Fréttablaðið - 17.05.2003, Qupperneq 34
The Matrix Reloaded er, eins ogvið var að búast, heilmikil veisla
fyrir augað og þeir sem heilluðust af
stílfærðum og frumlegum bardögum
fyrstu myndarinnar fá heilmikið fyr-
ir sinn snúð og nokkur atriðin eru
hrein unun að horfa á.
Það þarf auðvitað ekki að taka
það fram að útlit myndarinnar er
óaðfinnanlegt og búningar og allt
þess háttar er í toppklassa. Þá standa
flestir leikararnir sig með prýði;
Carrie-Anne Moss er ferlega flott,
Jada Pinkett er svöl, Monica Bellucci
er æði, Fishburne er mesti töffarinn
og Hugo Weaving rúlar í hlutverki
Agent Smith. Takmarkanir Keanu
Reeves sem leikara þvælast fyrir
honum utan Matrixins en hann þræl-
virkar í sýndarveruleikanum.
Það er aftur á móti afskaplega lít-
ið nýtt að gerast í Reloaded og þetta
eru meira og minna sömu Matrix
taktarnir, bara í stærri og meiri
skömmtum. Þetta þarf ekkert endi-
lega að vera galli og það sem háir
myndinni fyrst og fremst er að
keyrslan er ekki nærri því jafn þétt
og áður, aðallega þar sem pólitík,
þingfundir og annað þess háttar
flækist inn í atburðarásina. Þetta
dregur nokkuð úr kraftinum og ger-
ir það óhjákvæmilega að verkum að
myndin virkar á köflum langdregin.
Þá er myndin drekkhlaðin af trú-
arlegum og heimspekilegum vanga-
veltum. Þær þjóna vissulega tilgangi
sögunnar en þriðja myndin verður
að skera úr um hvort The Matrix
gangi upp tilvistarheimspekilegur
hasarþríleikur.
Þórarinn Þórarinsson
17. maí 2003 LAUGARDAGUR28
ABRAFAX m/ísl tali kl. 2 og 4
JUST MARRIED kl. 5.50, 8 og 10.10
JOHNNY ENGLISH kl. 2, 4 og 6
DREAMCATCHER kl. 10
THUNDERPANTS kl. 2
SKÓGARLÍF 2 kl. 2 og 3.50 BULLETPROOF MONK kl. 8
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 3.15, 5.40, 8 og 10.20
kl. 6NÓI ALBINÓI
THE QUIET AMERICAN
MATRIX OG MATRIX RELOADED kl. 12
Sýnd kl. 2, 4, 5, 6, 8, 10 og 11 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 2, 6 og 10
kl. 2DIDDA OG DAUÐI KÖTT...TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl tali 2, 4, 6
kl. 10SAMSARA
kl. 3
kl. 8 og 10.05
THE PIANIST
kl. 3, 6 og 8JOHNNY ENGLISH
Sýnd kl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11 b.i. 12 ára
hvað?hvar?hvenær?
14 15 16 17 18 19 20
MAÍ
Laugardagur
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20
TÓNLIST Greifarnir hafa hingað til
ekki hagað sér eins og greifum
sæmir. Þeir styðjast ekki við að-
stoðarfólk og hafa því þurft að sjá
um öll sín mál sjálfir. Það færir
þá svo enn fjær greifalífinu að
þeir eru einfaldlega of duglegir
til þess að láta aðra stjana í kring-
um sig.
Á næstunni kemur út ný safn-
plata í búðir frá Greifunum. Þetta
er ekki sú fyrsta því síðast gáfu
þeir út safnplötu árið 1996 og er
þó nokkur munur á gripunum.
„Síðan sú plata kom hefur
komið út töluvert af efni,“ segir
Kristján Viðar Haraldsson, eða
Viddi, með sínu fræga látlausa yf-
irbragði – enda nýorðinn pabbi og
hefur því yfir öllu að gleðjast
þessa daganna. „Ætli um helming-
ur laganna á þeirri plötu séu ekki
líka á þessari. Þau lög sem okkur
fannst ekki hljóma nægilega vel
voru endurhljóðjöfnuð. Þau ættu
því að hljóma betur en á þeirri
fyrri.“
Með safnplötunni fylgir auka-
diskur með upptökum af óraf-
mögnuðu tónleikum Greifanna í
Íslensku Óperunni árið 2001. Á
tónleikaplötunni er að finna tvö
ný lög, „Reyndu aftur“ og „Ég vil
bara þig“.
