Fréttablaðið - 20.05.2003, Síða 10
20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Skráðu þig í tilboðsklúbb
Iceland Express á Netinu
Og njóttu þess að fá reglulega send til þín frábær tilboð sem
eingöngu eru veitt félögum í tilboðsklúbbi Iceland Express. Skráðu þig á
www.IcelandExpress.is núna! Daglegt flug til Kaupmannahafnar og London.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Nýrra reglugerða að vænta:
Styttir einangrun gæludýra
EINANGRUN Breytinga er að vænta
á reglum um sóttkví á einangrun-
arstöð gæludýra á næstunni. Í
landbúnaðarráðuneytinu er í smíð-
um reglugerð um að stytta tímann
í einangrun í Hrísey úr sex og átta
vikum niður í fjórar vikur.
Að sögn Atla Más Ingólfssonar
í landbúnaðarráðuneytinu tekur
reglugerðin að fullu gildi um
næstu áramót. „Reglugerðin er
grundvölluð á áhættumati um inn-
flutning gæludýra sem unnið var
fyrir ráðuneytið fyrir skömmu.
Hún felst í því að ferlið hefst í því
landi sem dýrið kemur frá og
styttir þar með tímann í einangr-
un hér á landi,“ segir Atli.
Þá er væntanleg reglugerð um
einangrunarstöðvar en í henni er
gert ráð fyrir að einkaaðilar geti
rekið slíka stöð. ■
Kæra vegna
leynimyndavélar
Kona sem er sökuð um vændi kærir Stöð 2 til siðanefndar
Blaðamannafélags Íslands.
KÆRUMÁL Meint vændiskona í
Hafnarfirði hefur kært Stöð 2 til
siðanefndarBlaðamannfélags Ís-
lands. Kæran snýst um för sjón-
varpsmanna Íslands í bítið í bíl-
skúr þar sem konan og sambýlis-
maður hennar eru talin hafa
stundað atvinnurekstur sem sner-
ist um sölu á blíðu. Konan sakar
sjónvarpsfólkið um að hafa komið
á fölskum forsendum með falda
myndavél í farteskinu. Útkoman
var svo sýnd í Íslandi í bítið um
m á n a ð a m ó t i n
apríl/mars síð-
astliðinn en þar
sagði konan frá
umsvifum sín-
um.
„Við vorum
búin að kanna
hina lagalegu
hlið og töldum
okkur hafa lögin
okkar megin –
að við værum í
raun að ljóstra
upp um ólöglegt
athæfi,“ segir
Þórhallur Gunn-
arsson, þáttagerðarmaður í morg-
unþætti Stöðvar 2 – Ísland í bítið.
Hann telur málið vera athyglis-
vert en að það hafi ekki komið al-
gerlega flatt upp á sig. Konan hafi
gefið það í skyn að hún myndi
gera allt, fyrst til að stöðva sýn-
inguna og svo að það yrðu eftir-
málar.
Fréttablaðið birti viðtal við
konuna seint á síðasta ári þar sem
hún lýsti starfi sínu sem vændis-
kona.
Lögreglan hóf á sínum tíma
sjálfstæða rannsókn á starfi kon-
unnar og niðustöðunum var svo
skilað til ríkissaksóknara, sem
sendi málið aftur til lögreglu. Lög-
reglan hefur nú lokið seinni hluta
rannsóknar sinnar og sent ríkis-
saksóknara.
Fari kæra konunnar lengra, en
oft virðist sem úrskurður Siða-
nefndarinnar sé eins konar próf-
steinn, verður það í fyrsta skipti
sem ákært verður fyrir notkun
falinnar myndavélar hér á landi,
sem og í fyrsta skipti sem gefin er
út ákæra á hendur meintri vænd-
iskonu.
jakob@frettabladid.is
VEITINGASTAÐIR Í júníbyrjun munu
nýir eigendur taka við rekstri
Vagnsins á Flateyri. Vagninn er
landsþekkt krá sem rekin hefur
verið í hartnær 20 ár á Flateyri
undir slagorðinu Staður á undan
sinni framtíð, sem er tilvísun í eitt
þekktra orðatiltækja stofnenda
staðarins, Guðbjarts Jónssonar.
Árni B. Ólafssonar, veitingamað-
ur á Ísafirði, hefur rekið staðinn
að undanförnu en nú tekur við
rekstrinum Þorvaldur Pálsson,
sem rekur einnig Essóskálann.
Sparisjóður Vestfirðinga á hús-
næði Vagnsins og nafn.
Héraðsfréttablaðið BB hefur
eftir Þorvaldi að hann sé bjart-
sýnn á sumarið enda mikið fram
undan í menningarlífinu á Flat-
eyri.
Hæst ber hátíðina Grænlensk-
ar nætur, sem haldin verður um
miðjan júlí, og útihátíðina Rokk
og reyk um verslunarmannahelg-
ina. ■
UM NÆSTU ÁRAMÓT VERÐUR BIÐIN AÐEINS FJÓRAR VIKUR
Dýr sem koma frá löndum þar sem er hundaæði hafa þurft að vera í einangrun
í átta vikur. Nú þurfa þau aðeins fjögurra vikna einangrun.
VÆNDI Í HAFNARFIRÐI
Konan hefur kært Stöð 2 til siðanefndar blaðamannafélagsins fyrir notkun falinnar
myndavélar en sjálf á hún yfir höfði sér kæru vegna vændis.
„Fari kæra
konunnar
lengra verður
það í fyrsta
skipti sem
ákært verður
fyrir notkun
falinnar
myndavélar
hér á landi.
FLATEYRI
Nýir aðilar hafa tekið við rekstrinum.
Vestfirðir:
Vagninn í nýjum
höndum