Fréttablaðið - 20.05.2003, Qupperneq 28
Erlín Óskarsdóttir skurðhjúkr-unarfræðingur hlaut alþjóð-
leg verðlaun á þingi evrópskra
skurðhjúkrunarfræðinga sem
haldið var á Krít. Átján verkefni
frá jafnmörgum löndum voru
lögð fram. Rannsóknarverkefni
Erlínar var hluti af lokaverkefni
hennar til meistaraprófs. Þar var
sjónum beint að líðan sjúklinga
sem dvelja í 48 klukkustundir
eða skemur á sjúkrahúsi eftir að-
gerð. „Helstu niðurstöðurnar eru
þær að sjúklingar eru mjög vel
upplýstir um allan sjúkdómsfer-
ilinn, en vandi þeirra liggur í því
að takast á við daglegt líf eftir
heimkomu,“ segir Erlín. Mörgum
hættir til að ofgera sér við dag-
legt líf og hlífa sér ekki. „Svo
skilja þeir ekki í því að batinn
gangi hægar en þeir bjuggust
við.“
Erlín segir að þetta megi leysa
með því að auka eftirfylgni, til að
mynda með símaráðgjöf. „Það að
sjúklingar liggi ekki lengi á spít-
ala eftir aðgerð leiðir til styttri
biðlista.“
Erlín hélt erindi á ráðstefn-
unni þar sem mættir voru 1.800
skurðhjúkrunarfræðingar víðs-
vegar frá Evrópu. „Við erum í
fremstu röð hér á landi á þessu
sviði borið saman við Evrópu-
lönd.“ ■
41 ÁRS „Það er ljúft að eldast, róast
og vitkast,“ segir Heimir Már Pét-
ursson, skáld, fréttamaður, stjórn-
málamaður og upplýsingafulltrúi
Flugmálastjórnar, sem er 41 árs í
dag. „Annars veit ég ekki hvort
það er leti eða aldurinn sem veld-
ur því að maður er þrekminni til
líkamlegri verka nú en þegar
maður var tvítugur,“ segir afmæl-
isbarnið, sem í gær var reyndar
statt á flugslysaæfingu á Vopna-
firði starfs síns vegna. „Ég lít ekki
á aldurinn sem flugslys,“ bætir
hann við.
Á fertugsafmæli sínu í fyrra
sló Heimir Már upp stórveislu í
bragga við Nauthólsvík þar sem
bróðir hans, Rúnar Þór, lék fyrir
dansi ásamt félögum sínum. Þar
voru á annað hundrað gestir og ár-
unum fjörutíu fagnað margfalt.
Það verður minna um að vera í
dag:
„Ætli það verði bara nokkuð
nema hvað hugsast gæti að ég
færi út að borða með kærastanum
mínum. Annað hvort á Lækjar-
brekku eða í Humarhúsið. Það eru
fínir staðir,“ segir Heimir Már en
kærastinn sem hann nefnir heitir
Jean Francoise, frönskumælandi
Quebec-búi frá Kanada. „Hann
talar sex tungumál en saman töl-
um við íslensku eða ensku.“
Eftir tíu ár vonast Heimir Már
eftir að vera búinn að sjá eitthvað
meira af heiminum en þegar er
orðið og hafa lært eitthvað nýtt.
Hann á sér engar sérstakar óskir
um afmælisgjafir í tilefni dags-
ins. Nema hvað: „Ég vona bara að
ég verði við góða heilsu eins og
hingað til. Það skiptir mestu,“ seg-
ir hann. ■
28 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
■ Nýjar bækur
Skotinn var að enda bréf til vinarsíns: Ég ætlaði að senda þér 10
pundin sem ég skulda þér en ég fattaði
það ekki fyrr en ég var búinn að loka
umslaginu.
Áhugamáliðmitt
Með súrmjólkinni
Aldurinn ekkert flugslys
Afmæli
HEIMIR MÁR PÉTURSSON
■ ljóðskáld og upplýsingafulltrúi Flug-
málastjórnar er 41 árs í dag. Hann var
staddur á flugslysaæfingu á Vopnafirði í
gær en ætlar kannski út að borða með
kærastanum í Reykjavík í kvöld.
AFMÆLISBARNIÐ
Heimir Már Pétursson vill áfram-
haldandi góða heilsu í afmælisgjöf
– gæti hann valið.
Útivist og veiði eru helstuáhugamálin. Það er sannar-
lega góð tilfinning að sumarið sé
að koma svo maður komist í að
stunda þessi áhugamál. Svo er það
fjölskyldan, bóklestur og stjórn-
mál,“ segir Margrét Sverrisdóttir,
framkvæmdastjóri Frjálslynda
Flokksins.
Sjúklingar ofgera sér heima
Í FREMSTU RÖÐ
Erlín Óskarsdóttir segir sjúklinga eiga
það til að hlífa sér ekki þegar heim
er komið eftir skurðaðgerð.
