Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 9
■ Lögreglufréttir
11LAUGARDAGUR 17. maí 2003
LEXUS | N†B†LAVEGI 6 | SÍMI 570 5400 | WWW.LEXUS.IS
RX300
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
TO
Y
2
0?
??
05
/2
00
3
KOMDU OG SJÁ‹U N†JAN LEXUS RX 300 VI‹ N†JA BLÁA LÓNI‹ SEM ER STA‹SETT VI‹ S†NINGAR SAL
OKKAR Á N†B†LAVEGI. fiÁ GETUR fiÚ REYNSLUEKI‹ fiESSUM EINSTAKA BÍL OG UPPLIFA‹ fiÁ
FULLKOMNU VELLÍ‹AN SEM fiVÍ FYLGIR. OPI‹ 12 - 16 LAUGARDAG OG 13-16 SUNNUDAG.
FRUMS†NING
Á VELLÍ‹AN
SVISS, AP Fyrirhyggja stjórnvalda í
Sviss hafa valdið því að nú eru til
neðanjarðarbyrgi víðs vegar í
landinu, sem rúma allar sjö millj-
ónir landsmanna.
Þar til fyrir skemmstu kváðu
lög í landinu til um það að allar
nýjar byggingar yrðu að hafa neð-
anjarðarbyrgi, eða í öllu falli stað
í byggingunni þar sem veggir
væru tvöfaldir, bekkir og klósett-
aðstaða væru fyrir alla íbúa, og
að gott loftræstikerfi tryggði að
aldrei yrði loftlaust.
Lög þessi áttu að vernda borg-
arana gegn kjarnorkuvá Kalda
stríðsins en í dag eru byrgin orðin
aðhlátursefni aðkomumanna.
Ekki nóg með það heldur hafa
byrgin smám saman fengið nýtt
hlutverk sem aukageymslur fyrir
drasl.
Yfirvöld hafa loks ákveðið að
breyta lögunum og gefa íbúunum
sjálfum færi á að ákveða slík mál. ■
Aldrei of seint að byrgja:
Heimsmeistarar
í byrgjum
BYRGI Í SVISS
Þau eru nægilega mörg til að rúma
alla íbúa landsins.
LONDON, INDEPENDENT Bilið á milli
ríkra og fátækra í Bretlandi hefur
vaxið hröðum skrefum undir ríkis-
stjórn Tony Blair og er nú það
mesta í 13 ár, samkvæmt tölum frá
bresku hagstofunni.
Samkvæmt samræmdum al-
þjóðlegum staðli um mismunun á
stéttum innan þjóða eru Bretar nú í
35 stigum á móti 29 þegar Margar-
et Thatcher hélt um stjórnar-
taumana.
Er þetta vatn á myllu stjórnar-
andstæðinga sem segja þetta sýna
vanefndir á kosningaloforðum
Blairs en flokkur hans lýsti því yfir
að tekið yrði vandlega á þeim sem
hærri hafa launin.
Ástæður að baki þessu bili eru
hækkandi laun á sama tíma og
stjórnvöld hafa skorið niður bætur
til þeirra sem minna mega sín.
Gagnrýnendur segja að Tony Blair
taki lítið á málaflokknum vegna
þess að hann þurfi á stuðningi auð-
manna að halda, einkum þar sem
vinsældir hans sem stjórnmála-
manns hafi sjaldan verið lægri. ■
Skattabreytingar engu breytt:
Bil ríkra og
fátækra eykst
TVÖ INNBROT Á AKUREYRI
Tveir piltar voru handteknir á
Akureyri á fimmtudagskvöld.
Þeir höfðu farið bakdyramegin
inn á veitingastað í miðbænum.
og tekið þar áfengi ófrjálsri
hendi. Piltunum hafði ekki tekist
að drekka vínið þegar lögreglan
gómaði þá.
LÉST EFTIR FALL AF HESTBAKI
Kona datt af hestbaki á Lög-
mannshlíðarvegi seinni part
þriðjudags. Konan var meðvit-
undarlaus þegar hún fannst og
var flutt á sjúkrahús. Þar lést
hún um hádegið á fimmtudag af
völdum áverka er hún hlaut í
slysinu. Lögregla segir konuna
hafa verið vana hestum og með
hjálm á höfði.
AP
/M
YN
D