Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 18

Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 18
■ ■ FUNDIR  10.00 Daniel Moody frá Monash University í Ástralíu heldur fyrirlestur á vegum tölvunarfræðiskorar í stofu V-257 í húsi verkfræði- og raunvísindadeilda Háskóla Íslands, Hjarðarhaga 2-6. Moody segir í þessum fyrirlestri frá raunprófum á gæðum hugtakalíkana.  12.05 Fyrsti hádegisfundurinn af þremur um MBA-nám verður hald- inn í Háskólanum í Reykjavík í dag undir yfirskriftinni Er vit í nýsköpun? Inngangserindi flytur Hannes Smára- son, aðstoðarforstjóri DeCode. Að því búnu kynna fjórir MBA-nemendur, þau Magnús Orri Schram, Stefán Hjörleifsson, Guðbjörg Pétursdóttir og Ása Richardsdóttir, verkefni sín.  16.30 Ráðherra Evrópumála í sló- vensku ríkisstjórninni, Dr. Janez Pot- ocnik, verður gestafyrirlesari í Hátíðasal Háskóla Íslands í tilefni Evrópudagsins, sem var 9. maí síðastliðinn. Potocnik flytur fyrirlestur um reynslu Slóveníu af stækkun Evrópusambandsins frá sjónar- hóli lítils ríkis. Dr. Ólafur Þ. Harðarson, forseti félagsvísindadeildar, sér um fund- arstjórn.  20.00 Í tilefni alþjóðadags hjúkrun- arfræðinga boðar Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga til opins fundar á Grand Hótel í Reykjavík um HABL, heil- kenni alvarlegrar bráðalungnabólgu. Hugrún Ríkarðsdóttir fjallar um birting- arform, viðbrögð og horfur heilkennis- ins, Sigríður Antonsdóttir fjallar um smitleiðir og smitgát og Berglind Mika- elsdóttir fjallar um hjúkrun sjúklinga með heilkennið. ■ ■ TÓNLIST  20.00 Vortónleikar Tónlistarskól- ans í Reykjavík verða haldnir í Salnum í Kópavogi. Efnisskráin er fjölbreytt og aðgangur ókeypis.  20.00 Frumflutt verða tónverk eftir Ásu Briem, Ásrúnu Kondrup, Ólöfu Arn- alds, Hildi Guðnadóttur, Gest Guðnason, Ólaf Björn Ólafsson og Spunahóp tón- listardeildar á vorhátíð Listaháskóla Ís- lands í Hafnarhúsinu. ■ ■ SÝNINGAR  Fyrsta Vorhátíð Listaháskólans hófst um helgina með opnun útskriftarsýn- ingar myndlistar- og hönnunarnemenda í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsinu.  Gunnar Karl Gunnlaugsson sýnir ljósmyndir af um það bil 60 brúm á þjóðvegi 1 í Menningarmiðstöðinni Gerðubergi.  Sýning Þorbjargar Höskuldsdóttur í Listhúsi Ófeigs að Skólavörðustíg 5 stendur til 14. maí.  Í Hallgrímskirkju stendur yfir sýning á listvefnaði eftir Þorbjörgu Þórðardótt- ur. Verkin eru unnin í ull, hör sísal og hrosshár. Hugmyndir að verkum sínum sækir Þorbjörg til íslenskrar náttúru og vinnur úr þeim á óhlutbundinn hátt. Sýningin er opin daglega kl 9-17 og lýk- ur 26. maí.  Jóna Þorvaldsdóttir sýnir átta svart- hvítar ljósmyndir á Mokka við Skóla- vörðustíg. Myndirnar eru teknar í Sló- veníu , Bandaríkjunum, Portúgal og á Kúbu á árunum 2000 til 2002. Jóna vinnur myndirnar allar í höndum, bæði framköllun og stækkun.  Inger Helene Bóasson sýnir svart- hvítar ljósmyndir í Vínbarnum. Myndirn- ar kallar hún landslag líkamans.  Sýningin Handritin stendur yfir í Þjóðmenningarhúsinu. Sýningin er á vegum Stofnunar Árna Magnússonar. Einnig er þar sýning sem nefnist Ís- landsmynd í mótun – áfangar í korta- gerð. Upplýsingar um viðburði og sýningar sendist á hvar@frettabladid.is ekki síðar en sólarhring fyrir birtingu. 18 12. maí 2003 MÁNUDAGUR JENS HANSSON Ég á þrjá saxófóna en uppáhald-ið er Selmer-tenórsaxófónn sem ég eignaðist fyrir um 15 árum. Hann er frá 1959. Þetta hljóðfæri hékk lengi vel uppi á vegg hjá kunningja mínum og það þurfti svolitla þrjósku og þraut- seigju til að fá hann keyptan. En það hafðist og ég fékk hann á 25 þúsund krónur. Þetta mun vera Rollsinn í hópi saxófónanna, það er þessi týpa. Kunningi minn vissi reyndar hvað hann hafði í hönd- unum, en spilaði ekkert á hann og taldi hljóðfærið betur komið hjá mér. Þessi saxófónn hefur reynd- ar verið í skralli lengi en svo var það fyrir ári að ég tók mig til, náði í hamar og sló hann svoldið til. Síðan hefur hann verið ferlega góður. Það þurfti að nota almenni- legt verkfæri.“ Hljóðfæriðmitt 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 TOPP 20 X977 - 20 VINSÆLUSTU LÖGIN Á X-977 VIKA 19. Botnleðja ÉG ER FRJÁLS Staind PRICE TO PAY Zwan LYRIC Radiohead THERE THERE The White Stripes SEVEN NATION ARMY Marilyn Manson MOPSCENE Guano Apes YOU CANT STOP ME Linkin Park FAINT Dáðadrengir ALLAR STELPUR ÚR AÐ OFAN Beastie Boys IN A WORLD GONE MAD Queens of the Stone Age GO WITH THE FLOW The Dandy Warhols WE USED TO BE FRIENDS Transplants DJ DJ Pearl Jam LOVE BOAT CAPTAIN Hed(pe) BLACKOUT Trapt HEADSTRONG Placebo THE BITTER END Zack de la Rocha MARCH OF DEATH Ozzy Osbourne MAMA I’M COMING HOME Maus LIFE IN A FISHBOWL Vinsælustulögin hvað?hvar?hvenær? 9 10 11 12 13 14 15 MAÍ Mánudagur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.