Fréttablaðið - 24.05.2003, Side 30
24. maí 2003 LAUGARDAGUR32
VIEW FROM THE TOP 2, 4, 6, 8 og 10 JOHNNY ENGLISH kl. 2, 4 og 6
SKÓGARLÍF 2 kl. 2 og 3.50
DIDDA OG DAUÐI KÖTTURINNkl. 2
GULLPLÁNETAN kl. 2
DREAMCATCHER kl. 10 BULLETPROOF MONK kl. 8Sýnd kl. 8 og 10.20 b.i. 16 ára
Sýnd kl. 3, 5, 6, 8, 9 og 11 b.i. 12 ára
kl. 3NÓI ALBINÓI
THE QUIET AMERICAN
Sýnd kl. 2, 4, 5, 6, 8, 10 og 11 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 2, 6 og 10
TÖFRABÚÐINGURINN m/ísl. 2, 4 og 6
kl. 10SAMSARA
kl. 8 kl. 3 og 5JOHNNY ENGLISH
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10 b.i. 12 ára
Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.20
TÓNLIST Á miðvikudag var fjölmiðl-
um tilkynnt um að Jóhanna Guðrún
Jónsdóttir og Hljóðsmiðjan hefðu
náð samningum við fyrirtækið The
Mottola Company um útgáfu hljóm-
platna söngkonunnar um allan
heim. Samningurinn gerir ráð fyrir
fimm plötum og ef að útgáfu þeirra
verður gæti hann dugað henni
næstu fimm til átta árin. The Mott-
ola Company er í eigu Tommy Mott-
ola sem lét af störfum sem forstjóri
eins stærsta útgáfufyrirtækis
heims, Sony Music Entertainment,
um síðustu áramót. Með öðrum orð-
um, Jóhanna er komin í feitt.
„Þegar hún kom til mín átta ára
gömul í söngskólann sá ég alveg í
hvaða gæðaflokki hún var,“ segir
María Björk Sverrisdóttir, umboðs-
maður Jóhönnu. „Við erum svo búin
að betrumbæta það alveg helling.
Hún hefur þroskast og er búin að
læra heilmikið.“
Þreifingar úti hafa staðið yfir í
um eitt og hálft ár. Á þeim tíma hef-
ur Jóhanna m.a. ferðast til Svíþjóð-
ar, London og þrisvar til Bandaríkj-
anna. Síðasta sumar var hún í Flór-
ída að læra ensku.
Í gegnum Steinar Berg komst
María Björk í samband við Ric
Wake sem m.a. sá um tónlistina í
söngva-myndinni Chicago, auk þess
að hafa áður unnið með Celine Dion
og Jennifer Lopez. Upp frá því
fengu stóru útgáfurnar áhuga á Jó-
hönnu og segir María að þær hafi
getað valið úr tilboðum frá risaút-
gáfum á endasprettinum.
„Jóhanna verður ekki markaðs-
sett sem barnastjarna. Í dag er hún
tólf ára og það er áætlað að fyrsta
platan komi út á næsta ári. Á henni
syngur hún lög eftir sömu lagahöf-
unda og semja fyrir Celine Dion.
Hún verður ekki sett í svona Britn-
ey búning. Hún verður bara frábær
söngkona og fólk verður ekki alveg
með á hreinu hvað hún er gömul.“
Við undirritun fékk Jóhanna
„rausnarlega“ fyrirframgreiðslu,
að sögn Maríu. „Þetta er náttúru-
lega stór samningur og hún á ekk-
ert að þurfa að líða skort á meðan
hún er að vinna plöturnar sínar. Það
er gert ráð fyrir því að mamma
hennar taki sér frí í vinnunni og að
það sé kennari sem fer með þegar
hún þarf að vera frá skóla.“ Plötu-
fyrirtækið borgar svo allan ferða-
kostnað þegar hún fer í tónleika-
ferðir.
María segir að þrátt fyrir ungan
aldur taki Jóhanna mikinn þátt í að
taka ákvarðanir.
„Það á ekki að þvinga hana í ein-
hvern stíl sem henni líkar ekki við
sjálfri. Hún á líka endilega að byrja
semja sjálf og taka meiri þátt í gerð
laganna. Hún hefur verið að læra á
gítar í vetur sem er fyrsta skrefið í
því að fara að semja. Það er búið að
vinna grunninn fyrir hana mjög vel.
Það er aldrei að vita nema við fáum
flottan lagahöfund út úr þessu
líka,“ segir María að lokum.
biggi@frettabladid.is
Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40 b.i. 12 ára
Sýnd í lúxus kl. 3, 6 og 9
DARKNESS FALLS b.i. 16 kl 8 og 10
Jóhanna komin í feitt
Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir hefur gert einn veigamesta plötusamning
sem Íslendingur hefur gert við bandaríska útgáfu. Fyrsta platan á alþjóðamarkaði
kemur út á næsta ári.
Ég heillaðist fyrst af Mínus þeg-ar þeir tóku Negative Creep á
Nirvana-tónleikum á Gauki á
Stöng fyrir nokkru síðan. Kraftur-
inn og miskunnarleysið var algert.
