Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 27
Má í raun segja að ekki sé síður afrek að komast á þennan lista með ákefðina og viljann að vopni auk sérstæðra hæfileika. Við erum að tala um ólíkindatólin í ís- lenskri dægurlagatónlist. Á þessu sviði dreifðust at- kvæðin mjög enda af nægu að taka líkt og einn álitsgjafanna orð- aði það. Engu að síður er Megas ótvíræður sigurvegari í þessum flokki með fjórar tilnefningar. Um Megas er meðal annars sagt að hann sé alíslenskur og orginal: „Alltaf skemmtilegt þegar samfé- lagið öðlast nýja vídd í listum.“ Og: „Nördabarn úr Austurbæjar- skóla sem hefði átt að verða efna- fræðingur en varð poppari af því hann hreifst af sterkum tíðar- anda.“ Þrír popparar deila með sér öðru sætinu: Birgitta Haukdal, Geir Ólafsson, Einar Örn Bene- diktsson. Nokkrir lýstu yfir því að það hafi komið sér verulega á óvart að Birgitta hafi orðið þessi stjarna sem hún varð og Einar Örn vildi ekki svíkja sjálfan sig auk þess sem hann er sagður þverbrjóta allar reglur en virki samt einhvern veginn. Og þeir sem nefndu Geir höfðu ríka þörf fyrir að gera grein fyrir atkvæði sínu: „Það má kannski segja að það hafi verið óðs manns æði að ráðast í sveiflu-ballöðu plötu að hætti Dean og Frank, þar sem allt er sungið í falsettu en bara um- slag „Á minn hátt“ gerir hana þess virði. Meir Geir!“ Og: „Geir Sópranó er „one of a kind“ og einn af örfáum sem hafa bara gefið út eina plötu en samt komið fram í hverjum einasta sjónvarps- og út- varpsþætti, fyrir utan Dánar- fregnir og jarðarfarir.“ Kann ekki að syngja, en samt frábær... Aðrir sem nefndir voru eru Pétur W. Kristjánsson („Kom á óvart þegar hann sleppti bassan- um og tók um míkrófóninn. Ég er enn að furða mig á því.“) og Björn Jörundur („Örugglega eina rödd sinnar tegundar í heiminum og þó víðar væri leitað.“) Fleiri óvæntar stjörnur á sviði íslenskrar dægurtónlistar eru Hreinn Laufdal, („Hann hefur ekkert sem einkennir dægurlaga- stjörnu en nýtur þó velgengni!“) Björk, Jón Kr. í Falcon („Frjáls eins og fuglinn hefur gert hann ódauðlegan í íslenskri tónlistar- sögu. Sannur karakter.“), Jónsi í Sigurrós. („Kann ekki að syngja en er samt sem áður frábær söngvari!“), Gunnar Jökull Hákon- arson, Ómar Ragnarsson („Hann er svo ógeðslega hress, fyndinn og kátur. Fyllti æsku mína af gleði, gríni og hressleika. Og svo hvorki reykir hann né drekkur og getur samt verið hann sjálfur.“), Dr. Gunni („Hann er svona hálffalsk- ur alltaf en hefur eitthvað, húmor, og mörg ágæt lög sem gera hann að poppstjörnu.“) og Guðmundur Jónsson óperusöngvari. („Hann hefur sungið nokkur dægurlög og er alveg ótrúlega flottur.“) jakob@frettabladid.is 21LAUGARDAGUR 17. maí 2003 FYRIR GARÐEIGENDUR SEM VILJA GÓÐ VERKFÆRI SLÁTTUORF GARÐSLÁTTUVÉLAR GARÐSLÁTTUVÉLARSLÁTTUORF HEKK KLIPPUR HANDSLÁTTUVÉLAR REYKJAVÍK: Ármúla 11 - Sími 568-1500 AKUREYRI: Lónsbakka, Glæsibæjarhreppi - Sími 461-1070 ÞAR SEM GÓÐU GARÐVERKFÆRIN FÁST Létt og lipur. Fyrir sumar- bústaðinn og heimilið Sú græna góða. 4,75 hp - 6,5 hp Sú mest selda. 3,5 hp - 6 hp Fyrir þá sem vilja „alvöru“ hekkklippur „Bumbubaninn“ sem bregst ekki Hörkuorf fyrir alla sláttumenn Bó, Bjöggi eða bara Björgvin er traustur í 4. sætinu með 50 stig og 8 tilnefningar. Menn hafa eitt og annað um hann að segja: „Engum líkur og vex frekar en hitt með árunum.“ „Stórkostleg rödd, gríðarlega góður ballöðusöngvari. „Það er algjör skylda að hafa hann á þessum lista. Eina alvöru stjarna ís- lenskrar dægurtónlistar.“ „Ðe Lónlí Blú Bojs er besta hljómsveit sem hefur verið stofnuð á Íslandi. Og úr því maður má bara nefna fimm, þá verður hann að standa fyrir hina strákana. Heiðarlegur og einlægur söngvari.“ „Mér þykir alltaf vænt um hann, þó að hann hafi staðnað og hafi ekki leitast við að þroskast, þá syngur hann vel. Hann er bara Bó.“ „Þrátt fyrir „stærri en lífið“ persónu- leika má ekki gleymast að Bó kann vel að syngja. „Skýið“ er gott dæmi um hæfileika Björgvins.“ „Bó er frá- bær söngvari. Skýrmæltur, maður nær alltaf textanum.