Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 4
4 17. maí 2003 LAUGARDAGUR Kom brúðkaup forseta Íslands þér á óvart? Spurning dagsins í dag: Ætlar þú á leik í Íslandsmótinu í knatt- spyrnu í sumar? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 43,9% 56,1% Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Bráðalungnabólgan Við gerum betur Njóttu þess að ferða st um landi ð á góð um bí l Avis dagsleiga, helgarleiga, vikuleiga. Eyddu minna í bílinn en meira í sjálfan þig og þína. Kynntu þér tilboð Avis á bílaleigubílum. Hringdu í Avis sími 5914000 Knarrarvogur 2 – 104 Reykjavík – www.avis.is * Opel Corsa, innifalið 50 km, vsk. og trygging Aðeins2.850á dag * KENYATTA FLUGVÖLLURINN Öll bresk flug frá Afríkuríkinu hafa verið kyrrsett. Ótti við hryðjuverk í Keníu: Breskar flugvélar kyrrsettar AFRÍKA, GUARDIAN Fimmtán hund- ruð breskir ferðamenn eru strandaglópar í Keníu þar sem bresk stjórnvöld stöðvuðu öll flug breskra flugfélaga eftir að fregn- ir bárust um hugsanleg hryðju- verk í landinu. Herma heimildir að Fazul Abdullah Mohammed, fé- lagi í al Kaeda og eftirlýstur vegna sprengingar bandaríska sendiráðsins í Nairóbí árið 1998, sé í landinu og hyggi á frekari hryðjuverk. Ríkisflugfélag Keníu hefur boðist til að hjálpa til með að koma farþegum aftur til Bret- lands en því verið tekið fálega enn sem komið er. Fulltrúi breskra stjórnvalda í Keníu, Edward Clay, hefur beðið fólk afsökunar á ástandinu en seg- ir að taka beri allar tilkynningar um yfirvofandi hættu alvarlega og að öryggi farþega og breskra þegna gangi fyrir. ■ Ísafjörður: Handteknir með fíkniefni LÖGREGLUMÁL Tveir karlmenn um tvítugt voru handteknir á Ísafirði þegar kannabisefni fundust á öðr- um þeirra eftir að bíll sem þeir voru á var stöðvaður á ellefta tím- anum á fimmtudagskvöld. Í við- bót fannst áhald sem greinilega hafði verið notað til hassreykinga að sögn lögreglu. Mönnunum var sleppt að loknum yfirheyrslum og telst málið upplýst. Í þessu sambandi má geta þess að lágmarkssekt við fíkniefna- broti nemur 25.000 krónum. ■ HERTAR REGLUR Á FLUGVÖLLUM Flugvallayfirvöld í Suðaustur- Asíu hafa ákveðið að mæla lík- amshita allra flugfarþega á svæðinu eigi síðar en frá og með 15. ágúst næstkomandi. Ennfrem- ur verða farþegar látnir fylla út samræmd eyðublöð með upplýs- ingum um heilsufar. Komist var að samkomulagi um að allir sem sýndu einkenni HABL yrðu settir í sóttkví og fengju aðhlynningu. ÁRANGUR NÆST Í SINGAPÚR Yf- irvöld í Singapúr vonast til þess að Alþjóðaheilbrigðisstofnunin muni lýsa því yfir um helgina að tekist hafi að stöðva útbreiðslu bráðalungnabólgunnar þar í landi. Forsætisráðherrann hvatti þó landsmenn til að vera áfram á varðbergi. Líkti hann sjúkdómn- um við hryðjuverk sem ávallt gætu leynst handan við hornið. REFSINGAR HAFNAR Yfirvöld í Kína eru byrjuð að refsa fólki sem brotið hefur þær reglur sem settar hafa verið til þess að hefta útbreiðslu bráðalungnabólgunnar. Kona var dæmd í árs fangelsi fyrir að leiða hóp mótmælenda sem vann skemmdir á byggingu sem taka átti undir sóttkví. Kín- versk yfirvöld hafa jafnframt frestað öllum ættleiðingum til annarra landa um óákveðinn tíma. MILLJÖRÐUM VARIÐ TIL AÐ LAÐA AÐ FERÐAMENN Borgaryfirvöld í Toronto hafa ákveðið að verja sem nemur um 12,7 milljörðum íslenskra króna í alþjóðlega aug- lýsingaherferð til að auka straum ferðamanna til borgarinnar. Út- breiðsla HABL í Toronto varð til þess að fæla frá þúsundir ferða- manna. Nú hefur tekist að hefta útbreiðslu sjúkdómsins í borg- inni. YFIR 600 LÁTNIR Heilkenni alvar- legrar bráðalungnabólgu hafa orðið að minnsta kosti 613 manns að bana um heim allan. Yfir 7.700 manns hafa greinst með sjúk- dóminn en mikill meirihluti þeirra hefur nú þegar náð sér að fullu. SLYS Tvennt var í flugvél sem koll- steyptist í lendingu á flugvellin- um í Stykkishólmi. Fólkið, einka- flugmaður og farþegi, var flutt á heilsugæslustöðina í Stykkishólmi en reyndist ekki vera alvarlega slasað þótt nokkuð lemstrað væri. „Óhapp varð í lendingu eins hreyfils Cessna vélar með þeim afleiðingum að hún lenti á nefinu og kollsteyptist,“ segir Ólafur Guðmundsson, yfirlögregluþjónn í Stykkishólmi. Það tók Rannsókn- arnefnd flugslysa nokkurn tíma að koma á staðinn og gætti lög- reglan vélarinnar á meðan. „Við lukum vettvangsrannsókn í gær- kvöldi og að því loknu var vélin flutt til Reykjavíkur þar sem rannsókn