BÓKIN Það er komin halastjarna
er komin út hjá Máli og menn-
ingu en hún hefur að geyma
barnaljóð eftir tíu norræna rit-
höfunda sem jafn margir teiknar-
ar myndskreyta. Bókin kom sam-
tímis út á sex
tungumálum í
sex löndum og er
afrakstur sam-
starfs sex nor-
rænna útgefenda
sem hófst vorið 2000.
Fulltrúar Íslands í bókinni eru
Þórarinn og Sigrún Eldjárn en
Böðvar Guðmundsson þýðir ljóð
erlendu skáldanna á íslensku.
Eitt ljóð eftir hvert skáld er birt
á frummálinu í öllum útgáfunum
og bókinni fylgir geisladiskur þar
sem skáldin lesa tvö af ljóðum
sínum á sinni tungu.
Norræna ráðherraráðið, Norræni
þýðingarsjóðurinn og Sjóður til
styrktar samvinnu milli Noregs
og Danmerkur studdu verkefnið
rausnarlega. ■
Hjúkrun
ERLÍN ÓSKARSDÓTTIR
■ rannsakaði líðan sjúklinga sem fara
fljótt heim eftir skurðaðgerð. Verkefnið
var valið besta verkefnið af samtökum
evrópskra skurðhjúkrunarfræðinga.
rað/auglýsingar
Aðalfundur SÁÁ
Aðalfundur SÁÁ verður haldinn í
Síðumúla 3 - 5, miðvikudaginn
28. maí 2003 kl. 17.00
Dagskrá:
Skýrsla stjórnar um liðið starfsár.
Endurskoðaðir reikningar fyrir árið
2002 lagðir fram til samþykktar.
Kosning stjórnar, varastjórnar, endur-
skoðenda og varaendurskoðenda.
Tekin ákvörðun um félagsgjald.
Önnur mál
Stjórn SÁÁ
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr.
99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar dags. 15. maí 2003, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta
vegna innflutnings á blómum, fyrir tímabilið 1.
júlí 2003 til 31. desember 2003.
Nánari upplýsingar liggja frammi í
ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-
16:00.
Skriflegar umsóknir skulu berast til
landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 23.
maí nk.
Landbúnaðarráðuneytinu, 15. maí 2003.
Tollkvótar vegna
innflutnings á blómum.
Með vísan til 65. gr. og 65 gr. A laga nr.
99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar, dags. 15. maí 2003, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta
vegna innflutnings á nautgripa-, svína-, ali-
fugla- og hreindýrakjöti, fyrir tímabilið 1. júlí
2003 til 30. júní 2004.
Nánari upplýsingar liggja frammi í
ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-
16:00.
Skriflegar umsóknir skulu berast til
landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 23.
maí nk.
Landbúnaðarráðuneytinu, 15. maí 2003.
Tollkvótar vegna innflutn-
ings á nautgripa-, svína-,
alifugla- og hreindýrakjöti.
Með vísan til 65. gr. og 65. gr. A laga nr.
99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu
á búvörum, með síðari breytingum og með
vísan til reglugerðar dags. 15. maí 2003, er
hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta
vegna innflutnings á smjöri og ostum, fyrir
tímabilið 1. júlí 2003 til 30. júní 2004.
Nánari upplýsingar liggja frammi í
ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-
16:00.
Skriflegar umsóknir skulu berast til
landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 23.
maí nk.
Landbúnaðarráðuneytinu, 15. maí 2003.
Tollkvótar vegna
innflutnings á smjöri
og ostum.
Með vísan til 65. gr. laga nr. 99/1993 um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum,
með síðari breytingum og með vísan til reglu-
gerðar, dags. 15. maí 2003, er hér með aug-
lýst eftir umsóknum um tollkvóta vegna inn-
flutnings á unnum kjötvörum, fyrir tímabilið 1.
júlí 2003 til 30. júní 2004.
Nánari upplýsingar liggja frammi í
ráðuneytinu á skrifstofutíma frá kl. 9:00-
16:00.
Skriflegar umsóknir skulu berast til
landbúnaðarráðuneytisins, Sölvhólsgötu 7,
150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 föstudaginn 23.
maí nk.
Landbúnaðarráðuneytinu, 15. maí 2003.
Tollkvótar vegna
innflutnings á unnum
kjötvörum.
Frá Tónskóla
Þjóðkirkjunnar
Vortónleikar í Laugarneskirkju
kl. 12. miðvikudaginn 21. maí
Skólaslit í Grensáskirkju
miðvikudaginn 28. maí kl. 17.00
Umsóknir um skólavist næsta vetur óskast
sendar inn fyrir 5. júní.
Umsóknarblað og nánari upplýsingar
á vefsíðu skólans www.tonskoli.is