Fréttablaðið - 20.05.2003, Side 22
20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR22
JUST MARRIED 3.45, 5.50, 8 og 10.10 JOHNNY ENGLISH kl. 4 og 6DREAMCATCHER kl. 10
BULLETPROOF MONK kl. 8Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20
kl. 6NÓI ALBINÓI
THE QUIET AMERICAN
Sýnd kl. 4, 5, 6, 8 og 10 b.i. 16 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 10
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl tali 4, 6
kl. 10SAMSARA
kl. 8
kl. 8 og 10.05
UNE AFFAIRE DE GOUT
kl. 8JOHNNY ENGLISH
Sýnd kl. 5, 6, 8, 9 og 11 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20
TÓNLIST Að þekkja mann og annan
getur verið ágætis ávísun á plötu-
samning. Það var a.m.k. tilfelli þeir-
ra Jóhanns Ómarssonar og Þorsteins
Ólafssonar sem völdu sér lista-
mannanöfnin Skurken og Prince
Valium. Jóhann, eða Skurken, kom
prufuupptökum til bresku útgáfunn-
ar Resonant í gegnum fyrrum skóla-
félaga sinn. Eftir það hreyfðust hlut-
ir hratt og nú er búið að dreifa
fyrstu plötu þeirra félaga „Í þágu
fallsins“ víða.
„Ég er búinn að sjá að platan er
til sölu í Japan, Hollandi, Kanada og
bara hér og þar,“ segir Jóhann hálf
hissa. Piltarnir fengu svo 150 eintök
send hingað heim. Platan er nú þeg-
ar fáanleg í 12 Tónum og verður
dreift í aðrar plötubúðir fljótlega.
Í fyrra gáfu Undirtónar út plötu
með Skurken og Prince Valium sem
innihélt lög sem þeir gerðu í sitt
hvoru lagi. Samstarf þeirra er því
eldra en sameiginleg tónlistarsköp-
un þeirra.
„Ég var nemi í Listaháskólanum
og Prince Valium var alltaf að koma
í heimsókn til mín,“ útskýrir Jóhann.
„Ég var þar með fína aðstöðu og við
byrjuðum að fikta eitthvað saman.
Síðan endaði það á því að við vorum
komnir með plötu sem við sendum
út. Við höfðum alltaf verið að spila
saman en alltaf gert tónlist í sitt
hvoru lagi. Þetta er fyrsta tónlistin
sem við gerum saman.“
Fyrir samstarfið gerðu félagarn-
ir ólíka tónlist. Skurken var ögn
furðulegri og hraðari en Prince Vali-
um stóð undir nafni og gerði rólegri
og draumkenndari tóna. „Síðan er
þetta komið út í einhverjar tölvu-
leikja bongópælingar. Ég er eigin-
lega alveg hættur að reyna skil-
greina þetta eitthvað.“
Félagarnir hafa verið iðnir við að
koma fram á tónleikum, sem er frek-
ar sjaldgæft í tilfelli rafsveita. Jó-
hann segist skilja þann trega og seg-
ist hafa fundið fyrir fordómum tón-
leikagesta gagnvart raftónlist.
„Fólk vill bara sjá einhvern með
gítar og trommusett. Það er mjög
þröngur hópur sem mætir. Þegar við
mætum með græjurnar okkar erum
við oft spurðir hvort við séum að
fara að spila tölvuleiki. Þess vegna
reynum við að setja upp einhverja
smá sýningu utan um þetta líka. Það
er svo leiðinlegt að horfa á einhvern
gaur með fartölvu leggja kapal. Raf-
tónlistarmenn hafa nú gert svoleiðis,
meira að segja ég.“
biggi@frettabladid.is
Fjórði leikurinn í Delta Force-seríuNovalogic gerist á tíu mánaða
tímabili í Sómalíu árið 1993. Þetta er
fyrstu persónu einmenningsskotleik-
ur sem setur spilarann í hlutverk
bandarísks sérsveitarhermanns og
byggir á söguþræði samnefndrar
kvikmyndar.
Mikið er lagt upp úr því að hafa
allt sem raunverulegast í leiknum
(fyrir utan óþrjótandi skotfærabirgð-
ir líklega) og gefst manni meðal ann-
ars færi á að fljúga með þyrlu, sem
er hressandi, og tæta upp rykið á
Hummer vopnuðum 50 kalíbera vél-
byssu.
Grafíkin er ágæt, en Novalogic
notar sína eigin þrívíddarvél til að
smíða umhverfi leiksins, sem þýðir
að leikurinn er ekki það flottasta á
markaðnum en gerir hönnuðum BHD
hins vegar kleift að smíða mjög stór
borð sem hægt er að skoða hvern
krók og kima í.
