Fréttablaðið


Fréttablaðið - 17.08.2003, Qupperneq 2

Fréttablaðið - 17.08.2003, Qupperneq 2
2 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Það fer eftir því í hvernig skapi ég er. Jóhann Hjartarson, stórmeistari í skák, er genginn til liðs við taflfélagið Hrókinn. Spurningdagsins Jóhann, ertu hrókur alls fagnaðar? ■ Lögreglufréttir Lifandi miðbær á Menningarnótt MENNINGARNÓTT Miðborg Reykja- víkur iðaði af lífi frá morgni og fram eftir kvöldi í gær á Menn- ingarnótt. Þúsundir þræddu stræti borgarinnar og önduðu að sér fersku menningarloftinu. Þátttaka Menningarnætur í miðbænum var minni framan af sökum rigningar en oftast áður. Veður var með rólegra móti þó rigndi nokkuð, lítill vindur og í raun varla þörf á regnhlíf. Upp úr klukkan átján fjölgaði fólki mikið. Í fyrstu bar mest á fjölskyldu- fólki með börn sín, en þau heilluð- ust ekki síst af blöðrum sem nóg var af. Stórtónleikar hófust um kvöldið, en trúbadorar nýttu tæki- færið fram að því og komu sér fyrir hér og þar og skemmtu veg- farendum með söng sínum. Yngstu börnin skemmtu sér best á Austurstræti þar sem tívolítækj- um hafði verið komið fyrir. Hitt húsið var með stífa dag- skrá allan daginn og var fólk á förnum vegi lokkað inn með eld- gleypum, syngjandi fjallkonum og leikurum úr Ofleik. Innandyra var eitthvað að gerast á öllu hæð- um svo sem myndlistasýningar, tónleikar Lúðrasveitar lýðsins, danssýningar frá Fúsion, Ofleikur var með kennslustund í stefnu- mótafræðum og lauk dagskránni með heljarinnar pönk tónleikum bandarísku sveitanna Total Fuck- ing Destruction og The Mother- fucking Clash. Nokkuð var um tónleika innan- dyra og myndlistasýningar í búða- plássum. Fullt var út að dyrum á tónleikum Eivarar Pálsdóttur í húsnæði Tryggingarmiðstöðvar- innar við Aðalstræti. Margir sóttu hiphopdagskrá Alþjóðahússins og unglingarnir fylgdust gaumgæfi- lega með þegar veggjakrotarar skreyttu vegg í portinu fyrir aftan húsið. Rás 2 stóð fyrir afmælisdag- skrá í tilefni tuttugu ára afmæli hennar. Fyrst á Ingólfstorgi og svo með stærðarinnar tónleikum við Hafnarbakkann um kvöldið. Á Ingólfstorgi skemmtu m.a. Súkkat og líka var stiginn línudans. Flest- ir komu saman á stórtónleikana á Hafnarbakkanum sem hófust klukkan níu með leik Quarashi. Þar léku svo einnig Sálin og Stuð- menn. biggi@frettabladid.is FISKVEIÐAR Skipstjórar í kolmunnaflotanum hafa litlar áhyggjur af kolmunnastofninn, en sókn í stofninn hefur aldrei verið meiri. „Við erum pollróleg- ir yfir kolmunnastofninum og menn eru helst ánægðir með að hafa nóg að gera,“ segir Sturla Þórðarson, skipstjóri á Berki frá Neskaupstað. Sturla segir flotann verða var- an við kolmunna í kringum allt landið. Börkur hefur löngum verið framarlega í flokki síld- veiðiflotans en í sumar sleppti skipið síldinni fyrir kolmunna. „Þetta er í fyrsta skiptið sem við sleppum síldinni. Nú sækjum við fyrst og fremst í kolmunnann. Ég held að stofninn þoli þessa sókn, en hvað sem öðru líður verðum við að halda í við Evrópusam- bandið í hlutdeildinni.“ Kolmunni er talsvert ódýrari fiskur en síld og loðna, en hins vegar er jafnan styttra að sækja kolmunnann. „Kolmunninn er út um allt. Hins vegar er aldrei á vísan að róa með uppsjávarfisk- inn. En maður heyrir ekkert hræðslutal í talstöðinni varðandi kolmunnann,“ segir Sturla. ■ Handtekinn fyrir guðlast: Á von á dauðadómi PAKISTAN, AP Fertugur Pakistani hef- ur verið handtekinn fyrir að fara niðrandi orðum um Múhammeð spámann. Niaz Ahmed getur átt yfir höfði sér dauðarefsingu verði hann dæmdur fyrir guðlast. Ahmed var handtekinn eftir að trúarleið- togar í þorpinu þar sem hann býr höfðu kvartað yfir ummælum hans. Hundruð manna sitja í fangelsi í Pakistan vegna brota á lögum um guðlast. Mannréttindasamtök benda á að auðvelt sé að misnota lögin þar sem hægt sé að höfða mál á grundvelli vitnisburðar eins manns og það sé hlutverk sakborn- ingsins að sanna sakleysi sitt. ■ BUSH Þjóðverji sem í tölvupósti sagðist ætla að myrða Bandaríkjaforseta á yfir höfði sér langa fangavist og 40 milljóna sekt. Þrítugur Þjóðverji ákærður: Hótaði að myrða Bush FLÓRÍDA, AP Volker Czechanowsky, 33 ára þjóðverji á yfir höfði sér allt að tíu ára fangelsi og 40 millj- óna króna sekt fyrir að hóta að ætla að myrða George W. Bush, Bandaríkjaforseta. Czechanow- sky sendi tölvupóst frá almenn- ingsbókasafni í Broward sýslu á Flórída en í skeytinu segir; „Ég mun myrða forsetann 30. maí 2003. Reynið bara að ná mér. Saddam lengi lifi.