Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 18
20 17. maí 2003 LAUGARDAGUR Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100 200 sæti í fiú velur dagsetningu, bókar og grei›ir sta›festingargjald. Gistista›urinn ver›ur sta›festur viku fyrir brottför. 36.242 kr. Ver›dæmi til Mallorca e›a Benidorm m.v. að 2 fullorðnir og 2 börn 2ja til 11 ára ferðist saman. Innifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting í 1 viku, akstur til og frá flugvelli erlendis og íslensk fararstjórn. Barnaafsláttur fyrir 2ja til og með 11 ára, 12.000 kr. Ef 2 ferðast saman 47.630 kr. Krít 19. og 26. maí, 2. og 9. júní Benidorm 4., 11. og 21. júní Mallorca 22. maí og 12. júní Portúgal 20. maí, 3. og 10. júní Verð á mann 4 í íbúð 38.900 3 í íbúð 41.900 2 í íbúð 43.900 Aukavika stgr. á mann 4 í íbúð m/1 svefnherb. og stofu 10.500 3 í íbúð m/1 svefnherb. og stofu 13.500 2 í íbúð eða stúdíói 17.500 Aukagjald fyrir einbýli m.v. stúdíó 16,900 Aukavikuverð m.v. 1 í stúdíó 29,400 Barnaafsláttur 12.000 Verð Brottfarir Sólar Plús Misjafn reynist smekkurmanna þegar tónlistin er ann- ars vegar og eru margir kallaðir en fáir útvaldir þegar leitað er álits á því hverjir standi upp úr á hinu íslenska dægurlagasviði, bæði að fornu og nýju. Úrslitin eru engu að síður ótvíræð. Ellý Vil- hjálms sigrar í þessari óformlegu könnun Fréttablaðsins með nokkrum yfirburðum og skýtur þar ýmsum kempum ref fyrir rass. 20 sérlegir álitsgjafar blaðsins voru beðnir um að nefna sinn topp fimm lista og raða honum í for- gangsröð. Sá sem sat efstur á lista hlaut 10 stig, sá næsti 8 og þannig koll af kolli. Sá söngvari sem var í 5. sæti hlaut 2 stig. Flestir kvört- uðu undan því að þröngt væri snið- inn stakkurinn og vildu fá að nefna fleiri – en það var ekki hægt. Í ljósi þessa er óhætt að fullyrða að nokk- ur heiður sé því samfara að kom- ast á blað. Eldri kynslóðir einoka sviðið Það sem má heita einkennandi er að söngvarar liðinna tíma standa uppi sem sigurvegarar. Þannig er þau sem eru í þremur efstu sætunum horfin yfir móðuna miklu og Haukur Morthens laumar sér milli söngsystkinanna Ellýar og Vilhjálms Vilhjálmsbarna. Þau sem næst koma eru flest komin um og jafnvel vel yfir fertugt. Bó, Bubbi og Björk, béin þrjú í ís- lenskri rokksögu, mega öll ágæt- lega við una sem og Egill Ólafsson. Egill og Björk eru jöfn að stigum en Egill fékk talsvert fleiri tilnefn- ingar, sem gerir hans árangur betri. Yngsta kynslóðin setur hins vegar ekki mark sitt á þessa könn- un svo nokkru nemi. Hvort þar ráði gæði eða íhaldssemi álitsgjafanna skal ósagt látið. Annað það sem má heita athyglisvert er að tónlistar- gáfan virðist liggja í genunum: Systkinin Ellý og Vilhjálmur og frændurnir Haukur og Bubbi eru í sátt og samlyndi á topp tíu listan- um. Páll Rósinkrans er yngstur á topp tíu listanum og óvænt á lista er Hallbjörg Bjarnadóttir. Þeir sem berja á dyrnar eru Helgi Björnsson, Emilíana Torrini, Þor- valdur Halldórsson, Daníel Ágúst, Einar Örn, Andrea Gylfadóttir og Jóhann Helgason. Auk þeirra hlutu tilnefningar: Bjarki Tryggvason, Dr. Gunni, Rúni Júll, Óttarr Proppé, Heiðar í Botnleðju, Rúnar Gunnarsson, Hreinn Pálsson, Atli Geir Grétarsson, Jenni úr Brain Police, Engilbert Jensen, Stefán Hilmarsson, Ellen Kristjánsdóttir, Björn Jörundur, Shady Owens, Svanhildur Jakobsdóttir, Margrét Eir, Karl Örvarsson, Höskuldur í Quarasi, Sigurður Bjóla og Pálmi Gunnarsson. Án efa hefðu margir söngvarar aðrir átt erindi, til dæm- is má heita undarlegt að sjálfur Raggi Bjarna komst ekki á blað þrátt fyrir ótvíræða yfirburði elstu kynslóðarinnar. Ólíkindatólið Megas Samhliða því að nefna sinn topp 5 lista voru álitsgjafarnir beðnir um að nefna til sögunnar þann einstakling sem telja má ólíkindalegan á dægurlagasvið- inu. Sá sem hefur kannski ekki al- veg það til að bera sem menn jafn- an leggja sem mælistiku á dægur- lagastjörnu: Hvorki góða rödd né raddbeitingu, jafnvel að útlitið sé ekki alveg í samræmi við það sem vel kann að reynast á þessu sviði. Leitin að þeim sem skarar fram sem söngvari á hinu íslenska dægurlagasviði barst um víðan völl. En niðurstaðan liggur fyrir – álitsgjafar Fréttablaðsins hafa kveðið upp sinn dóm: Ellý Vilhjálms – dægurlagastjarna Íslands Ellý er ótvíræður sigurvegari þessar- ar könnunar með 74 stig og 9 til- nefningar. Meðal þess sem álitsgjaf- arnir hafa um hana að segja er: „Falleg rödd...“ „Guðdómleg rödd.“ „Íslendingar voru heppnir að eiga hana og synd að restin af heimin- um skyldi hafa misst af henni. Hún er á heimsmælikvarða.“ „Ellý hafði þessa ofboðslega fallegu dýpt og miklu tjáningu. Mönnum stóð ekki á sama þegar hún söng, snerti mann alltaf.“ „Þegar maður hlustar á hana kemst maður að því aftur og aftur hvað hún er frábær. Allt sem hún syngur er einhvern veginn full- komið og ég sakna hennar.“ „Ég fékk Ellý í pela þegar ég var lítil. Og henni tekst að tengja mig við raun- veruleikann og róa taugarnar hvenær sem er.“ „Allt gott sem hún flutti. Hlustaði nokkrum sinnum á hana og hef stúderað hana. Yfir- burðahæfileikar og hefði átt að verða heimsfræg.“ 1. Ellý Vilhjálms Haukur skýst á milli Ellýar og Vil- hjálms með 68 stig og 10 tilnefn- ingar. Um hann er meðal annars sagt: „Sinatra Íslands. Náði lengra en Stuðmenn því hann söng í Tívolí í alvöru.“ „Svalur, hvort sem það var í stuðinu eða ball- öðunum. Hann er svona „the man“ í þessum fræðum.“ „Gamla Ísland birtist manni ljós- lifandi þegar mað- ur heyrir í honum, klassísk rödd fortíðar.“ „Hann er duglegasti dægurlagasöngvari Ís- landssögunnar. Veit ekki um neinn sem veit ekki hver hann er. Sungið sig í hjörtu allra.“ „Hann er kóngur- inn í dægurlögunum.“ „Sjarmerandi söngvari.“ „Til eru fræ.“ 2.HaukurMorthens Álitsgjafarnir Álitsgjafarnir eru úr ýmsumáttum og valdir af handahófi. Þar innan um eru margir sem löngum teljast ómissandi álits- gjafar þegar poppsagan er ann- ars vegar og auk þeirra nokkrir sem eru ekki eins hefðbundnir í þeim hópi. En allir þessir eiga það sammerkt að hafa hlustað mikið á tónlist í gegnum tíðina og teljast án nokkurs vafa tón- listarunnendur. Þeir eru: Andr- ea Jónsdóttir, útvarpsmaður og poppfræðingur, Arnar Eggert Thoroddsen, poppskríbent á Mogganum, Didda, skáld og söngkona, Egill Helgason sjón- varpsstjarna, Eiður Arnarson, bassaleikari og útgáfustjóri, Einar Örn, tónlistarmaður og fjölmiðlafræðingur, Freyr Eyj- ólfsson, dagskrárgerðarmaður á Rás 2 og mandólínleikari, Gunn- ar L. Hjálmarsson, útvarpsmað- ur, poppfræðingur og pönkari, Hallur Helgason, trommuleikari Kátra pilta og leikhússtjóri, Ísar Logi Arnarsson, framkvæmda- stjóri Undirtóna, Kristín Ey- steinsdóttir söngkona, Jói B. Bjarnason, stuðbolti, tölvumað- ur og plötusnúður, Jón Ólafsson tónlistarmaður, Jónatan Garðar- son, poppspekingur og Júró- visjónlandsliðseinvaldur, Lísa Páls, útvarpsmaður og söng- kona, Magnús Kjartansson tón- listarmaður, Margrét Hugrún Gústavsdóttir blaðamaður, Mar- grét Valdimarsdóttir, fyrrum dagskrárstjóri Radíó X og blaða- maður, Ragnar Gunnarsson, golfari, rithöfundur og fyrrum poppari, og Sverrir Stormsker tónlistarmaður. MEGAS Ólíkindatólið í íslenskri dægurlagatónlist, er efstur í kjöri yfir þá sem mega teljast ólíklegir á þessu sviði og – samkvæmur sjálfum sér – er einnig á topp tíu listanum yfir bestu dæg- urlagasöngvara fyrr og síðar. Vilhjálmur er öruggur í þriðja sæt- inu, enda eftirlæti margra, með 60 stig og 9 tilnefningar. Um hann er sagt: „Erfitt að útskýra snilldina. Hún er ómennsk þessi rödd, svo falleg er hún.“ „Tilgerðarlaus og sannur flutningur.“ „Þvílíkt náttúru- talent og söng nánast alltaf kórrétt. Ef hann hefði einbeitt sér algerlega að tónlistinni hefði hann getað sigrað heiminn.“ „Líklegast sá lát- lausasti og ein- lægasti í bransan- um, laus við alla tilgerð og upp- skrúfaðan remb- ing og belging enda skildi hann textana og vissi hvað hann söng. Skýr maður með skýra rödd - því miður búinn að syngja sitt síðasta.“ „Býr yfir miklum trega og fallegum.“ „Falleg, óvenju- leg, há rödd og mikil tilfinning.“ „Ég veit ekki alveg hvenær sakleysið hvarf úr íslenskri tónlist – en fólk virðist hafa verið einlægara áður fyrr og það virkar betur á mann.“ „Sá besti. Sterk og tær rödd, kraftmikil en um leið undurfalleg. Frábær dægurlagasöngvari og sá besti sem landið hefur alið.“ 3.Vilhjálmur Vilhjálmsson FRÉTTAB LAÐ IÐ /RÓ B ERT

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.