“ 4. Björgvin Halldórsson Bubbi kóngur hef- ur Egil Ólafs naumlega í þessari könnun með 40 stig og 5 tilnefning- ar. Bubbi og hans ætt öll má vel við una og er traust staða hans og Hauks frænda kannski til marks um að tónlistin liggi í ættum. En þetta er meðal þess sem menn vilja segja um gúanórokkarann og söngva- skáldið Bubba: „Fjölhæfur og karakt- ermikill söngvari með flotta tækni og fjögurra áttunda raddsvið, jafnvígur á alla stíla en slær þó flestum við í grenjandi rokki, sem er gott. Hefur hins vegar undanfarin ár nær ein- göngu reynt á röddina í boxlýsing- um. Mætti fara að taka aftur upp boxhanskann sem söngvari.“ „Rödd sem fær endalaust nýtt líf. Endurnýj- ar sig reglulega einhvern veginn.“ „Ekki besta röddin, ekki besta radd- beitingin en hann tekur hlutina með þeim stæl sem enginn gerir.“ „Gríðar- lega öflugur söngvari sem er í góðu sambandi við sín yrkisefni.“ Bubbi Morthens Egill er klemmdur á milli Bjarkar og Bubba með 36 stig og 7 tilnefningar. „Ég verð að nefna hann. Alhliða söngvari með mikinn sjarma og túlkunarhæfi- leika.“ „Ekki spurning í mínum huga. Það sem hann gerði milli ‘75 og ‘80, það er með ólíkindum hversu fjölbreytnin er mikil. Fjölhæfur um- fram allt og þessi túlkun. Margir dægurlagasöngvarar sem eru að syngja og segja ekki neitt. Egill kemur þessu lengra.“ „Hann sam- einar það tvennt að búa yfir gífur- legri tækni og færni um leið og það er alltaf einhver djúpstæður fílíngur í gangi. Ég hallast reyndar að þeim sem hafa rétta tilfinningu frekar en að tæknin sé mikil.“ „Spannar ótrú- legan skala í músíkinni.“ „Hefur gert þetta allt saman og á miklu meira eftir.“ „Það er eitt sem er mjög skemmtilegt með Egil, hversu mikið kamelljón hann er í söngstíl og virð- ist geta sungið hvað sem er.“ 6. Egill Ólafsson Björk er jöfn Agli að stigum, 36 stig, en aðeins 5 til- nefningar þannig að staða Egils er talsvert traustari. „Hún er stjarna Ís- lands og samkvæm sjálfri sér í öll þessi ár.“ „Hún er söngfuglinn sem flaug sínar eigin leiðir, andar öðru vísi en aðrir og syngur með sínu nefi. Það er vel.“ „Hún er alveg einstök og ekki hægt að líta framhjá henni. Hvernig hún notar þetta verkfæri sitt og sýnir gríðarlegan fjölbreytileika. Nafn hennar mun standa eftir að all- ir eru búnir að gleyma Snorra Sturlu- syni (rithöfundi).“ „Fyrst og síðast röddin sem skóp hennar velgengni.“ 7. Björk Sennilega kemur mörgum skemmti- lega á óvart að sjá Hallbjörgu í þessu sæti en hún nýtur greinilega vinsælda furðu margra. Hallbjörg er með 81 stig og þrjár til- nefningar. „Fyrsti alvöru íslenski söngvarinn með ófalsaða tilfinningu fyrir rokki. Alhliða söngvari með frumlegan karakter og ótrúlega sér- kennilega og „ljóta“ rödd og óvenju faglega og fjölbreytilega beitingu.“ „Hún er einstök með sína dimmu rödd. Svona rödd heyrist aldrei aft- ur.“ „Besta söngrödd sem heyrst hef- ur í íslenskri dægurtónlist. Lag með henni var bannað í Ríkisútvarpinu. „Ég hef elskað þig frá okkar fyrstu kynnum.“ Hún var með svo djúpa rödd og það hljómar líkt og karl- maður sem þá þótti jaðra við sam- kynhneigð. Hallbjörg var misskilin.“ 8. Hallbjörg Megas telst bæði með þeim betri sem og er hann tal- inn sérstæður kvistur í dægurtón- listinni. Hann er með 16 stig og þrjár tilnefningar. Og um hann hafa menn þetta að segja: „Menn eiga eftir að fatta það hvað hann er góð- ur, þó síðar verði. Ótrúlega blæ- brigðarík söngrödd sem er fyrst og fremst að túlka texta fremur en að blása eintómu lofti út.“ „Hann er með sínar eigin leiðir og þær virka. Léleg rödd, líkt og Dylan.“ „Textar og rödd falla saman í heild sem er ein- stök og órjúfanleg.“ 9. Megas Páll má vel við una sem yngsti maðurinn á listan- um. Hann er með 14 stig og fjórar tilnefningar. „Góður í ballöðum og ennþá betri í rokki.“ „Hefur einn mesta fílinginn fyrir þessu og er því semsé einn stærsti „fíllinn“ í brans- anum. Mætti minnka endurvinnslu. Væri gaman að hann hefði jafn góðan og óbrigðulan fíling fyrir lagavali og hann hefur fyrir söng.“ „Guðdómleg rödd og næmni. Mjög breið rödd, allt frá harðasta rokki út í líflegasta gospel.“ „Á svo sem fá listræn prik inni nú um stundir en sá kann að syngja. Ef hann hættir þessum peningaplötum sínum og fer að syngja frá hjartanu aftur mun honum farnast vel. Guð blessi Palla Rós.“ 10. Páll Rósinkrans 5.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.