Kannski var eitthvað varið í þessa
hljómsveit eftir allt. Fram að
þessu hafði ég haft þá skoðun að
Mínus væri ekki minn tebolli.
Taldi að þetta væru of harðir
rokkarar fyrir gamlan Nirvana-
og Metallica-hund eins og mig.
Sem betur fer heldur Mínus
áfram að koma mér á óvart. Platan
Halldór Laxness er virkilega öfl-
ug og stundum minnir hún meira
að segja á ofangreindar sveitir.
Hvaða rokkari sem er ætti að
finna þarna ýmislegt við sitt hæfi
því þrátt fyrir að harðkjarninn og
drunginn séu jafnan undir-
liggjandi er þetta fyrst og fremst
bara rokk og ról eins og það gerist
best.
Mesta hrifningu mína vöktu
upphafslagið kröftuga Boys of
Winter, Romantic Exorcism,
Flophouse Nightmares og síðast
en ekki síst The Long Face.
Mínusinn fengu My Name is
Cocaine og I go Vertigo fyrir helst
til mikla ofhleðslu.
Halldór Laxness er yfirhöfuð
mjög góð rokkplata þar sem heild-
artónninn er verulega flottur. Og
ekki má gleyma umslaginu. Afar
(ó)smekklegt.
Freyr Bjarnason
Umfjölluntónlist
Kröftugt
nóbelsrokk
MÍNUS:
Halldór Laxness
■ ■ SKEMMTANIR
19.00 Veitingahúsið Chess, Grens-
ásvegi 3, verður með Eurovisionpartí á
laugardag til klukkan þrjú um nóttina.
19.00 Eurovisionpartí með Botn-
leðju á Grandrokk. Þar verður Grillað
og risaskermur settur upp á staðnum.
22.00 Eurovisionpartí á Brodway.
Farið yfir þekktustu vinningslögin í
Eurovisionkeppninni og nokkrum ís-
lenskum skotið inn á milli. Söngvarar
eru Davíð Olgeirsson, Hafsteinn Þór-
ólfsson, Hjördís Elín Lárusdóttir, Guð-
rún Árný Karlsdóttir og Guðbjörg
Magnúsdóttir. Dansleikur verður í kjöl-
farið með hljómsveitinni Hunang.
23.00 Hljómsveitin Sniglabandið
spilar á Champions Café fram eftir
nóttu.
23.00 Páll Óskar verður sérstakur
plötusnúður á NASA og spilar helstu
gullmola Eurovisionkeppninnar. Þegar
líða tekur á nóttina tekur hann svo lagið
ásamt öðrum íslenskum Eurovision-
stjörnum. Má þar nefna Helgu Möller,
Sigríði Beinteinsdóttur, Grétar Örvars-
son, Eyjólf Kristjánsson og Stefán
Hilmarsson.
kl. 5,40, 8 og 10.20HOW TO LOSE A...
LEGSTEINAR
Mikið úrval af legsteinum
og fylgihlutum
Sendum myndalista
MOSAIK
Hamarshöfði 4, 110 Reykjavík, sími 587 1960
Marmari
Granít
Blágrýti
Gabbró
Líparít
hvað?hvar?hvenær?
21 22 23 24 25 26 27
MAÍ
Laugardagur
24.00 Hljómsveitin Stuðmenn
mun leika á Sjallanum Akureyri.
24.00 Hljómsveitin Bax leikur á
veitingahúsinu Cactus í Grindavík.
Sixties mun koma fram í Breiðinni
á Akranesi.
Eurovisionkvöld hjá hljómsveitinni
BSG á Players í Kópavogi.
Eurovisionkvöld hjá Gullfoss og
Geysi á Leikhúskjallaranum.
Diskórokktekið & Plötusnúðurinn
DJ SkuggaBaldur á Rabbabaranum
Patreksfirði.
Eurovisionkeppnin á breiðtjaldi á
Kringlukránni. Hljómsveitin Júdas úr
Keflavík mun svo leika fyrir dansi fram
eftir nóttu.
Hljómsveitin Ber heldur tónleika á
Kaffi Akureyri.
JÓHANNA OG TOMMY MOTTOLA
Fyrirtækið sem Jóhanna samdi við,
The Mottola Company, er stærsta
nýja plötuútgáfan í Bandaríkjunum.
Yfirmaður þess, Tommy Mottola, var
yfirmaður Sony í 12 ár og var m.a.
giftur Mariuh Carey. Í næsta mánuði
hefjast upptökur á fyrstu breiðskíf-
unni sem gefin verður út um allan
heim. „Það er bara stefnt á toppinn,
það er ekkert öðruvísi,“ segir María
Björk. „Við erum með besta liðið í
öllu og teljum okkur vera með ör-
ugga hluti í höndunum. En maður
veit aldrei.“
ABRAFAX m/ísl. tali 2, 4 og 6
Hyrjarhöfði 7, sími 567 8730/6937154
www.teflon.is
LAKKVÖRN
BRYNGLJÁI
Á BÍLINN!
Blettun-djúphreinsun-alþrif.
Gifssteinar fyrir
milliveggi og aðra
breytingarvinnu.
www.gifsverk.is