Leiðangrarnir 20 sem spilarinn
getur klárað snúast um að útrýma
óvininum en jafnframt að bjarga
samlöndum sínum úr klóm óvinarins.
Manni gefst til dæmis kostur á að
stjórna lítilli herdeild og þar fær leik-
urinn mínus þar sem gervigreindin
er alls ekki eins og hún gerist best.
Hermennirnir beggja megin víglín-
unnar eru einfaldlega ekki nógu gáf-
aðir til að þetta teljist mjög raun-
verulegt. Þetta er hins vegar ágæt af-
þreying fyrir þá sem eru ekki of
kröfuharðir að því leytinu til. Fjöl-
spilunarmöguleikinn (sem undirrit-
aður náði ekki að kynna sér) gæti
einnig gefið leiknum aukinn líftíma.
Einmennings/fjölspilunardemó er
að finna á www.hugi.is/hahradi/ .
Gunnlaugur Lárusson
DELTA FORCE
Black Hawk Down
Umfjölluntölvuleikir
Vélbyssugelt
og þyrluflug
Sýnd kl. 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 6 og 9
DARKNESS FALLS b.i. 16 kl 8 og 10
Ævintýri Skurken og
Prince Valium
SKURKEN & PRINCE
VALIUM
Eru komnir á mála hjá
bresku útgáfunni
Resonant og fá útgáfu
víðs vegar um heim.
Þess má geta að Staf-
rænn Hákon hefur tryg-
gt sér samning við út-
gáfuna líka.
Fréttiraf fólki
Það á ekki afhenni Halle
Berry að ganga
í Kanada.
Stúlkan er þar
við tökur á kvik-
myndinni „Got-
hika“. Fyrst
fannst henni
sér vera
ógnað af
bráðalungna-
bólgu sem
hefur gert
vart við sig
í landinu,
næst
brýst
maður
inn í hús
hennar á
meðan hún
er hálf berrössuð í nuddi og
núna dettur hún og handlegg-
brýtur sig. Berry var við tökur í
gær þegar atvikið átti sér stað.
Hún var keyrð upp á spítala þar
sem kom í ljós að hún hafði brot-
ið bein í hægri upphandlegg.
Óvíst er hvenær hún getur mætt
aftur í vinnuna.
Stöllurnar Nicole Kidman ogPenelope Cruz leggja sig allar
fram við að hittast ekki á kvik-
myndahátíðinni
í Cannes í
Frakklandi.
Þær þurftu
báðar að heim-
sækja borgina
til þess að
kynna nýjustu
myndir sínar
og vildu forð-
ast það að
rekast á hvor
aðra. Þær hafa ekki talast við frá
því að Penelope Cruz fór að vera
með fyrrverandi eiginmanni Kid-
man, Tom Cruise. Aðstandendur
hátíðarinnar komu því þannig fyr-
ir að Kidman þyrfti ekki að mæta
á staðinn fyrr en vinnu Cruz væri
lokið.
Leikkonan Kate Winslet og JamesGandolfini, sem leikur Tony í
„The Sopranos“, munu fara með að-
alhlutverkin í væntan-
legri söngleikjamynd
Coen-bræðranna.
Myndin kemur til með
að heita „Romance and
Cigarettes“ og hefur
verið lýst sem „frum-
stæðri, tilfinningaríkri
og kaldhæðnislegri“ söngleikja-
mynd. Susan Sarandon mun einnig
fara með hlutverk í myndinni. Coen-
bræður eru þekktastir fyrir myndir
sínar „Fargo“, „The Big Lebowski“
og „Raising Arizona“.
Söngkonan Cher hefur ákveðið aðframlengja heimsreisu sína um
tvo mánuði. Hún kemur nú fram á
tónleikum víðs vegar um heiminn
undir þeim formerkjum að þetta
verði í allra síðasta skipti sem hún
fari í tónleikaferð. Upphaflega áttu
lokatónleikar reisunnar að vera í
janúar en þá frestaði hún endalok-
unum fram í júní. Það er greinilega
erfiðara að hætta en hana grunaði.
Rafdúettinn Skurken og Prince Valium, eða Sk/um, gaf út plötuna
„Í þágu fallsins“ í Bretlandi í lok apríl. Platan hefur fengið afbragðs
dóma í þarlendum tónlistartímaritum.
Gifssteinar fyrir
milliveggi og aðra
breytingarvinnu.
www.gifsverk.is