Fréttablaðið - 17.05.2003, Síða 44
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 515 75 00, fax: 515 75 16 Ritstjórn: 515 75 05, fax: 515 75 06, ritstjorn@frettabladid.is
Auglýsinga- og markaðsdeild: 515 75 15 - fax 515 75 16, auglysingar@frettabladid.is Dreifing: 515 75 00, dreifing@frettabladid.is
VI Ð S EG J U M F R É T T I R SM Á A U G L Ý S I N G AS Í M I N N E R 515 7500
Bakþankar
EIRÍKS JÓNSSONAR
Palli og hinir
www.IKEA.is
Grillum og gleðjumst!
1.290,- 490,-990,- 790,-690,- 250,-
Laugardaga ..................kl. 10:00 - 18:00
Sunnudaga....................kl. 12:00 - 18:00
Mánudaga - föstudaga...kl. 10:00 - 18:30
www.IKEA.is
7.900,-
IKEA/PS BETSÖ svunta IKEA/PS BETSÖ grillhanski IKEA/PS BETSÖ grilltöng, grillspaðiSOLA skál 32cm og 14cm
ÍS
LE
NS
KA
A
UG
LÝ
SI
NG
AS
TO
FA
N
EH
F/
SI
A.
IS
IK
E
21
09
6
05
.2
00
3
©
In
te
r
IK
EA
S
ys
te
m
s
B.
V.
2
00
3
IKEA/PS BETSÖ grill 35Ø,
ryðfrítt stál
Frumkrafturinn er skemmtilegur.Sést best á sýningu listnema í
Listasafni Reykjavíkur sem tekur
flestum sýningum fram sem þar
hafa verið áður. Þarna eru þó á ferð
tilvonandi listamenn þjóðarinnar;
ekki núverandi eða fyrrverandi.
Eitthvað til að sjá, hrífast af og
reyna. Seinna fara listnemarnir lík-
lega að gera þetta flóknara. Apa þar
með eftir þeim sem lengra eru
gengnir á listabrautinni. Sanna sig
fyrir þeim sömu. Á kostnað frum-
kraftsins.
SVO sem eins í bókmenntunum. Eft-
ir á að hyggja er Gagn og gaman
skemmtileg og frumleg bók. Svo
ekki sé minnst á Palli var einn í
heiminum. Þó persónurnar í þeirri
síðarnefndu séu hvorki margar né
margbrotnar felst í Palla allt sem til
þarf: Flöktandi frelsið, fallvaltleiki
valdsins, skömm ágirndarinnar og
síðast en ekki síst einmanaleiki þess
sem allt fær án þess að hafa til þess
unnið. Viðfangsefni rithöfunda um
aldir sem kosið hafa að fara Krísu-
víkurleiðina að settu marki. Flækja
málin. Breyta nafninu á Palla og
bæta við persónunum sem allar eru
eins þegar öllu er á botninn hvolft.
SARTRE, Nietzsche, Hemmingway
og Laxness voru allir að fást við
Palla sem var einn í heiminum. Og
jafnvel Einar Kárason líka. Höfund-
ur sögunnar, Jens Sigsgaard, stytti
sér hins vegar leið og skaut þeim
fyrir bragðið flestum ref fyrir rass.
Með því að nota frumkraftinn.
Kannski erfitt að skilja. Ef ekki nú,
þá bara síðar.
ÞEIR sem kjósa að flækja málin á
tímabilinu frá æsku til elli geta
huggað sig við að tvisvar verður
hver maður barn. Flækjufótum hef-
ur best hugnast að skýra einfaldan
frumkraft í hugsun og tjáningu
eldra fólks sem hrörnun. En fátt er
jafnfjarri sanni. Í þroska ellinnar
endurheimtir maðurinn eigin bern-
sku. Snýr aftur til eigin upphafs þar
sem frumkrafturinn býr. Í honum
búa möguleikarnir, vonin og lífið
sjálft í sinni fegurstu mynd. ■