Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 19
Fjarnám í HR:
Öðruv ís i náms le ið
Tölvunarfræðideild Háskólans í Reykjavík býður
fjarnám í tölvunarfræði. Um er að ræða námsefni af kjör-
sviði notendahugbúnaðar. Nemendur í fjarnámi geta út-
skrifast sem kerfisfræðingar-HR. Nemendur geta svo
bætt við sig 30 einingum og lokið BS-gráðu í hefðbundnu
námi. Námsefni og námskröfur í fjarnámi eru þær sömu
og í staðarnámi.
Námið fer fram í sérhönnuðu fjarnámsumhverfi sem
byggir nær eingöngu á nettækni. Fjarnámið er tekið á hálf-
um hraða; tvö námskeið á haustönn og tvö á vorönn
ásamt verklegu námskeiði sem krefst þess að nemendur
vinni verkefni í skólanum í þrjár vikur. Fjarnámið er meðal
annars byggt upp á fyrirlestrum, verkefnum, vinnulotum,
verklegum námskeiðum og samstarfshópum. Fyrirlestrar
eru teknir upp og geta nemendur nálgast þá þegar þeir
vilja og hlustað á hvar og hvenær sem er. Nemendur geta
einnig tekið þátt í umræðum á Netinu, bæði við kennara
og aðra nemendur. Fjarnám hentar vel þeim sem ekki
hafa aðstæður til hefðbundinnar skólagöngu, hvort sem
þeir búa nær eða fjær skólanum.
Gagnasetur HR:
Miðs töð þekkingar
á gagnasafnsker fum
Gagnasetur HR er þekkingarsetur á sviði gagnasafns-
kerfa. Þar er unnið að rannsóknarverkefnum tengdum
margmiðlunargagnasöfnum og afköstum gagnasafns-
kerfa. Fyrsta meginverkefni setursins er þróun myndleitar-
kerfis sem býður upp á hraðvirka og nákvæma leit í
myndagagnasöfnun. Verkefnið er unnið í samstarfi við
franska aðila.
Einn nemandi vinnur nú við Gagnasetrið í hálfu starfi.
Þar að auki vinnur fjöldi nemenda að lokaverkefnum og
sjálfstæðum verkefnum á vegum setursins. Forstöðumað-
ur Gagnasetursins er Dr. Björn Þór Jónsson, dósent.
Verkefni Ragnheiðar og Sigurðar er unnið í
samstarfi við rannsóknarstofnun í Rennés í
Frakklandi en Dr. Björn Þór Jónsson, leiðbein-
andi Ragnheiðar og Sigurðar, hefur verið í sam-
starfi við stofnunina.
„Aðferðir við leit að textum í gagnagrunnum
eru afar þróaðar og það tekur mjög stuttan tíma
að fá vitræn svör, jafnvel bara brot úr sekúndu.
En þegar leita á að mynd getur það tekið mjög
langan tíma,“ segir Ragnheiður Ýr.
„Þær hraðvirku aðferðir sem eru til núna hafa
ekki verið mjög nákvæmar. Þær fara eftir því
hvað er almennt líkt með myndunum, til dæmis
hvaða litir eru áberandi í þeim.“
Stofnunin í Frakklandi hefur verið að þróa
nýja aðferð þar sem hver mynd er greind í talna-
gögn eftir flóknum aðferðum sem auðveldar leit
að myndunum. Ragnheiður og Sigurður hafa
unnið að nýju aðferðinni í lokaverkefni sínu í HR.
Þá brjótast þau inn í leitarferlið og fylgjast með
hvað er að gerast á hverjum tíma og hversu fljótt
marktækar niðurstöður fást. Styrkurinn frá Ný-
sköpunarsjóði gerir þeim kleift að þróa verkefn-
ið áfram. Þau reyna þá leitaraðferðina á mynd-
um af nemendum HR.
„Við ætlum að reyna að læra betur á þetta leit-
arferli og reyna að komast að því fyrir hverju það
er næmt. Getum við til dæmis fundið ákveðna
mynd af manneskju ef hún er nákvæmleg eins og
myndin eða ef persónan hallar undir flatt, er í
annarri peysu og svo framvegis. Í raun hvenær
við getum fundið mynd og hvenær ekki.“
Ef aðferðin gengur upp mun hún auðvelda
alla leit í myndagrunnum. Ragnheiður tekur sem
dæmi myndasafn Reuters-fréttastofunnar, sem
hefur að geyma hundruð þúsunda mynda. Mynd
sem finna á í safninu er skönnuð inn og ef hana
er þar að finna, eða líkar myndir, skilar aðferðin
þeim myndum.
„Aðferðina er þá væntanlega hægt að nýta á
öðrum sviðum, til dæmis í læknavísindum. Ef
leita þarf til dæmis að líkum hlutum af röntgen-
mynd er hægt að gera það vélrænt, jafnvel án
þess að mannsaugað komi þar nærri, á mjög
einfaldan hátt fyrir notandann,“ segir Ragnheið-
ur Ýr.
Lokaverkefni HR:
F jö lbrey t t f lóra verkefna
Hugbúnaður fyrir lófatölvur, siglingatæki, eftirlitskerfi, myndbandsupptökuvélar og stefnumóta-
þjónusta fyrir farsíma eru meðal verkefna sem nemendur við tölvunarfræðideild HR hafa unnið
að á síðustu árum.
Lokaverkefnin eru unnin á fjórðu og sjöttu önn og gefst nemendum þar kostur á að vinna að
raunverulegu hugbúnaðarverkefni í tengslum við fyrirtæki eða í samvinnu við kennara skólans.
Viðfangsefnin endurspegla ávallt helstu nýjungar og tækniþróun í tölvunarfræði.
Sjá nánar um kynningu á lokaverkefnum nemenda
í Háskólanum í Reykjavík á bls. 3 og 4
Nemendur vinna
spennandi rann-
sóknarverkefni
Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir og Sigurður H. Einarsson , lokaársnemar
við tölvunar fræðidei ld HR, fengu fyrir skömmu úthlutað styrk úr Nýsköpunar-
sjóði t i l að vinna að verkefni sem snýr að uppbyggingu myndagagnagrunns
úr andli tsmyndum og rannsókn á lei tareiginleikum myndagagnagrunnsker f is.
MYND/RÓBERT
T Ö L V U N A R F R Æ ‹ I
v i › h á s k ó l a n n í r e y k j a v í k
Umsóknarfrestur í tölvunar-
fræðideild er ti l 5. júní
www.ru.is
Nýjungar í námi:
Meis taranám
í haus t
Háskólinn í Reykjavík býður í fyrsta sinn upp á meist-
aranám við tölvunarfræðideild í haust. Meistaranámið
(MSc) er tveggja ára nám með rannsóknaráherslu. Á fyrra
ári taka nemendur 15 einingar í námskeiðum við tölvunar-
fræðideild HR á haustönn og jafngildi 15 eininga í nám-
skeiðum við samstarfsháskóla á vorönn. Seinna árið er
unnið 30 eininga rannsóknarverkefni. Háskólinn í Reykja-
vík hefur stofnað til samstarfs við nokkra erlenda há-
skóla. Nemendum HR er gert kleift að sækja námskeið
við skólana og vinna að sameiginlegum rannsóknum.
Skólagjöld vegna meistaranáms eru lánshæf hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna.