Fréttablaðið - 17.05.2003, Page 7
8 17. maí 2003 LAUGARDAGUR
Þjóðin krafin
um hreysti
Ég mun ekki
skorast undan
verði til mín
leitað.
Pétur Blöndal um áhuga á stól heilbrigðis- og
tryggingaráðherra. DV, 16. maí.
Laus úr syndinni
Mér finnst að þjóðin öll geti
fagnað því að forseti Íslands er
ekki lengur í óvígðri sambúð.
Hulda Magnúsdóttir. DV, 16. maí.
Gestsaugað
Þeir mættu reyna að taka það
aðeins rólegar á virkum dögum,
gefa sér tíma fyrir sjálfa sig, í
stað þess að byrgja alla
skemmtiþörf inni og fríka út um
helgar.
Katharine Mylonass um hvað Íslendingar geta
lært af Írum. Morgunblaðið, 16. maí.
Orðrétt
NÝJA SJÁLAND, AP Lögregla á Nýja-
Sjálandi leitar nú lýtalæknis sem
framkvæmdi fitusog á konu sem
var 52 kíló og þjáðist af átrösk-
un.
Warren Chan hafði þegar ver-
ið sendur í leyfi á meðan lækna-
ráð skoðaði sex aðrar kærur sem
hann hafði fengið á sig fyrir önn-
ur tilvik af svipuðum toga, á ár-
unum 1993 til 2001.
Í þessu síðasta máli hafði
sjúklingurinn, sem greiddi tæp-
ar 300 þúsund krónur fyrir, farið
til vinkonu sinnar strax eftir að-
gerðina þar sem blóð byrjaði
fljótlega að renna úr saumunum.
Þegar haft var samband við
lækninn var henni tilkynnt að
blæðingin væri eðlileg og sagt að
hvíla sig.
Chan flýði til Ástralíu þar sem
hann dvaldi um stundarsakir en
er talinn vera farinn þaðan. ■
ÍRAK, BBC/CIP/INDEPENDENT Nú þeg-
ar uppbygging Íraks er hafin
kemur ástand lands og fólks skýrar
í ljós. Liðsmenn bandamanna hafa
svo sannarlega rekist á vegg við at-
hafnir sínar. Þeim hefur ekki tekist
að finna Saddam Hussein, ekki
fundið gereyðingarvopn og þeir
eiga í miklum erfiðleikum með að
finna nokkurn skapaðan hlut sem
virkar í landinu. Hjálparsamtök
eiga í sömu vandræðum.
Það er ekki hlaupið að því að
senda matvæli og vatn til þeirra
staða sem verst hafa orðið úti í
stríðinu. Samgöngur eru hræði-
legar; vegir eru slæmir, oft á tíð-
um eingöngu slóðar sem þungir
flutningabílar eiga erfitt með að
fara um. Flugvellir eru fáir og illa
þjónustaðir. Hending ræður því
hvort rafmagn helst á sumum
stöðum, jafnvel innan borga, og
svo eru þeir staðir sem aldrei
hafa fengið rafmagn.
Svo eru það siðferðilegu spurn-
ingarnar sem vakna þegar hreina
vatnið kemst sína leið. Eru það íbú-
arnir sem sumir hverjir studdu og
styðja enn einræðisherrann
Saddam Hussein og vildu óbreytt
ástand sem fá þorstanum slökkt?
Er það flóttafólkið sem hraktist frá
einum stað á annan í áratugi af ótta
við ofbeldi einræðisherrans? Kúrd-
ar? Herskáir múslimar? Börn?
Samkvæmt tölum Sameinuðu
þjóðanna frá 2001 um flóttafólk var
talið að nálægt 800 þúsund manns
hefðu flosnað upp innan Íraks og
væru á sífelldu ferðalagi af ótta við
öryggissveitir Saddams Husseins.
Þetta fólk á ekkert. Engan sama-
stað, enga vinnu, enga von og fáa
að. Á það meiri rétt en aðrir?
Þetta er flókið og erfitt ferli og
það þykir ekki uppörvandi að mikl-
ar deilur hafa staðið á milli deilda
innan bandaríska utanríkisráðu-
neytisins um hver á að gera hvað
við uppbyggingu Íraks.
Ferill Bandaríkjamanna í mál-
um sem þessum gegnum tíðina er
sagður flekkaður. Loforð um stuðn-
ing við endurreisn Afganistan eftir
fall Talíbana hafa hingað til ekki
staðist. Fulltrúar Bandaríkjanna
eru sagðir hafa staðið í vegi fyrir
skjótri aðstoð SÞ til handa íbúum
Rúanda þegar fjöldamorðin þar
stóðu sem hæst og þeir hafa sýnt
litla viðleitni til aðstoðar uppbygg-
ingu og til hreinsunar jarðsprengna
í Víetnam, sem enn þann dag í dag
valda fjölda dauðsfalla.
albert@frettabladid.is
HEILBRIGÐISMÁL Enginn yfirlæknir
hefur tekið stofurekstur fram yfir
starf sitt á Landspítala – háskóla-
sjúkrahúsi. Jóhannes Gunnarsson
lækningaforstjóri segir að í öllum
tilfellum hafi spítalinn samið við
læknana um að þeir lokuðu stof-
um sínum og helguðu sig alfarið
störfum sínum innan spítalans.
„Fyrir voru þeir í 80% starfshlut-
falli en það fer í 100% og laun
þeirra hækka í samræmi við það.
Auk þess fá þeir 10% álag,“ segir
Jóhannes.
Hann segir að gefinn hafi verið
eins árs aðlögunartími. Þeim tíma
lýkur seint á þessu ári. Sjúklingar
viðkomandi lækna geta eftir sem
áður haldið sig við sinn lækni og
pantað tíma á göngudeildum spít-
alans. Þar taka þeir á móti sjúk-
lingum sem greiða það sama fyrir
þjónustuna og á stofu.
Sigurður Björnsson, formaður
sjálfstætt starfandi sérfræðinga
og yfirlæknir á Landspítalanum,
telur að ekki sjái enn fyrir endann
á máli yfirlæknanna. „Ég veit til
þess að margir læknanna eru í að-
lögunarferli en ég er ekki viss um
að sú ákvörðun forsvarsmanna
spítalans að setja þessar skorður
sé endilega sú besta,“ segir Sig-
urður. Hann bendir á að það geti
varla talist hagkvæmt að margar
sérfræðigreinar hafi nánast flust
út af spítalanum. Spurningin sé
einfaldlega hvernig starfsmenn í
heilbrigðisþjónustu nýtist best í
þágu þjóðarinnar. Reynslan eigi
eftir að svara því. ■
FRÁ NESKAUPSTAÐ
Austfirðingar íhuga samúðarverkfall.
Starfsgreinasamband
Austurlands:
Íhuga sam-
úðarverkfall
ATVINNUMÁL Starfsgreinasamband
Íslands hefur beint þeim tilmælum
til félagsmanna sinna að landa ekki
eða vinna afla úr færeyskum fiski-
skipum vegna verkfalls sem nú
stendur yfir í Færeyjum.
Að sögn Jóns Inga Kristjáns-
sonar, formanns Afls – Starfs-
greinasambands Austurlands,
skoðar Afl að fara í samúðarverk-
fall með Færeyingunum. Jón segir
enga ákvörðun hafa verið tekna en
fylgst sé grannt með þróun deil-
unnar þar í landi. Nokkur tími mun
þó líða þar til verkfallið gæti haf-
ist. Félagsmenn munu fyrst greiða
atkvæði um tillöguna. „Ég á von á
að menn vilji standa með Færey-
ingunum í þessu. Það er í það
minnsta vilji stjórnar félagsins.“ ■
SKIPULAGSMÁL Hrafn Gunnlaugs-
son kvikmyndaleikstjóri hefur
nú sótt um formlegt leyfi fyrir
framkvæmdum sínum í Laugar-
nesi. Byggingarfulltrúinn í
Reykjavík hefur frestað af-
greiðslu málsins og vísað því til
skipulagsfulltrúans.
Hrafn gerði á dögunum sögu-
legt samkomulag við borgaryfir-
völd um að fá að halda öllum nú-
verandi framkvæmdum í og við
hús sitt og fá greiddar 10 milljón-
ir króna að auki gegn því að hann
falli frá rétti til að reisa vinnu-
skála á lóðinni.
Í umsókn sinni vísar Hrafn til
samkomulagsins við borgaryfir-
völd. Byggingarfulltrúinn vil
hins vegar fá nánari upplýsingar
frá Hrafni um þær framkvæmdir
sem hann sækir um leyfi fyrir;
hverjar þær eru og hvernig þær
líta út.
Æðsta stjórn borgarinnar hef-
ur þegar sagt að afgreiðsla skipu-
lags- og byggingarfulltrúa skipti
ekki grundvallarmáli; Hrafn fái
einfaldlega persónubundna und-
anþágu verði honum synjað um
leyfið. ■
Uppbyggingarstarf:
Danir á leið
til Íraks
KAUPMANNAHÖFN, AP Danska þingið
hefur samþykkt að senda 380 her-
menn til Íraks til að taka þátt í upp-
byggingarstarfi að loknu stríði.
Dönsku hermönnunum er ætlað
að vera bandaríska og breska her-
liðinu til aðstoðar og verða þeir
flestir staðsettir í suðausturhluta
landsins. Í liðinu verða læknar,
verkfræðingar og sprengjusér-
fræðingar auk óbreyttra her-
manna.
Dönsk yfirvöld hafa frá upphafi
stutt innrás Bandaríkjamanna og
Breta í Írak. Sendu þau meðal ann-
ars kafbát og skip til Persaflóa um
það leyti sem stríðið hófst. ■
Yfirlæknar á Landspítala:
Velja spítalann
í stað stofu
YFIRLÆKNAR VELJA SPÍTALANN
Sigurður Björnsson, formaður sérfræði-
lækna, er ekki viss um að sú ákvörðun for-
svarsmanna spítalans að heimila yfirlækn-
um ekki að reka stofur sínar áfram eigi eft-
ir að nýtast öllum jafn vel.
UPPBYGGING Í ÍRAK
Langt ferli og margar hindranir í veginum.
Uppbygging
Íraks löng
og erfið
Siðferði og slæmar samgöngur eru bara hluti af
þeim vandamálum sem blasa við öllum sem
koma að uppbyggingarstarfinu í Írak.
52 kíló og þjáðist af átröskun:
Send í fitusogun
Hrafn sækir um byggingarleyfi:
Vantar útlistanir
frá Hrafni
LAUGARNESTANGI 65
Hrafn Gunnlaugsson hefur lagt í
miklar framkvæmdir við hús sitt í Laugar-
nesi en ekki hirt um blessun borgaryfir-
valda - þar til nú.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T