Fréttablaðið - 20.05.2003, Síða 13

Fréttablaðið - 20.05.2003, Síða 13
■ Asía ■ Lögreglufréttir 13ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 Afgreiðslutími allra verslana Hörpu Sjafnar! Alla virka daga kl. 8–18 og laugardaga kl. 11–15. Helgarvakt í Skeifunni 4. Opið laugardaga kl. 11–18 og sunnudaga kl. 13–18. Skeifan 4 Reykjavík Sími 568 7878 Snorrabraut 56 Reykjavík Sími 561 6132 Stórhöfði 44 Reykjavík Sími 567 4400 Austursíða 2 Akureyri Sími 461 3100 Hafnargata 90 Keflavík Sími 421 4790 Dalshraun 13 Hafnarfirði Sími 544 4414 Austurvegur 69 Selfossi Sími 482 3767 Bæjarlind 6 Kópavogi Sími 544 4411 599kr. lítrinnm.v.10 lítra dós 672kr . lítrinn 789 kr. lítrinn 399kr. lítrinn Stórafsláttur af útimálningu og viðarvörn SUMARTILBOÐ NAYEF PRINS Nayef innanríkisráðherra tilkynnti að fjórir menn væru í haldi vegna gruns um aðild að hryðjuverkaárásunum í síðustu viku. Hryðjuverkárásirnar í Sádi-Arabíu: Liðsmenn al Kaída í haldi SÁDI-ARABÍA, AP Yfirvöld í Sádi- Arabíu hafa handtekið fjóra menn í tengslum við hryðjuverkaárás- irnar í Riyadh í síðustu viku. Að sögn Nayef prins, innanríkisráð- herra landsins, bendir allt til þess að fjórmenningarnir séu liðsmenn hryðjuverkasamtakanna al Kaída. Í yfirlýsingu ráðherrans kom einnig fram að þrír hryðjuverka- mannanna sem létust í árásunum hefðu verið eftirlýstir af yfirvöld- um vegna meintra tengsla þeirra við al Kaída. ■ FLÓÐ OG AURSKRIÐUR Að minnsta kosti 84 hafa látið lífið í flóðum og aurskriðum í suður- hluta Sri Lanka. Yfir 150.000 manns hafa orðið að yfirgefa heimili sín. Neyðarástand ríkir á svæðinu og hafa srílönsk yfirvöld beðið nágrannaríkið Indland um að aðstoða við björgunaraðgerðir. MANNTJÓN OG UPPSKERUBREST- UR Flóð af völdum rigninga hafa kostað 40 manns lífið í mið- og suðurhluta Kína. Að minnsta kosti 18.000 manns hafa orðið að yfirgefa heimili sín. Vatnsflaum- urinn hefur eyðilagt uppskeru og sópað burt fjölda bygginga. Tjón af völdum flóðanna er metið á sem svarar yfir 2,5 milljörðum íslenskra króna. Bílslys í Vestmanna- eyjum: Óbreytt líðan SLASAÐIR Stúlkan sem lenti í bíl- slysi í Vestmannaeyjum um þarsíðustu helgi liggur enn á gjör- gæsludeild Landspítala – háskóla- sjúkrahúss. Að sögn vakthafandi læknis er líðan hennar óbreytt. Hin stúlkan sem einnig var flutt á Landspítalann er á batavegi. Sem kunnugt er voru stúlkurnar þrjár í bílnum þegar slysið varð. Ein þeirra lést á sjúkrahúsinu í Vest- mannaeyjum. Slysið var með þeim hætti að bíllinn sem stúlkurnar voru á lenti utan vegar og hafnaði á steinvegg. ■ ELDUR Í BÍLSKÚR Eldur kviknaði í bílskúr sem sambyggður er húsi við Suðursali í Kópavogi klukkan fjögur í fyrrinótt. Þegar lögreglan kom á vettvang voru íbúar komnir út úr húsinu. Eldur logaði í einu horni bílskúrsins og náðu lögreglu- menn að slökkva hann með því að úða úr duftslökkvitæki. Skemmdir af völdum eldsins urðu óverulegar en reykræsta þurfti bílskúrinn og íbúðina. 62 KÆRÐIR FYRIR HRAÐAKSTUR Sextíu og tveir ökumenn voru kærðir fyrir hraðakstur í umdæmi lögreglunnar á Selfossi í síðustu viku og átta fyrir að hafa ökuskír- teini ekki meðferðis. Fjórir öku- menn voru kærðir vegna gruns um ölvun við akstur og mega þeir bú- ast við að verða sviptir ökuréttind- um. Átta umferðaróhöpp urðu þar sem tjón varð á ökutækum en eng- in teljandi slys urðu á fólki.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.