Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 12.05.2003, Blaðsíða 29
GLÆSILEG HÆÐ Í SIGTÚNI Mjög glæsileg 3-4 herbergja sérhæð með bílskúr. Íbúðin, sem er á fyrstu hæð, hefur nýlega verið mikið og mjög skemmtilega endurnýjuð. Tvö stór svefnherbergi og tvær saml. stofur. Flísar á baði og forstofu, parket á öðrum gólfum. Nýjar innréttingar og tæki í eldhúsi og á baði. Hans Gústafsson fasteignamiðlari RE/MAX veitir upplýsingar í síma 590 9516. Hans Gústafsson 590 9516 / 865 2474, hans@remax.is Heimilisfang: Sigtún Stærð eignar: 117 fm Bílskúr: 31 fm Byggingarár: 1947 Brunabótamat: 14,5 millj. Verð: 17,8 millj. REMAX Þingholt - Sigurbjörn Skarphéðinsson - löggiltur fasteignasali STÓR HÚSEIGN VIÐ HAFNARBRAUT Húsnæðið er í dag tvær íbúðir auk ljósmyndastúdíós, samtals 312 fm. Því hefur mikið verið breytt að undanförnu og til eru samþykktar teikning- ar að frekari breytingum. Þetta er spennandi eign sem býður upp á mikla möguleika og verðið er einstaklega gott. Minni íbúðin er 65 fm en sú stærri yfir 150 fm og stúdíóið er um 90 fm. Minnsta lofthæð er tæpir 3 metrar en sú mesta rétt um 4 metrar. 3-4 bílastæði tilheyra þessari eign. Hans Gústafsson fasteignamiðlari RE/MAX veitir upplýsingar í síma 590 9516. Hans Gústafsson 590 9516 / 865 2474, hans@remax.is Heimilisfang: Hafnarbraut Stærð eignar: 312 fm Byggingarár: 1965 Brunabótamat: 14.5 millj. Verð: 29,8 millj. PARHÚS AUK BÍLSKÚRS VIÐ AUSTURBRÚN Stórglæsilegt parhús sem er að hluta til á tveimur hæðum. Á neðri hæð er park- etlögð svefnherbergisálma með tveimur herbergjum, baði og stofu, þaðan er gengið út á mjög skjólgóðan sólpall. Hinn hluti neðri hæðarinnar er flísalgður og skiptist í stórt og gott eldhús með upprunalegri Alno-eldhúsinnréttingu og borð- krók. Þá er á neðri hæð góð borðstofa og vinnuherbergi. Efri hæðin er með ný- legu gegnheilu eikarparketi og skiptist í stofu, stórt svefnherbergi með góðu skápaplássi og nýlega uppgert baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf. Annar hluti þaksins er tyrfður en hinn er með steinskíf- um. Þetta er glæsileg eign í góðu hverfi. Hans Gústafsson 590 9516 / 865 2474, hans@remax.is Heimilisfang: Austurbrún Stærð: 212 fm Byggingarár: 1983 Verð: 26,8 millj. HESTHÚS Á HEIMSENDA Eitt GLÆSILEGASTA hesthúsið á Heimsenda er til sölu. Um er að ræða 14 hesta hús sem er mjög vel staðsett. Rúmgott og vel skipulagt hús þar sem vel fer um bæði hesta og menn. Mjög góðar stíur klæddar með plastborðum og góðum fóð- urgangi. Veggir eru klæddir að ofanverðu með mjög fallegum landslagsmyndum sem gefa húsinu skemmtilegan hlýleika og tengsl við náttúruna. Kaffistofa, sal- erni og hnakkageymsla eru klædd með panil og fallegar flísar eru á gólfi. Sér rampur fylgir húsinu og stór geymsla er í kjallara með sér inn- gangi. Gott gerði er við húsið. SJÓN ER SÖGU RÍKARI. Guðrún Elín Guðlaugsdóttir fasteignamiðlari RE/MAX sýnir eignina. Guðrún Elín Guðlaugsdóttir 590 9508 / 820 9508, gudrune@remax.is Heimilisfang: Heimsendi Stærð eignar: 178 fm Byggingarár: 1997 Brunabótamat: 10,1 millj. Áhvílandi: 2.8 millj. Verð: 11.9 millj. LYNGRYMI - 112 RVK Vandað einbýlishús á tveim hæðum með innbygðum bílskúr. Húsið stendur á friðsælum stað innst í botnlanga , góð og gróin lóð . Komið er inn í flísalagða forstofu en þaðan er gengt í snyrtingu og innangengt í bílskúr.Rúmgott eldhús með góðri innréttingu er á neðri hæð og þaðan gengt í fallega borðstofu með útgangi út í garð.Stofan er björt og gert er ráð fyrir arni, fallegir gluggar eru í setustofu og opið er milli hæða .Á efri hæð eru fjögur góð svefnherbergi, sjónvarpshol , stórt baðherbergi, þvottahús og bjartur gangur með fallegum gluggum. Vandaðar innrétt- ingar og gólefni eru í húsinu. Virkilega falleg og velskipulögð eign teikn- uð af Benjamín Magnússyni arkitekt. GuðrúnElín Guðlaugsdóttir fasteignamiðlari RE/MAX sýnir eignina. Guðrún Elín Guðlaugsdóttir, 520 9508 / 820 9508, gudrune@remax.is EIGNIR ÓSKAST. Óska eftir eignum í Hafnarfirði og nágrenni. Er með kaupendur að 2ja, 3ja og 4ra herb íbúðum. Gyða Gerðarsdóttir. 590-9510 / 820-9510, gyda@remax.is Heimilisfang: Lyngrimi Stærð eignar: 217 fm Bílskúr: 25.2 fm Byggingarár: 1990 Brunab.mat: 27 millj. Áhvílandi: 8 millj. Verð: 27.5 millj.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.