Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 16
18 17. maí 2003 LAUGARDAGUR Söluskrifstofan er á Suðurlandsbraut 24 Opið alla virka daga 9-17. Þjónustuverið er opið virka daga 9-17, laugardaga 10-16 og sunnudaga 10-14, sími 5 500 600. Þú getur einnig skoðað og bókað á IcelandExpress.is. Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl. Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is M Á T T U R IN N & D Ý R Ð IN Sumir vilja Davíð og aðrir Halldór Á meðan leiðtogar stjórnarflokkanna sitja að samningum um áframhaldandi ríkis- stjórnarsamstarf veltir þjóðin einnig fyrir sér hvernig málin fara. Ekki er annað að sjá en að áframhaldandi samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks leggist þokkalega í þá vegfarendur sem urðu á vegi blaðamanns. Blendinn hugur til nýrrar ríkisstjórnar Arnaldur Bjarnason telur allar líkur á að ríkisstjórnarmyndun takist á milli Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. „Það er blendinn hugur sem ég hef til þeirrar stjórnar en mér líst mun betur á Halldór í forsæti. Ég tel hann vera einn sterkasta stjórn- málamann þjóðarinnar.“ Arnaldur segist ekki hafa myndað sér skoðun um skiptingu ráðherraembætta en er ekki frá því að það verði erfitt fyrir Framsókn að skipa í stólana. „Þeir hafa á að skipa nýju og óreyndu fólki en það fer eftir því hvernig þau skiptast á milli flokkanna. Það er ekkert gefið að Framsókn fái eins mörg ráðu- neyti.“ SIGURÐUR HARALDSSON Hann ætlar ekki að gleyma eftir fjögur ár ef flokkarnir svíkja kosningaloforðin. Strandar á skiptingu ráðuneyta „Mér líst vel á þessar viðræður og er sáttur við nýja stjórn með þessum tveimur flokkum,“ segir Sigurður Haraldsson. Hann er á því að menn viti hverju þeir sleppi en ekki hvað þeir hreppi og því séu allar breytingar vara- samar. „Mér líst vel á að hafa Davíð áfram en ég er ekki viss um að þetta gangi eins vel og menn halda. Ég er hræddur um að þetta strandi á ráðuneytunum en ekki málefnum.“ Sigurður vill ekki tjá sig um hverjum hann vilji skipta út og segir að fæst orð beri minnsta ábyrgð. Hann er þeirrar skoðun- ar að minnsta kosti einn ráð- herrana hafi lítið að gera áfram. Hann hafi klúðrað svo miklu fram að þessu. Heldurðu að þeir standi við öll kosningaloforðin? „Nei, sannarlega ekki, en ég vildi gefa þeim tækifæri. Ég get þá í öllu falli breytt því næst og ég ætla ekki að gleyma eins og við gerum svo oft.“ KRISTJÁN KRISTJÁNSSON Telur að þeir Davíð og Halldór vilji vinna saman. Sturlu út og Jónínu inn „Mér líst nokkuð vel á viðræður þeirra Halldórs og Davíðs og kýs frekar að Halldór leiði stjórnina ef af henni verður,“ segir Krist- ján Kristjánsson. Hann segist hafa kosið ríkisstjórnina áfram en vill breytingar á ráðherraskip- an. „Ég held að Sturla ætti að hvíla sig og ég vil fá Jónínu Bjartmarz inn.“ Hann telur miklar líkur á að stjórnarmyndun takist um helg- ina og Davíð og Halldór muni ekki eiga í vandræðum með að mynda stjórn. Þeir vilji vinna saman og litlar líkur á að upp úr viðræðum slitni. DÚFA KRISTJÁNSDÓTTIR Sanngjarnt að Halldór taki við á miðju kjörtímabili nýrrar stjórnar. Ánægð með Davíð „Ég er mjög ánægð með þessa stjórnarmyndun og vona að hún takist,“ segir Dúfa Kristjánsdóttir. Hún segist gjarnan vilja sjá Davíð í stóli forsætisráðherra en finnst í lagi að Halldór taki við eftir tvö ár. „Mér finnst sjálfsagt að breyta til í ráðuneytunum, en hef ekki myndað mér neina skoð- un um hver eigi að vera hvar.“ Dúfa er ekki í vafa um að þeim Davíð og Halldóri takist að mynda stjórn um helgina. „Þetta er allt að smella saman hjá þeim,“ segir hún. HÁKON BRAGI VALGEIRSSON Hann telur að innan Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks sé besta fólkið til að stjórna. Hjálmar í ráðherrastól „Mér líst mjög vel á þessa stjórnarmyndun og kaus stjórn- ina áfram,“ segir Hákon Bragi Valgeirsson. Hann vill sjá Davíð áfram í forsæti nýrrar stjórnar og er ekki í vafa um að sú stjórn verði sú besta sem völ er á. „Inn- an þessara flokka er hæfasta fólkið til þessara verka og ég hef verið mjög ánægður með stjórn- ina fram að þessu.“ Hákon vill fá nýtt ráðuneyti ferðamála í komandi stjórn og telur gott að skipta lítillega út ráðherrum. „Hjálmar Árnason vil ég sjá í ráðherraembætti.“ RÁÐHERRABÚSTAÐURINN Í TJARNARGÖTU Hér gerast hlutirnir en á götunni er einnig spáð og spekúlerað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /B IL LI FR ÉT TA B LA Ð IÐ /R Ó B ER T ARNALDUR BJARNASON Telur Halldór mesta stjórnmála- leiðtoga þjóðarinnar.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.