Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 30
32 17. maí 2003 LAUGARDAGUR KVIKMYNDIR Fimmtugasta og sjötta kvikmyndahátíðin í Cannes hófst á miðvikudaginn með sýningu á endurgerð kvikmyndarinnar Fanfan La Tulipe með Penelope Cruz í aðalhlutverki. Mikill fjöldi kvikmynda er til sýnis á hátíð- inni, meðal annars The Matrix Reloaded, en fjöldi stórstjarna mætti á frumsýningu hennar. Annars er athyglin alltaf mest á þeim myndum sem keppa um hinn eftirsótta Gullpálma, en í ár blanda leikstjórarnir Peter Greenaway, Clint Eastwood og Gus Van Sant sér í þann slag. Eft- irvæntingin eftir mynd Eastwood, Mystic River, með Sean Penn, Tim Robbins og Kevin Bacon í aðal- hlutverkum, er mikil. Þá vekur Lars Von Trier alltaf athygli en hann sigraði á hátíðinni árið 2000 með Dancer in the Dark sem skartaði Björku í aðalhlutverki og er nú mættur aftur til leiks með Dogville með Nicole Kidman í að- alhlutverki. ■ Kvikmyndahátíðin í Cannes: Mikið um dýrðir TORTÍMANDINN Hefur auga með því sem fer fram á götum Cannes á meðan kvikmyndahátíðin stendur yfir. MONICA BELLUCCI Mætti ásamt franska leikaranum Lambert Wilson á The Matrix Reloaded-sýninguna, en þau leika í meira lagi vafasöm hjón í myndinni. ALBERT MÓNAKÓPRINS Mætir á frumsýningu myndarinnar „Fanfan La Tulipe“, eftir franska leikstjórann Gerard Krawczyk, ásamt frönsku leikkonunum Blandine Bury og Alexandra Lacoste. MEG RYAN Er í dómnefnd hátíðarinnar í ár og hún spókar sig hér með forseta hátíðarinnar, Patrice Chereau. PENELOPE CRUZ Skartaði sínu fínasta í Cannes á miðviku- daginn. ANDIE MACDOWELL Kemur á frumsýningu „Fanfan La Tulipe“ ásamt frönsku leikkonunni Noemi Lenoir.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.