Fréttablaðið - 20.05.2003, Page 30
TÓNLEIKAR „Oscar Manuel Hern-
andez Meneses, skiptinemabróðir
minn í Mexíkó, var myrtur föstu-
dagskvöldið 11. apríl á heimili sínu
úti í Mexíkó,“ segir Sigfús Ólafs-
son, trommuleikari hljómsveitar-
innar Tvö dónaleg haust, sem
stendur fyrir styrktartónleikum
fyrir ekkju þessa fallna félaga síns
á Gauknum í kvöld.
„Oscar var að koma heim ásamt
Pilar, eiginkonu sinni, og þriggja
ára syni þegar þrír innbrotsþjófar
sátu fyrir þeim. Þeir fóru með
hana og barnið upp á efri hæðina
þar sem þau voru bundin niður.
Þegar Pilar losnaði úr böndunum
um einum og hálfum klukkutíma
síðar kom hún að Oscari þar sem
hann hafði verið myrtur.“ Morð-
ingjarnir stálu öllum verðmætum
af heimilinu og fjárhagsstaða Pilar
er því afar slæm.
„Ég fór út og var viðstaddur
jarðarförina og hafði stuðning af
því að vera innan um fjölskyldu
Oscars. Þegar ég kom aftur heim
langaði mig að gera eitthvað til að
hjálpa. Þar sem ég er í hljómsveit
gat ég hóað saman fólki og úr varð
að þessi styrktartónleikar verða
haldnir á afmælinu mínu í kvöld.“
Sigfús verður 29 ára í dag en
Oscar var 31 árs þegar hann var
myrtur.
Náin vinátta
Sigfús dvaldi í Mexíkó hjá fólki
Oscars frá 1994 til 1995. „Við höf-
um verið í stöðugu sambandi síð-
an. Ég held að það sé mjög óvenju-
legt að svona náin tengsl myndist,
en þetta er alveg einstakt fólk.
Oscar og Pilar bjuggu hjá foreldr-
um mínum haustið 1995 á meðan
þau unnu að lokaverkefni sínu í
viðskiptafræði og störfuðu hjá Út-
gerðarfélagi Akureyrar. Þá hafa
skiptinemaforeldrar mínir og
fleiri fjölskyldumeðlimir komið í
heimsókn til Íslands og pabbi
minn var fulltrúi minn við brúð-
kaup þeirra Oscars og Pilar sum-
arið 1997 þar sem ég gat ekki
mætt.“
Sigfús segist vonast til þess að
geta linað þrautir Pilar og guðson-
ar síns með fjársöfnuninni og
bendir á að „þó 1.000 kall sé ekki
mikill peningur hérna þá er kaup-
mátturinn meiri í Mexíkó og það
munar um hverja krónu þegar
svona hörmungar hafa dunið
yfir.“ Tónleikarnir hefjast klukk-
an 21 á Gauknum en þeir sem
vilja leggja fjölskyldunni lið er
einnig bent á reikningsnúmerið
1150-05-409671 í Spron við Skóla-
vörðustíg.
thorarinn@frettabladid.is
Hrósið 30 20. maí 2003 ÞRIÐJUDAGUR
Mér líður eins og ég sé sextánára og haga mér eins og ég sé
tólf ára,“ segir Jack Welch, fyrr-
verandi forstjóri General Elect-
ric, en viðurkennir um leið að
hann viti betur. Welch á að baki
sérlega glæsilegan feril sem for-
stjóri stórfyrirtækis og er goð-
sögn í viðskiptaheiminum. Hann
er 68 ára gamall og ástríðumaður
til vinnu og eftir að hann lét af
störfum hefur hann verið ráðgjafi
hjá mörgum af stærstu fyrirtækj-
um heims. Áhugamálin eru tekin
af sömu ástríðu. Hann er liðtækur
golfleikari og hefur meðal annars
lagt golfleikarann heimsþekkta
Greg Norman á vellinum. „Það er
ekkert gaman að spila golf þegar
maður er hættur að vinna,“ segir
Welch og vísar til sæta bragðsins
sem er af stolnum stundum.
