Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 22
9.00-9.45 Þingsalur 201 @School Kerfið er vefumsjónarkerfi, þróað í Java, fyrir ATS-skóla flugumferðarsviðs og heldur m.a. utan um námskeið, fög, kennara, nemendur og stundaskrár fyrir skólann. Markmiðið með kerfinu er að það haldi utan um daglegan rekstur skólans og nýtingu á auðlindum hans. Tilgangurinn með verkefninu var að sameina ólík kerfi sem notuð voru við rekstur skóla Flugmálastjórnar. Vefumsjónarkerfi, skólabókhald, Java ATS-skóli Flugmálastjórnar Íslands Axel Kr. Einarsson, Eiríkur Gestsson, Heimir Gunnlaugsson og Steindór Ingi Hall Staður og s tund Mánudagur 19. maí 10.00-10.45 Þingsalur 231b MainPocket MainPocket er vefverkbeiðnakerfi fyrir PocketPC og er hugsað sem viðbót við MainManager lausn fyrirtækisins (LH tækni). Markmið verkefnisins er að hanna og búa til veflausn sem færir verkbeiðnakerfi út til þjónustuaðila í gegnum PocketPC. PocketPC, verkbeiðnakerfi, veflausn, þráðlaust net LH tækni (e. Iceconsult) Birkir Þór Kristmundsson, Brynja Kristjánsdóttir, Kolfinna Hrönn Snorradóttir, Þórey Arna Árnadóttir 11.00-11.45 Þingsalur 201 Spyrill – skýrslusmiður Kerfið er viðbót við hugbúnaðinn TOK og á að auvelda notendum að nýta sér gögn í gagnagrunni til almennari nota en nú er gerlegt. Skýrslusmiðurinn smíðar SQL fyrirspurnir ofan í gagnagrunn. Venslatöflur sjá um að tryggja vensl gagna og áreiðanleika niðurstaðna. Kerfið er miðað að breiðum hópi notenda og viðmótið er hannað þannig að notandinn á auðvelt með að nýta sér gögn í gagnagrunni án þess að þekkja til uppbyggingu gagnagrunna, vensla eða SQL fyrirspurnarmálsins. Skýrslusmiður, TOK hugbúnaður, gagnagrunnur, áreiðanleiki niðurstaðna, SQL fyrirspurnir Ax hugbúnaðarhús Kristjana Bergsdóttir, Hanna Ósk Rögnvaldsdóttir, Ragnhildur Þ. Óskarsdóttir 13.00-13.45 Þingsalur 231b Myndaþjónn Kerfið Myndaþjónn samanstendur af tveimur vefþjónustum, gagnagrunni og Umsjónarkerfi sem notar vefþjónusturnar. Fyrri vefþjónustan sér um miðlæga meðhöndlun mynda en sú seinni sér um gröf hjá bankanum og samræmt útlit þeirra. Myndagagnagrunnur, vefþjónustur, ChartFx, gröf, .NET Íslandsbanki Eiríkur Egilsson, Erla Sóley Eyþórsdóttir, Hulda Guðrún Daðadóttir og Óskar Karlsson 14.00-14.45 Þingsalur 201 Vefþjónustur fyrir bankaaðgerðir Markmið verkefnisins er að útfæra öruggar vefþjónustur fyrir aðgerðir fyrirtækja- netbanka. Tilgangur verkefnisins er að leggja grunn að frekari vefþjónustuvæð- ingu bankans. Öryggi byggir á stafrænum skilríkjum, dulritun og rafrænum undirskriftum. Vefþjónusturnar veita aðgang að tilteknum fjármálaðgerðum bankans og gera fyrirtækjum kleift að forrita á móti þeim. Vefþjónustur, rafræn skilríki, X509 skilríki, rafræn undirskrift, dulkóðun, SOAP, WS- Security, Ws-Router, Ws-Referral, WSE Netþróunardeild Íslandsbanka Halldóra G. Steindórsdóttir, Haukur Þór Lúðvíksson, Rósa Atladóttir 15.00-15.45 Þingsalur 231b Vefverslun LiSA.net Kerfið er sá hluti vefverslunar í vefumsjónarkerfi LiSA.net sem heldur utan um hluti eins og vörur, vörutegundir og vöruflokka. Kerfið hefur það markmið að vera einfalt í notkun en mjög sveigjanlegt svo það henti hvers kyns verslunar- rekstri. Tilgangur verkefnisins var að greina og hanna vefverslun og útfæra hluta hennar. Vefverslun, .NET Innn hf. Bjarni H. Ásbjörnsson, Karen Ósk Hrafnsdóttir TrackTV-Lokuð kynning Einfalt kerfi sem ætlað er um borð í skip og á að stýra stefnuvirku sjónvarpsloft- neti