„Yfir safnplötunni er þannig
yfirbragð að fólk á að drekka
bjór, standa uppi á borði og
syngja með. Órafmagnaða platan
er meira rauðvín og ostar. Við
vorum svo með frábæra menn
með okkur á tónleikunum sem
skiluðu sínu inn í tónlistina. Mér
dettur t.d. í hug lög eins og
„Þyrnirós“ og „Nótt“ þar sem út-
gáfurnar eru mjög ólíkar þeim
upphaflegu. „Útihátíð“ er svo í
kántríútsetningu með fiðlum og
harmonikku.“
Síðasta breiðskífa Greifanna,
„Í Ljósaskiptunum“, kom út árið
1997. Upp frá því hefur sveitin
minnt á sig með því að leka út
einu og einu lagi á safnplötum
Skífunnar. Vidda dreymir um að
gera aðra breiðskífu einn daginn.
„Við hefðum viljað gera fleiri
því þá fær maður meira frelsi.
Þeir sem hafa hlustað á plöturnar
okkar vita að þar eru yfirleitt eitt
eða tvö lög sem eru svolítið til-
raunakennd og ná því ekki alveg í
gegn. Þegar maður gerir breið-
skífur er ekki alltaf sama pressan
á mann að maður þurfi að skila
slagara,“ segir Viddi að lokum.
biggi@frettabladid.is
Á næstunni kemur út tvöföld safnplata frá Greifunum. Önnur platan inniheldur
safn þeirra bestu laga en hin upptökur af órafmögnuðum tónleikum.
Safnplötulíf
Stærra og meira
Matrix
22.00 Hljómsveitirnar Hölt Hóra,
Botnleðja, Maus, Dáðadrengir og Vín-
yll rokka á Grand Rokk.
22.00 Söngskemmtunin American
Graffiti verður í Ásbyrgi á Broadway.
Söngvararnir Anna Vilhjálms, Bertha
Biering, Garðar Guðmundsson, Kolbrún
Sveinbjörnsdóttir, Mjöll Hólm, Sigurður
Johnny og Þorsteinn Eggerts flytja
gömlu góðu lögin frá ‘57-’67. Heiðurs-
menn leika síðan fyrir dansi.
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 3, 6 og 9
DARKNESS FALLS b.i. 16 kl 8 og 10
Sími 517 1500 • Sætún 4 • 105 Reykjavík
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Allar Teknos vörur skv. ISO 9001 gæðastaðli.
w w w . i s l a n d s m a l n i n g . i s
ÍSLANDS MÁLNING
akrýlHágæða
innimálning
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Gömlu stuðboltarnir í hljómsveit-
inni Júdas frá Keflavík koma saman á
ný á Kringlukránni. Hljómsveitin
Cadillac hitar upp.
Gullfoss og Geysir skemmta í Leik-
húskjallaranum.
Stórdansleikur verður með hljóm-
sveitinni Skítamóral í aðalsal Broad-
way, strax að loknu lokahófi HSÍ.
Óskar Einarsson trúbador skemmt-
ir á Ara í Ögri.
Rokksveitin Sixties spilar á Café
Amsterdam.
Leiksýningin Le’ Sing - syngjandi
þjónar verður á litla sviðinu í Broad-
way. Leikarar, söngvarar og grínistar
skemmta og þjóna gestum.
GREIFARNIR
„Þeir sem hafa fylgst vel með frá upphafi hljóta að hafa tekið eftir því að það hefur orðið mikil breyting á tónlistinni,“ segir Viddi,
söngvari Greifanna. „Lagasmíðarnar eru flóknari og ég er öruggur á því að textarnir eru orðnir betri núna en þegar við vorum ungir.“
THE MATRIX RELOADED
Aðalhlutverk: Keanu Reeves, Carrie-Anne
Moss, Laurence Fishburne
Umfjölluntölvuleikir
Gifssteinar fyrir
milliveggi og aðra
breytingarvinnu.
www.gifsverk.is
MEÐVIRKNI
Fjögurra helga sumarnámskeið
byrjar 31. mai -1. júni
Uppl.: Gitte Lassen, s: 861-3174, gitte@mi.is