magnússon. Hann var 23 ára og
167 daga gamall þegar hann kom
inn á þing fyrir Alþýðubandalag-
ið sem varamaður Magnúsar
Kjartanssonar. Hann sat aðeins
fimm daga í það skiptið. ■
BIRKIR JÓN JÓNS-
SON
Það þarf að fara 69 ár
aftur í tímann til að
finna eina dæmið um
mann sem var kosinn
á þing yngri en Birkir.
YNGSTU ÞINGMENN
ÍSLANDSSÖGUNNAR
Gunnar Thoroddsen
23 ára og 177 daga
Birkir Jón Jónsson
23 ára og 290 daga
Ragnar Arnalds
24 ára og 336 daga
Ragnhildur Helgadóttir
26 ára og 29 daga
Gunnlaugur Stefánss.
26 ára og 39 daga
Heimild: Alþingisvefurinn
FJÖLDI GSM-ÁSKRIFTA
Á ÍSLANDI
1998 78.600
1999 134.900
2000 187.600
2001 221.200
Svonaerum við
BÆJAR-
SKRIFSTOFUR
MOSFELLSBÆJAR
Suðvesturkjördæmi
14
,9
%
3
8
,4
%
6
,8
%
1
Þ
in
gm
.
0
,9
%
3
2
,8
%
6
,2
%
Úrslit kosninga 2003
Kjördæmakjörnir:
Árni M. Mathiesen D
Guðmundur Árni Stefánsson S
Gunnar I. Birgisson D
Rannveig Guðmundsdóttir S
Siv Friðleifsdóttir B
Sigríður A. Þórðardóttir D
Þórunn Sveinbjarnardóttir S
Þorgerður K. Gunnarsdóttir D
Katrín Júlíusdóttir S *
Uppbótarþingmenn:
Bjarni Benediktsson D *
Gunnar Örlygsson F *
Næstir inn:
Páll Magnússon B
Ásgeir Friðgeirsson S
* Nýir þingmenn
1 5 4