í átt að sjónvarpssendi. TrackTV notar GPS staðsetningarkerfið við að stjórna sjónvarpsloftnetinu í rétta átt. Einnig er hægt að nota Gyro kompás til að stjórnun loftnetsins verði með meiri nákvæmni. GPS staðsetningarkerfi, rauntímavirkni Brúin ehf Akureyri Magnús Magnússon, Guðrún Jóna Jónsdóttir 10.00-10.45 Þr ið judagur 20. maí Birgðastöð Vöruhótelsins Tilgangur Birgðastöðvarinnar er að auka við þjónustu viðskiptavina Vöruhótelsins ehf. Birgðastöðin er vefupplýsingakerfi sem gerir viðskiptavinum kleift að skoða birgðastöðu sína og senda inn afgreiðslupantanir og móttökubeiðnir yfir vef. C#, ASP.NET, ADO.NET, WebServices, XML, Dimon Business Server, Jacada Integrador, SQL-server Vöruhótelið ehf. Grétar Magnússon, Höskuldur Sigurðarson, Vilhelm S. Sigurðsson, Þórmundur Helgason peoProtector peoProtector er hugbúnaður sem auðveldar allt öryggiseftirlit og byggir á 16 ára þróunarvinnu Vaka DNG á myndgreiningartækni með tölvusjón. Hugbúnaðurinn greinir aðskotahlut sem kemur inn í mynd. Annars vegar tekur hann atburðinn upp, sem þýðir að ekki þarf að geyma mikið magn af upptökum þar sem ekkert er að gerast. Hins vegar eru send boð í stjórnstöð öryggisfyrirtækis í sérstakan móttökuhugbúnað peoProtector en einnig er hægt að senda boð í GSM-síma. Þau geta verið á SMS eða MMS formi en með MMS skeyti getur öryggisvörður sam- stundis fengið mynd af því sem er að gerast og metið alvarleika ástandsins. MMS (skeyti í GSM síma), tölvusjón, atferlisgreining, MPEG, XML Peocon Björn Þorkelsson, Jóhann Ari Lárusson, Snorri Henrysson, Viðar Örn Tulinius DMC (Dynamic Module Controller) Kerfið er portalkerfi sem auðveldar forritun til að tengja og hjúpa ytri kerfi. Kerfið veitir notandanum eina sýn á mörg kerfi sem hann myndi nota í starfsumhverfi sínu. Einnig var forrituð eining í kerfið okkar sem tengist Lotus Notes umhverfinu. (GoPro Case frá Hugviti) Vefþjónustur, LDAP, Connection Pooling, tölfræði, minnisstjórnun (cache-ing ), útskiptanleiki, dynamískt Hugvit hf. Arnar Ólafsson, Steinunn María Halldórsdóttir, Hákon Atli Birgisson, Jóhannes Birgir Jensson Market Data Market Data er umsjónarkerfi fyrir söfnun fjármálagagna. Kerfið sér um að sækja gögn frá ýmsum gagnaveitum og rýnir þau í leit að óeðlilegu mynstri samkvæmt skilyrðum sem kerfisstjóri skilgreinir. Auðvelt er að bæta við nýjum kerfishlutum sem sækja annars konar gögn frá gagnaveitum eða rýna gögnin á annan hátt. SmartClient, .NET Framework, C#, XML WebServices, Windows Services, Oracle Mens Mentis Bragi Freyr Gunnarsson, Brynjólfur Ómarsson, Óskar Bjarni Skarphéðinsson, Páll Birgir Jónsson XML forsnið fyrir The Wizard Í verkefninu er útfært XML forsnið og samþætt The Wizard kerfi Maskina. The Wizard er vefumhverfi sem býður notanda upp á að búa til farsímaþjónustu án forritunar með því að fylla út tilbúin forsnið (e. template). Með XML forsniðinu er þeim möguleika bætt við The Wizard að sækja gögn í XML skjal og senda áfram í símann. Úr einu XML skjali má búa til ýmsa þjónustu, þar sem valmöguleikar forsniðsins eru margir. Sem dæmi um notkunina má nefna þjónustu sem birtir notandanum lagerstöðu fyrirtækis eða nýjustu úrslit í boltanum. XML, farsímaþjónusta, vefþjónusta Maskina ehf. Berglind Sveinsdóttir, Hólmfríður Steinþórsdóttir, Lilja Björk Kristinsdóttir LH TÆKNI Mens Mentis hf. Umsóknarfrestur í tölvunarfræðideild er ti l 5. júní

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.