Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 23
Hnitabankinn Hnitabankinn heldur utan um upplýsingar um fastmerki sem notuð eru í tengslum við mannvirkjagerð, s.s. nákvæma staðsetningu í plani og hæð, tegund merkis, lýsingu, ljósmynd og fleira. Forritið getur varpað fastmerkjum á milli mismunandi hnitakerfa og lesið og skrifað mismunandi hnitaskrár (s.s. skrár úr mælitækjum). Þá er í forritinu öflug kortavinnsla þar sem hægt er að skoða og leita að ýmsum upplýsingum s.s. fastmerkjum, götuheitum og örnefnum (s.s. ám, vötnum, fjöllum o.fl.). Hnitakerfi, fastmerki, mælingamenn, Delphi Verkfræðistofan Hnit hf. Börkur Guðjónsson, Magni Þór Birgisson, Sigurjón Atli Sigurðsson Miðvikudagur 21. maí Frumgerð Eff2 myndleitarkerfisins Í verkefninu var unnið með nýja aðferð við myndaleit, sem er mjög nákvæm en um leið mjög tímafrek. Markmið þessa verkefnis var að gefa notanda mynda- þjónsins innsýn í leitarferlið og gefa honum stjórn yfir framgangi þess, án þess að hægja á því. Útfærður var myndleitarþjónn sem notar sameiginlegt minni (e. shared memory) til að geyma stöðuna á úrvinnslunni, auk frumgerðar að nýju notendaviðmóti, sem getur birt stöðu leitarinnar og leyfir ýmislegt samspil við hana. Myndagagnagrunnar, myndaleit eftir fyrirmynd, myndaþjónn, notendaviðmót Gagnasetur Háskólans í Reykjavík Ragnheiður Ýr Grétarsdóttir og Sigurður H. Einarsson Klösunarvísar fyrir myndagagnagrunna Leit í myndagagnagrunni eftir fyrirmynd hefur í gegnum tíðina ýmist verið ónákvæm og hraðvirk, eða nákvæm og seinvirk. Unnið er með myndir sem búið er að umbreyta í mjög lýsandi gögn á tölulegu formi. Gögn þessi eru margvíð, og því hefur ekki áður verið hægt að leita í þeim á hraðvirkan hátt, þar sem ekki hefur verið hægt að nota vísa á þau. Markmið verkefnisins er útfæra og rannsaka klös- unarvísa (e. clustering indexes) sem gera leit í margvíðum gögnum af þessu tagi bæði hraðvirka og nákvæma. Myndagagnagrunnar, myndaleit eftir fyrirmynd, margvíð gögn, klösunaraðferðir, klösunarvísar Gagnasetur Háskólans í Reykjavík Árni Geir Valgeirsson, Brynjólfur Erlingsson, Ísak Sigurjón Einarsson Gæði Internettenginga Markmið kerfisins er að gefa notendum mat á gæði internettenginga sinna. Kerfið mælir afköst tengingarinnar, pakkatap, biðtíma, uppitíma og fleira þannig að hægt sé að reikna hvort notandi fái þau gæði sem hann borgar fyrir. Notendur fá niðurstöður mælinga birtar á myndrænan hátt. Einnig fylgist kerfið með niðurhali notenda og getur birt þeim aðvörun þegar ákveðnu marki er náð. Gæði internettenginga, tölvusamskipti, .NET, Windows þjónustur Aco Tæknival Brynjar Tryggvason, Kristrún Lilja Júlíusdóttir, Linda Björk Bjarnadóttir StarManager Tilgangur verkefnisins var að einfalda það ferli að búa til vefleik fyrir hvaða hópíþrótt sem er. Hópurinn forritaði í þeim tilgangi generískan miðlara sem gerir leikjaforriturum það kleift að þurfa aðeins að forrita sitt útlit og kalla svo í miðlarann til að vinna flóknari virkni. Þannig geta þeir náð fram hámarksvirkni í leikinn með lágmarks vinnu og kostnaði. Vefleikjamiðlari, generík, Java, knattspyrnuleikur, Struts, JSP Betware Sigmar Stefánsson, Sveinbjörn Geir Hlöðversson, Tómas Jónasson Replication of a Personal Musical Style Kerfið greinir hlutmengi af verkum samið af Johann Sebastian Bach og reynir að grípa undirliggjandi stíl þeirrar tónlistar. Að því loknu reynir kerfið að búa til nýtt verk í sama stíl. Markmiðið var að láta tölvu herma eftir ákveðnu tónskáldi og semja tónlist, án þess þó að forritaðar séu ákveðnar tónlistarlegar reglur. Kerfið styðst eingöngu við þá greiningu sem það framkvæmir sjálft. Bach, gervigreind, gagnanám, tónlist Rannsóknarverkefni HR Freyr Guðmundsson Opin kynning á lokaverkefnum nemenda í TÖLVUNAR- FRÆÐIDEILD Háskólans í Reykjavík 19.-21. maí Allir velkomnir Stuðningur Bandamanna Háskólans í Reyk jav ík hefur ger t tö lvunar f ræðide i ld HR k le i f t að e f la kenns lu og s tórauka rannsókni r í tö lvunar f ræði . Á kynningunni verður farið yfir raunhæf verkefni sem nemendur í tölvunarfræði HR hafa unnið í tengslum við atvinnulífið. Verkefnin eru sérstaklega athyglisverð og lausnir nemenda fela í sér ýmsar nýjungar í framsetningu og hönnun. Kynntu þér í dagskránni hér á opnunni hversu verkefnin eru fjölbreytt og spanna ólík svið. Að þeim standa einstak- lingar sem eiga eftir að setja mark sitt á íslenskt upplýs- ingaþjóðfélag. Háskólinn í Reykjavík býður framsækið og krefjandi nám í tölvunarfræði sem gefur þér ótal möguleika. Ef þú ert að íhuga háskólanám í tölvunarfræði hvetjum við þig til að koma á kynninguna. Kaffi og meðlæti í boði á milli erinda

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.