„ Ég vinn mikið, en ég leik mér
líka mikið. Ég vinn á meðan ég
horfi á íþróttir í sjónvarpinu. Ég
vinn seinni part sunnudaga, en ég
hef yfirleitt tekið mér frí á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Þá
skemmti ég mér. Ég er írskur. Ís-
lendingar vita hvað ég á við.“
Welch skildi við aðra eiginkonu
sína fyrir ári. Núverandi kona
Welch heitir Suzy Wetlaufer, en
þau kynntust þegar hún tók við
hann viðtal sem blaðamaður
Harvard Business Review. Hún er
25 árum yngri en Welch og á fjög-
ur börn. „Við eigum líka stóran
hund. Ég reyni að verja tíma með
fjölskyldunni. Ég er lukkunnar
pamfíll. Það virðist vera alveg
sama hvað ég geri, ég enda alltaf
á góðum stað.“
Welch er doktor í efnaverk-
fræði, en er ekki með formlega
viðskiptamenntun. „Fyrir mér
skiptir ekki öllu máli í hvaða grein
bakgrunnur manna er. Það er
alltaf hægt að kenna fólki á það
sem það er að fást við. Það er per-
sónuleikinn sem skiptir máli,
hvort menn geta hrifið aðra með
sér að markmiðunum.“ ■
Persónan
JACK WELCH
■ er goðsögn í viðskiptaheiminum og
miðlaði af þekkingu sinni á Íslandi. Hann
er ástríðumaður til vinnu og áhugamála.
Góður golfari og finnst hann lukkunnar
pamfíll. Hann nýtur lífsins með sambýlis-
konu sinni, fjórum börnum hennar og
hundinum.
Fær Alþjóðahúsið við Hverfis-götu fyrir frábæra matreiðslu
á alþjóðlegum réttum á alþjóðlegu
verði.
Fréttiraf fólki
Endar alltaf á góðum stað
N‡tt fyrirtæki hefur liti› dagsins ljós sem skapar n‡tt vi›mi› á svi›i hra›flutninga,vöruflutninga og vörustjórnunar. Eftirtalin fyrirtæki
hafa sameinast undir nafni DHL til a› bjó›a jafnvel enn fjölflættari fljónustu: DHL Worldwide Express, lei›andi fyrirtæki í hra›flutningum á
heimsvísu, Danzas, sem er í fararbroddi í flug- og skipafrakt á heimsvísu, og Deutsche Post Euro Express, lei›andi evrópskt fyrirtæki í bögg-
ladreifingu. Nú getum vi› bo›i› flér meiri afköst, meiri fljónustu og fleiri möguleika í yfir 220 löndum. Einu gildir hverjar flarfir flínar eru, vi›
getum uppfyllt flær. Hringdu í okkur í síma 535 1100 e›a kíktu á www.dhl.is svo kraftur DHL geti stutt vi› baki› á rekstri flínum.
Meiri kraftur.
Ýmsar kenningar eru uppi íkringum stjórnarmyndunarvið-
ræðurnar. Ein gengur undir nafn-
inu Björns Bjarnasonar-kenningin.
Burðarbitinn í henni er að Davíð
dragi sig alfarið í hlé á miðju kjör-
tímabilinu og Björn fái uppfylltan
langþráðan draum og setjist í sæti
utanríkisráðherra. Þar með hefur
verið veitt svigrúm fyrir nýjan
leiðtoga flokksins í Reykjavík fyrir
borgarstjórnarkosningar að ári
samhliða því að flokkurinn hafi öðl-
ast tvo menn sem standa jafnfætis
hvað varðar komandi leiðtogakjör:
Geir Haarde og Björn. Sé horft til
kandídata til að leiða slaginn um
borgina líta menn til Guðlaugs Þórs
Þórðarsonar og jafnvel hins feiki-
vinsæla Gísla Marteins Baldurs-
sonar sem hefur staðið á hliðarlín-
unni sem varaborgarfulltrúi.
JACK WELCH
Tók ungur við stjórnartaumum General
Electric og varð goðsögn í lifanda lífi.
SIGFÚS ÓLAFSSON
„Þegar við skildum árið 1995 vildum við
tryggja það að við myndum hittast oftar en
þá var það ekkert sjálfgefið þar sem við
vorum báðir skítblankir og við sórumst því
í fóstbræðralag.“
Söfnun
OSCAR MENESES
■ var myrtur af ræningjum í Mexíkó í
apríl. Skiptinemabróðir hans, Sigfús
Ólafsson, trommuleikari hljómsveitarinn-
ar Tvö dónaleg haust, efnir til tónleika til
styrktar ekkju Oscars, á Gauknum í kvöld
ásamt Landi og sonum, Heimilistónum,
Sign og Amos.
Styrkir ekkju myrts fóstbróður
■ Leiðrétting
Að gefnu tilefni skal tekið fram að Landsím-
inn vill ekki frelsi í notkun á orðinu frelsi né
heldur deila því frjálst með öðrum á frjálsum
makaði