Fréttablaðið - 20.05.2003, Side 31

Fréttablaðið - 20.05.2003, Side 31
Bækurnar Skrýtnastur er mað-ur sjálfur. Hver var Halldór Laxness? og Vitar á Íslandi. Leið- arljós á landsins ströndum 1878- 2002 hlutu viðurkenningu sem bestu frumsömdu fræðibækurnar á aðalfundi Upplýsingar – Félags bókasafns- og upplýsingarfræða á dögunum. Bók Auðar Jónsdóttur um afa sinn, Halldór Laxness, var að mati dómnefndar félagsins besta frumsamda fræðibókin fyrir börn og unglinga en bók þeirra Guðmundar Bernódussonar, Guð- mundar L. Hafsteinssonar og Kristjáns Sveinssonar um vita á Íslandi þótti best í flokki fræðirita fyrir fullorðna. Upplýsing veitir þessi verð- laun á hverju ári og vill með þeim vekja athygli á mikilvægi þess að gera fræðibækur vel úr garði, hvort sem um er að ræða fræði- bækur fyrir börn eða fullorðna, almenning eða sérfræðinga. Þegar kemur að fræðibókum fyrir börn hefur ekki verið um auðugan garð að gresja og á þeim 11 árum sem Upplýsing og forver- ar þess hafa veitt verðlaunin hafa einungis þrjár bækur staðist þær lágmarkskröfur sem félagið gerir til rita af þessu tagi. Félagið skor- ar á útgefendur að leggja aukna áherslu á frumsamdar fræðibæk- ur fyrir börn og unglinga en á síð- ustu 11 árum hafa aðeins þrjár slíkar bækur hlotið náð fyrir aug- um félagsins. ■ 31ÞRIÐJUDAGUR 20. maí 2003 ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Mundur ehf. Casablanca. Ilmur Stefánsdóttir. Allir áfangastaðir Icelandair í Evrópu og Bandaríkjunum. Þú færð ódýrustu fargjöldin hjá Icelandair með Netsmelli á www.icelandair.is Engin þjónustugjöld og 1000 auka ferðapunktar. Ath. fleiri fargjöld, með öðrum skilmálum en Netsmellur, eru í boði á www.icelandair.is NETSMELLUR - alltaf ódýrast á Netinu Bókið á www.icelandair.is Flugsæti á broslegu verði ÍS LE N SK A A U G LÝ SI N G A ST O FA N /S IA .I S I C E 21 07 5 0 5/ 20 03 Fréttiraf fólki LARS VON TRIER Danski leikstjórinn og dogma-frömuðurinn stendur hér á milli leikaranna Nicole Kidman og Stellan Skarsgård. Þau eru stödd á Kvikmyndahátíðinni í Cannes til að kynna nýjustu mynd Triers, Dogville. Myndin er í hópi þeirra sem keppa um Gullpálmann eftirsótta á hátíðinni. Fróði hefur auglýst eftir nýjumritstjórnarfulltrúa á tímaritið Mannlíf. Ritstjórnarfulltrúinn Sól- veig Kr. Bergmann mun vera á för- um og sagt er að hún sé að hefja störf hjá RÚV, fréttadeild Sjón- varps. Margir þekkja ásjónu Sól- veigar frá því Skjár einn rak fréttastofu en þar var hún frétta- stjóri og helsti þulur. Sólveig hefur í raun ritstýrt síðustu tveimur tölu- blöðum Mannlífs og hefur blaðið þótt vera með frísklegasta móti að undanförnu. Fróði virðist því vera að missa góðan starfskraft. Rit- stjórinn Gerður Kristný mun hins vegar vera að leggja lokahönd á skáldsögu. Laxness og leiðarljós HALLDÓR LAXNESS Bók Auðar Jónsdóttur, barnabarns hans, er besta frumsamda fræðirit síðasta árs sem ætlað er börnum og unglingum að mati Uplýsingar – Félags bókasafns- og upplýs- ingarfræða. Bækur ■ Bók Auðar Jónsdóttur um afa sinn Halldór Laxness var valin önnur af bestu fræðibókunum af bókasafnsfræðingum.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.