Fréttablaðið - 20.05.2003, Page 16
16 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
ÖRLAGARÍKT SPJALD
Urs Meier sýnir Pavel Nedved gula spjaldið
í leik Juventus og Real Madrid. Nedved
braut á Steve McManaman átta mínútum
fyrir leikslok og missir fyrir vikið af úrslita-
leik Meistaradeildarinnar eftir átta daga.
Fótbolti
FÓTBOLTI Eftir að fregnir tóku að
berast af gífurlegri skuldasöfnun
undanfarinna ára hjá Chelsea
töldu margir að peningavandræð-
in myndu yfirbuga félagið. Talað
var um 10,8 milljarða króna
skuldahala vegna sjö ára endur-
byggingar Stamford Bridge og
gífurlegs kostnaðar vegna launa
leikmanna.
Ken Bates, eigandi Lundúna-
liðsins, hefur blásið á allar vanga-
velturnar og segir þær aldrei hafa
angrað sig. Enda getur hann litið
bjartsýnum augum á næstu leik-
tíð. Chelsea hefur tryggt sér sæti
í Meistaradeildinni að ári, sæti
sem gefur félaginu um 2,4 millj-
arða króna í vasann. Tekjur
Chelsea af miðasölu og beinum út-
sendingum munu aukast til muna,
auk þess sem félagið hefur nú
sterkari stöðu hvað varðar kaup
og sölu leikmanna.
Fall West Ham úr úrvalsdeild-
inni þýðir um 2,4 milljarða tap, að
því er fjármálaspekingar halda
fram. Ljóst er að félagið þarf að
lækka svimandi háan launakostn-
að sinn og hefur stefnan verið sett
á að draga úr honum um 1,2 millj-
arða króna. Þegar hefur verið
ákveðið að samningar tíu leik-
manna verða ekki endurnýjaðir. Á
meðal þeirra eru Ítalinn Paolo Di
Canio, sem er sagður hafa þénað
um 4,2 milljónir á viku, Lee
Bowyer og gamla kempan Nigel
Winterburn.
„Það þarf að spara í mörgum
hliðum rekstrarins en það verður
samt ekki farið í afdrifaríkar að-
gerðir. Við erum í viðkvæmri
stöðu þar sem erfitt er að halda
jafnvægi. En við ætlum okkur
strax upp aftur,“ sagði Paul
Aldridge, framkvæmdastjóri liðs-
ins, eftir að ljóst var að samfelldri
tíu ára veru liðsins í úrvalsdeild-
inni væri lokið.
Milan Mandaric, formaður
Portsmouth, sigurvegara 1. deild-
arinnar, hefur lofað því að setja
næga peninga í liðið til að tryggja
að það haldi sætinu í úrvalsdeild-
inni á næstu leiktíð. Mandaric
hefur þegar eytt um þremur millj-
örðum króna á undanförnum
árum til að koma liðinu í efstu
deild. Harry Redknapp, knatt-
spyrnustjóri Portsmouth, segist
þurfa að minnsta kosti sex nýja
leikmenn svo liðið fari ekki bein-
ustu leið aftur í 1. deildina. Einn
þeirra verður að öllum líkindum
nígeríski framherjinn Yakubu
Ayegbini, sem hefur verið í láni
síðustu 6 mánuði hjá liðinu.
Mandaric gerir sér grein fyrir
því að krefjandi verkefni bíður
Portsmouth: „Við þurfum að halda
okkur í úrvalsdeildinni og byggja
nýjan leikvang. Lífið snýst um
áskoranir sem þessar. Þær skilja
mennina frá drengjunum. Við
þurfum að halda okkar striki á
meðal þeirra bestu í eina leiktíð
og það þýðir að ná í 40 stig eins
fljótt og mögulegt er. Þegar það
hefur tekist munum við reyna að
festa okkur í sessi sem úrvals-
deildarlið.“ ■
CHELSEA
Óvíst er hvað tekur við hjá eldri leikmönnum Chelsea á næstu leiktíð. Zola, Petit, Stanic
og Desailly eru allir komnir á fertugsaldur og fara brátt að syngja sitt síðasta. Chelsea hef-
ur nú sterkari stöðu en áður hvað varðar kaup og sölu leikmanna og gæti freistast til að
halda í þessa reyndu kappa fyrir næstu leiktíð.
Milljarðar
koma og fara
Í íþrótt þar sem peningar skipta gríðarlegu
máli er nauðsynlegt að halda rétt á spilunum.
Ensku liðanna Chelsea, West Ham og
Portsmouth bíða miserfið verkefni á næstunni.
Næsti forseti franska liðsinsParis St. Germain segir að
forsvarsmenn Manchester
United hafi fyrir tveimur vikum
óskað eftir fundi til að ræða um
kaup á Brasilíumanninum Ron-
aldinho. Hann segist hafa hafnað
öllum viðræðum og því hafi eng-
inn samningur verið gerður.
Claude Makelele, miðjumaðurReal Madrid, segist ekki
hafa áhuga á að semja við
Manchester United. Fregnir af
áhuga hans á að ganga til liðs
við ensku meistarana í blaðinu
News of the World virðast því
hafa verið úr lausu lofti gripn-
ar.
Franski miðjumaðurinn Oli-ver Dacourt hefur gert þrig-
gja ára samning við ítalska liðið
Roma. Dacourt, sem er 28 ára
gamall, kom sem lánsmaður til
Roma frá enska liðinu Leeds í
vetur. Félagaskiptin ættu að
koma Leeds vel eftir öll
fjárhagsvandræði liðsins.
■ Fótbolti
FÓTBOLTI Fyrstu umferð Lands-
bankadeildar kvenna lýkur í
kvöld með þremur leikjum. Um-
ferðin hófst á laugardag þegar
Breiðablik vann Þór/KA/KS 2:1 í
Kópavogi en í kvöld fær ÍBV
Stjörnuna í heimsókn, Valur og
FH leika að Hlíðarenda og sam-
eiginlegt lið Þróttar og Hauka
leikur gegn KR á Valbjarnar-
velli.
Val er spáð sigri á mótinu
enda hefur félaginu gengið mjög
vel í vormótunum. FH-ingum,
gestum Vals, er hins vegar spáð
falli en félagið hefur misst lykil-
menn frá síðasta ári. Félögin
hafa ekki mæst í ár en í 1. um-
ferð í fyrra vann Valur 3:1 að
Hlíðarenda og fylgdi því eftir
með 3:0 sigri í Kaplakrika tveim-
ur mánuðum síðar.
ÍBV hefur hins vegar fengið
mikinn liðsstyrk fyrir sumarið
og ætti að sigra lið Stjörnunnar,
sem hefur tekið miklum breyt-
ingum frá því í fyrra. ÍBV vann
leik liðanna í deildabikarnum í
lok mars, 3:1.
Þróttur/Haukar leikur gegn
Íslandsmeisturum KR í frum-
raun sinni í efstu deild. KR vann
leik liðanna á Reykjavíkurmót-
inu 11:1 í byrjun mars. ■
LANDSBANKADEILDIN
KR hefur titil að verja. Búist er við að Valur, Breiðablik og
ÍBV keppi við KR-inga um titilinn.
Landsbankadeild kvenna:
Frumraun
Þróttar/Hauka