Fréttablaðið - 20.05.2003, Síða 19

Fréttablaðið - 20.05.2003, Síða 19
19ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 hvað?hvar?hvenær? 17 18 19 20 21 22 23 MAÍ Þriðjudagur Vegna tilkynningar um væntanlegt yfirtökutilboð nokkurra aðila á hlutafé Baugs Group hf. hefur aðalfundi félagsins, sem halda átti þriðjudaginn 20.maí nk., verið frestað. Fundurinn verður haldinn fyrir lok júní svo sem áskilið er í samþykktum félagsins. F.h. stjórnar Baugs Group hf. Hreinn Loftsson hrl. ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S B A U 2 1 1 9 4 0 5 /2 0 0 3 Tilkynning um frestun aðalfundar Baugs Group hf. KÖRFUBOLTI Jason Kidd tryggði New Jersey Nets sigur á Detroit Pistons í úrslitakeppni NBA í fyrrakvöld með frábæru skoti þegar 1,4 sekúndur voru eftir af leiknum. Leiknum lauk með sigri Nets 76:74. Þetta var fyrsti leikurinn í einvígi liðanna í úrslitum Aust- urdeildarinnar. „Þjálfarinn kall- aði nafnið mitt og samherjar mínir höfðu trú á mér,“ sagði Kidd eftir leikinn. „Maður vill fá boltann í hendurnar á svona mikilvægu augnabliki og loksins náði ég að klára það.“ Kidd skoraði 15 stig í leikn- um, tók 9 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal boltanum þrisvar. Kenyon Martin bætti 16 stigum við fyrir Nets. Richard Hamilton var stigahæstur í liði Pistons með 24 stig. Ben Wallace, samherji Hamilton, tók 22 fráköst í leiknum, þar af 13 í fjórða leikhluta. Næsta viðureign liðanna verður háð á heimavelli Pistons í kvöld. ■ KIDD Jason Kidd skorar sigurkörfuna gegn Detroit Pistons. Chauncey Billups kemur engum vörnum við. Úrslitakeppni NBA: Kidd með sigurkörfuna Lokahóf HSÍ: Stelmokas og Hanna best HANDBOLTI Andreas Stelmokas, leikmaður KA, og Hanna Guðrún Stefánsdóttir, leikmaður Hauka, voru valin bestu leikmenn Esso- deildar karla og kvenna á loka- hófi HSÍ sem haldið var um helgina. Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukum, og Elísabet Gunnars- dóttir, Stjörnunni, voru valin efnilegustu leikmenn deildar- innar. Bestu þjálfaranir voru þeir Viggó Sigurðsson, hjá karlaliði Hauka, og Gústaf Adolf Björns- son, þjálfari kvennaliðs félags- ins. ■ Martina Navratilova: 170. sigurinn TENNIS Martina Navratilova, sem eitt sinn var besta tenniskona heims, sigraði í tvíliðaleik á Opna ítalska meistaramótinu um helgina. Þetta var 170. sigur Navrat- ilovu í tvíliðaleik á ferlinum, sem spannar nú 28 ár. Það var hin 17 ára gamla Svetlana Kuzn- etsova frá Rússlandi sem lék við hlið hinnar 46 ára gömlu Navra- tilovu á mótinu. „Ég veit að ég spila ekki eins vel og fyrir 20 árum en fólki er alveg sama,“ sagði Navratilova eftir að sigurinn var í höfn. „Ég elska það sem ég geri. Tennis er mín ástríða alveg eins og lífið sjálft.“ ■  15.00 Stöð 2 Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  17.30 Sýn Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta- viðburði heima og erlendis.  18.00 Sýn Meistaradeild Evrópu. Farið er yfir leiki síðustu umferðar og spáð í spilin fyrir þá næstu.  19.00 Sýn European PGA Tour 2003. Sýnt frá móti úr evrópsku PGA-mótaröðinni í golfi.  20.00 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim.  20.00 Valbjarnarvöllur Þróttur/Haukar mætir KR í Lands- bankadeild kvenna í fótbolta.  20.00 Hásteinsvöllur Eyjastúlkur taka á móti Stjörnunni í Landsbankadeild kvenna í fótbolta.  20.00 Hlíðarendi Valur og FH eigast við í Landsbanka- deild kvenna í fótbolta.  22.30 Sýn Olíssport. Fjallað er um helstu íþrótta- viðburði heima og erlendis.  0.30 Sýn Trans World Sport. Íþróttir um allan heim. NAVRATILOVA Martina Navratilova hefur leikið sem at- vinnumaður í tennis í 28 ár. Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154 www.teflon.is LAKKVÖRN BRYNGLJÁI Á BÍLINN! Blettun-djúphreinsun-alþrif.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.