“ Czechanowsky er þýskur rík- isborgari en hefur atvinnu- og dvalarleyfi í Bandaríkjunum. Yf- irvöld gefa ekki upp hvar hann er í haldi eða hvar réttað verður yfir honum. ■ DANSKIR DAGAR Mikill fjöldi fólks er staddur í Stykkishólmi á Dönskum dögum, en að sögn lög- reglu er talið að um það bil 2500- 3000 manns séu í bænum. Hátíða- höld gengu vel fyrir sig í gær. NEW YORK, AP Bilun í þremur flutn- ingslínum í norðurhluta Ohio er nú talin líklega orsök mesta raf- magnsleysis sem orðið hefur í sögu Bandaríkjanna. Sérfræðing- ar grafast nú fyrir um orsakir hins útbreidda rafmagnsleysis sem varð í norðaustur- og mið- vesturhluta Bandaríkjanna og suðurhluta Bandaríkjanna. „Við erum nokkuð viss um að vandamálið hófst í Ohio. Nú erum við að reyna að öðlast skilning á því hvers vegna ekki var unnt að komast fyrir bilunina,“ sagði Michehl Gent, yfirmaður orku- ráðs Norður-Ameríku. Bandaríkjamenn og Kanada- menn hafi stofnað sameiginlega rannsóknarnefnd til að grafast fyrir um orsakir rafmagnsleysis. Rafmagn er víðast hvar komið á að nýju. Rannsakendur hafa farið yfir 10.000 blaðsíður af upplýsing- um úr sjálfvirku kerfi sem skráir upplýsingar um raforkudreifingu um landið. Það hefur þó torveldað rannsókn hve ört upplýsingar bár- ust daginn örlagaríka sem raf- magnið fór af. „Við munum engu að síður komast til botns í þessu,“ sagði Michehl Gent. ■ ORMSTEITI Á VOPNAFIRÐI Fjöldi fólks lagði leið sína til Vopna- fjarðar um helgina en þar var haldið Ormsteiti. Tjalddansleikur var haldinn á föstudagskvöld og fór allt vel fram. NOKKUR UMFERÐ Nokkur um- ferð var norður yfir heiðar um helgina, en umferðin hefur verið hæg. Einn útlendingur var þó stöðvaður fyrir of hraðan akstur, en hann keyrði á 140 kílómetra hraða á klukkustund. TÖÐUGJÖLD Töðugjöld á Hvols- velli fóru vel fram í fyrrakvöld. Talið er að um 500 manns hafi safnast saman á Hvolsvelli, en þar lék Á móti sól fyrir dansi. Skipstjórar ánægðir með fiskerí: Engar áhyggjur af kolmunnanum BÖRKUR FRÁ NESKAUPSTAÐ Sleppti síldinni í sumar í fyrsta skiptið og stundaði kolmunnaveiðar í staðinn. Líklega orsök rafmagnsleysisins vestanhafs: Bilun í þremur flutningslínum í Ohio RANNSÓKN Rafmagn er nú víðast komið á vestan hafs. Kanada og Bandaríkin hafa nú stofnað sameiginlega rannsóknarnefnd sem ætlað er að komast að orsökum þessa mesta rafmagnsleysis sögunnar. Fjölmenni lét rigningu ekki koma í veg fyrir gleði á Menningarnótt. Miðborgin iðaði af lífi frá morgni og fram eftir kvöldi. Borgarbúum og gestum var boðið upp á fjölda skemmtiatriða. Á HESTBAKI Á LAUGAVEGINUM Þeir yngstu gripu margir einstakt tækifæri til þess að fara á hestbak á Laugaveginum. LÚÐRASVEIT LÝÐSINS Það var notaleg stofustemning hjá Lúðrasveit lýðsins á 2. hæð Hins hússins í gær. SYNGJANDI FJALLKONUR Fjallkonurnar dáleiddu vegfarendur með fallegum söng í Austurstrætinu. RÓSA MEÐ KASSAGÍTARINN Rósa Guðmundsdóttir tónlistarkona söng af líf og sál við Skólavörðustíginn. ■ Lögreglufréttir FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Ríkisstjórakosningar í Kaliforníu: Schwar- zenegger næstefstur KALIFORNÍA, AP Demókratinn Cruz Bustamente, núverandi vararíkis- stjóri Kaliforníu, mælist með mest fylgi þeirra 135 frambjóð- enda sem vilja í embætti ríkis- stjóra í Kaliforníu. Fylgi Busta- mentes mælist nú 25% en fylgi Arnolds Schwarzeneggers aðeins 22%. Fylgi annarra frambjóðanda mælist miklu minna. Munur tveggja efstu manna er þó innan skekkjumarka. Larry Flint útgef- andi Hustler, mælist aðeins með 1% fylgi. Ríkisstjórakosningar fara fram í Kaliforníu 7. október næst- komandi. Kjósendur gera fyrst upp við sig hvort umboð Gray Davis, sem var kjörinn ríkisstjóri í fyrra, verður afturkallað. Geri kjósendur það, velja þeir milli frambjóðendanna 135. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.