Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 10
12 17. maí 2003 LAUGARDAGUR AFGANISTAN „Þeir lugu að okkur,“ sagði afganskur heimspekingur sem stóð fyrir mótmælum gegn afskiptum Bandaríkjanna í Afganistan. „Þegar stríðið hófst héldum við að Bandaríkin væru eitt af góðu löndunum og þau ætl- uðu að koma okkur til hjálpar.“ Mótmælaaðgerðirnar, sem voru þær fyrstu síðan bandaríski herinn steypti stjórn Talíbana af stóli, eru taldar endurspegla vaxandi reiði afganskra borgara í garð Banda- ríkjanna, að því er fram kemur í dagblaðinu Washington Post. Þær raddir verða sífellt háværari sem halda því fram að ríkisstjórn Geor- ge W. Bush hafi svikið loforð sín um að byggja upp landið að stríði loknu og bæta lífskjör þjóðarinnar. Margir halda því fram að banda- rísk yfirvöld hafi beint öllum sín- um kröftum að því að elta uppi liðsmenn al Kaída og Talíbana og uppbyggingarstarfið þar með ver- ið látið sitja á hakanum. „Auðvitað sér fólkið að ekkert hefur verið gert,“ segir Hilaludd- in Hilal, aðstoðarinnanríkisráð- herra landsins. Hilal viðurkennir að ekki sjái fyrir endann á því ófremdarástandi sem ríkir í land- inu. Vígamenn halda þjóðinni í heljargreipum, flestir þjóðvegir eru enn ófærir, atvinnuleysið er gífurlegt og meira að segja þeir sem hafa vinnu geta ekki fram- fleytt sjálfum sér og fjölskyldum sínum. Sjóðir afgönsku ríkisstjórnar- innar eru þurrausnir og hafa op- inberir starfsmenn ekki fengið greidd laun svo mánuðum skiptir. „Við höfum þegar selt öll teppin okkar og ísskápinn. Á endanum neyðumst við til þess að stela okkur til matar,“ segir afganskur unglingspiltur. Faðir hans starfar hjá afganska fjármálaráðuneyt- inu en hefur ekki fengið laun í yfir þrjá mánuði. Engin lausn virðist vera í sjónmáli og reiðin og biturðin í garð Bandaríkjanna leyna sér ekki. „Við munum ekki hika við að ganga til liðs við Talí- bana ef þeir geta boðið okkur betri kjör.“ Hjá innanríkisráðuneytinu einu saman starfa um 96.000 manns sem ekki hafa fengið greitt fyrir vinnu sína í meira en tvo mánuði. Yfirvöld hafa óskað eftir erlendum fjárstuðningi til þess að geta tekið á þessu alvarlega vandamáli áður en þegnar lands- ins grípi til örþrifaráða. Er því haldið fram að það fé sem alþjóða- samfélagið hét afgönsku þjóðinni hafi aldrei borist í réttar hendur, að sögn dagblaðsins Independent. Margir Afganar líta svo á að úr því að Bandaríkjamenn ætli ekki að efna loforð sín og bæta lífskjör þjóðarinnar sé réttast að hersveitir þeirra yfirgefi landið. „Ef útlendingarnir hætta að skipta sér af okkur getum við byggt upp landið okkar sjálf,“ sagði atvinnulaus karlmaður á þrítugsaldri. ■ VERKAMENN HVÍLA SIG Þúsundir afganskra borgara hafa ekki fengið greidd laun fyrir vinnu sína svo mánuðum skiptir. Óttast yfirvöld að fólkið muni grípa til örþrifaráða ef ekki verður gripið í taumana nú þegar. VINNANDI KONUR Afganskar konur streymdu út á vinnu- markaðinn í kjölfar falls Talíbanastjórnar- innar. Þær fá greidd lúsarlaun og njóta langt því frá sama réttar í samfélaginu og karlmenn. Bandaríkin hafa brugðist trausti afgönsku þjóðarinnar Afganar saka Banda- ríkin um að hafa ekki staðið við loforð sín um að byggja upp landið að loknu stríði og bæta kjör þjóðar- innar. Þúsundir lands- manna eru á vonarvöl eftir að hafa ekki feng- ið greidd laun svo mánuðum skiptir. ÓSÁTTIR HÁSKÓLANEMAR Afganskir háskólanemar efndu til mótmæla í höfuðborginni Kabúl. Létu þeir Bandaríkin og forsetann Hamid Karzai fá það óþvegið.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.