verður haldið áfram. Vélin reyndist töluvert skemmd. Fólkið hafði komið frá Reykjavík og var í útsýnisflugi yfir Snæ- fellsnesi,“ segir Þormóður Þor- móðsson, formaður Rannsóknar- nefndar flugslysa. ■ HEILBRIGÐISMÁL Fulltrúi sjúklinga er ný staða á Landspítala - há- skólasjúkrahúsi og hefur Ingi- björg Pálmadóttir, fyrrum heil- brigðisráðherra, verið ráðin til starfsins. Hlutverk hennar er að veita sjúklingum og aðstandend- um þeirra stuðning, koma málefn- um þeirra á framfæri og beina umkvörtunum þeirra í réttan far- veg til úrlausnar. Ingibjörg segir starfið leggjast mjög vel í sig og fyrstu dagana hafi henni fundist eins og hún hafi alla tíð verið í þessu starfi. „Ég hef unnið að heilbrigðismálum síðan ég var 18 ára með einum eða öðrum hætti. Því er ekki neitt sem komið hefur á óvart.“ Hún segir að viðfangsefni þessara fyrstu daga hafi komið sér afar kunnuglega fyrir sjónir. „En ég er nú bara rétt að fóta mig í starfinu,“ segir Ingibjörg. Hún segist ekki í vafa um að þetta eigi eftir að koma sjúkling- um að gagni enda fólk aldrei við- kvæmara en þegar það er sjúkt. Þeir sem vilja nýta sér þjón- ustu fulltrúa sjúklinga geta haft samband í síma 543 1100. Þjónust- an er veitt mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 9:00 til 14:00 eða eftir nánara samkomu- lagi. ■ Flugslys í Stykkishólmi: Tvö slösuðust þegar flugvél kollsteyptist VIÐSKIPTI Það var lítið unnið meðal æðstu yfirmanna íslenskra fyrir- tækja í gær. Ástæðan var sú að nánast allir forkólfar atvinnulífs- ins hlýddu á Jack Welch, fyrver- andi forstjóra General Electric, þar sem hann svaraði spurning- um gesta á Hotel Nordica. Welch var staddur hér á landi í boði Baugs og Kaupþings. Welch er goðsögn í fyrirtækja- heiminum enda vöxtur General El- ectric undir hans stjórn gríðarlegur. Hann er öflugur talsmaður hnatt- væðingar í við- skiptum og stjórn- unarstíll hans er persónulegur. Undir hans stjórn störfuðu á fjórða hundrað þúsund starfs- menn. „Íslensk fyrirtæki eru lítil og meðalstór. Stjórnendur þeirra hafa enga afsökun fyrir því að komast ekki í snertingu við hvern einasta starfsmann.“ Hann segir mikilvægt að stjórnendur komi því til skila að þeim sé annt um starfsmenn sína. Welch leggur mikið upp úr liðsheild og segist hiklaust hafa látið góða starfs- menn fjúka hafi þeir ekki fylgt stefnu liðsheildarinnar. „Láti maður menn komast upp með það að vinna gegn stefnunni, þótt þeir skili árangri, mun á endanum enginn taka mark á manni.“ Hann telur Íslendinga ekki eiga erindi í Evrópusambandið. „Ég veit ekki mikið um Ísland, ég þekki tölur um þjóðarframleiðslu á mann og ég sé brosin á andlit- um ykkar. Ég veit ekki hvað Brussel gæti gert fyrir ykkur.“ Welch er kunnur fyrir andstöðu sína við skrifræði og lagði mikið upp úr því að einfalda samskipt- in. Hann segir smæðina ekki þurfa að þvælast mikið fyrir mönnum. „Kosturinn við stór fyr- irtæki er að þau hafa efni á að gera stór mistök.“ Miklir mögu- leikar séu fyrir hendi í íslensku efnahagslífi. „Þið hafið áhugann og menntunina. Hér hef ég hitt marga forstjóra banka og stór- fyrirtækja sem eru innan við fer- tugt. Þið eruð að byggja upp öfl- ugt lið sem getur sótt fram. Stoð- ir efnahagslífsins á Íslandi eru það traustar að þið ættuð að hafa úthaldið til að sækja fram í al- þjóðlegum viðskiptaheimi. Ég er bjartsýnn fyrir ykkar hönd ef þið sækið fram á grundvelli vits- muna, þekkingar og hæfileika.“ haflidi@frettabladid.is INGIBJÖRG PÁLMADÓTTIR Hún er fyrrum heilbrigðisráð- herra en hefur nú tekið að sér að móta nýtt starf innan Landspítala. Landspítali - háskólasjúkrahús: Fyrrum ráðherra mótar starf fulltrúa sjúklinga Góðir möguleikar Íslands að ná langt Jack Welch er goðsögn í viðskiptaheiminum. Hann talar enga tæpitungu og leggur mikið upp úr liðsheild og persónulegri stjórnun. Forkólfar ís- lensks atvinnulífs fengu í gær tækifæri til þess að spyrja þennan viðskipta- snilling spjörunum úr. Mann sem tuttugufaldaði markaðsvirði General Electric á jafn mörgum árum. KONUNGUR FORSTJÓRANNA Jack Welch náði einhverjum glæsilegasta árangri forstjóra með stjórnun sinni hjá General Electric. Forkólfar íslensks viðskiptalífs fengu tækifæri til að spyrja hann um stjórnlistina í gær. Kaupþing og Baugur buðu Welch til landsins. ■ Kosturinn við stór fyrirtæki er að þau hafa efni að gera stór mistök. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.