Fréttablaðið - 12.05.2003, Page 38
Handverkstæðið Ásgarður hef-ur á tíu starfsárum sínum
verið verndaður vinnustaður þar
sem sköpunarmáttur starfsmanna
hefur verið virkjaður. Í desember
árið 2001 brann húsnæði Ásgarðs.
„Þetta hafði gríðarleg áhrif á
starfsemina. Það sem við erum að
byggja upp er öryggi sem fæst
ekki annar staðar. Óöryggið eftir
brunann olli mikilli spennu og
gerði starfið erfiðara,“ segir Þór
Ingi Daníelsson, forstöðumaður
Ásgarðs. Hann segir að þar við
hafi bæst að starfsmenn hafi ver-
ið tilfinningalega tengdir gamla
staðnum. „Við vorum búin að
byggja þetta upp og áttum mikið í
húsnæðinu. Við erum með skap-
andi starf og höfum tilhneigingu
til að líta á björtu hliðarnar.“
Í kjölfar brunans fékk verk-
stæðið inni hjá Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi í húsnæði gamla
Kópavogshælisins. Nú hefur
lausn fengist á húsnæðisvanda
Ásgarðs. Handverkstæðið flytur í
Álafosskvosina í Mosfellsbæ.
„Það er mikil tilhlökkun í mann-
skapnum.“ Þór Ingi segir um-
hverfið í Álafosskvosinni
skemmtilegt. Bæði eru þar marg-
ir listamenn sem lifa þar og starfa
auk þess sem þar er búð þar sem
leikföng Ásgarðs yrðu til sölu.
„Svo er hér mjög falleg náttúra og
allt umhverfi mjög skemmtilegt.
Þetta er andrúmsloft sem er okk-
ur mjög að skapi.“
Húsnæðið verður afhent að
fullu síðla sumars. „Þá ætlum við
að halda innflutningsveislu og
bjóða öllum sem koma vilja,“ seg-
ir Þór Ingi. Hugmyndafræðin að
baki starfinu á rætur í kenningum
Rudolfs Steiner. „Við lítum svo á
að fötlun sé ekki hefting heldur
möguleiki. Við reynum að vinna
út frá því og virkja þá möguleika
sem búa í fötluninni.“
haflidi@frettabladid.is
38 12. maí 2003 MÁNUDAGUR
Þetta er allt of stór spurning fyr-ir mann sem er með allt á
hvolfi,“ segir Valgarður Guðjóns-
son aðspurður hver hann sé – getur
þó upplýst um eitt og annað er
snýr að hinu ytra. Til dæmis að
hann sé Kópavogsbúi og eigi ættir
að rekjatil Dalvíkur og Siglufjarð-
ar.
Valgarður hefur verið
tölvugúrú kosningasjónvarpsins
nánast svo lengi sem elstu menn
muna. „Þetta kom eiginlega til fyr-
ir tilviljun. Í kosningum 1986 var
ég starfandi hjá fyrirtæki sem
heitir VKS. Sá sem átti að annast
tölfræðina í kosningasjónvarpinu
veiktist. Ég hljóp í skarðið og hef
verið þarna síðan.“ Eftir stúdents-
próf tók Valgarður nokkra kúrsa í
tölvunarfræði við HÍ en þá kallaði
vinnumarkaðurinn. Nú rekur hann
eigið fyrirtæki sem heitir Kuggur
– og býr í Breiðholtinu með konu
sinni, þremur strákum og einni
tengdadóttur. Valgarður er einkum
þekktur fyrir að vera söngvari
p ö n k h l j ó m s v e i t a r i n n a r
Fræbbblanna, en áhugamál hans
eru margvísleg og ekki mjög... tja,
pönkaraleg. „Já, fótbolti er einnig
áhugamál. Við hjónin gerum
svolítið af því að spila brids og tök-
um þátt í stöku keppni. Svo hef ég
látið plata mig í að tefla fyrir
Hrókinn,“ segir Valgarður. Þó
kosningarnar hafi skipað veiga-
mikinn sess hjá honum lendir Val-
garður oft og iðulega í að gleyma
því að kjósa. „Það er skömm að
þessu.“ Og hann forðast jafnframt
að gefa upp hvað hann myndi
kjósa. „Ég vil forðast að gefa færi
á mér svo menn séu ekki að lesa
eitthvað annarlegt í tölfræðilega
túlkun mína.“ ■
Persónan
VALGARÐUR GUÐJÓNSSON
■ er sennilega þekktastur fyrir að vera
söngvari Fræbbblanna en er einnig alger-
lega ómissandi þegar kosningar eru annars
vegar. Sjálfur gleymir hann oftast að kjósa.
Imbakassinn
Og okkur hefur borist pönk úr Kópavogi...
■ Leiðrétting
Af gefnu tilefni skal tekið fram að
Ingibjörg Sólrún er ekki alþingis-
maður. Ekki heldur borgarstjóri.
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Birkir Jón Jónsson.
Ásgeir Sigurvinsson.
Bjarni Sigurbjörnsson.
Kynning á matsskýrslum
Landsvirkjun kynnir skýrslur um mat á umhverfisáhrifum virkjana í Þjórsá við
Urriðafoss og Núp í opnu húsi í Brautarholti á Skeiðum, að Laugalandi í Holtum
og í stjórnstöð Landsvirkjunar í Reykjavík.
Í Brautarholti á Skeiðum þann 13. maí frá kl. 14 til kl. 22
Að Laugalandi í Holtum þann 14. maí frá kl. 14 til kl. 22
Í stjórnstöð Landsvirkjunar við Bústaðaveg þann 15. maí frá kl. 14 til kl. 20
Í opnu húsi verða kynntar niðurstöður mats á umhverfisáhrifum.
Einnig gefst tækifæri til að ræða við fulltrúa Landsvirkjunar og ráðgjafa fyrirtækisins.
Virkjanir í Þjórsá við Urriðafoss og Núp
og breytingar á Búrfellslínum 1 og 2
Matsskýrslur ásamt sérfræðiskýrslum eru aðgengilegar á heimasíðu Landsvirkjunar: www.lv.is
!
""
#
$
"
$
"
&
$ $ $$
"
' '
(
$
)'
!!!
"
Rollur, já?
Hvað er svo
aðaltrixið hjá þér?
VALGARÐUR GUÐJÓNSSON
Pönkarinn sem lenti í kosningasjónvarpinu
fyrir tilviljun og hefur ílengst þar.
Skapandi vinna á nýjum stað
FÖTLUN ER TÆKIFÆRI
Þór Ingi Daníelsson leiðir bjartsýnan hóp á vernduðum vinnustað. Hann er ánægður með
nýtt húsnæði í Álafosskvosinni í Mosfellsbæ.
Vinnustaður
■ Starfsemi handverkstæðisins Ásgarðs
varð fyrir áfalli þegar húsnæði þess
brann. Þar vinnur bjartsýnt fólk sem
heldur ótrautt áfram.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/
RÓ
B
ER
T
Elda á tvöhundruð
gráðum og þvæ á
sextíu!