Fréttablaðið - 17.08.2003, Page 16

Fréttablaðið - 17.08.2003, Page 16
■ Bretland 16 17. ágúst 2003 SUNNUDAGUR Hann fæddist í Edinborg íSkotlandi 6. maí árið 1953. Eftirlætislesefni hans á æskuár- um var ævintýrasögur eftir C.S. Lewis frá undralandinu Narníu og Hringadróttinssaga eftir Tolkien. Hann var aðalsöngvari rokk- hljómsveitarinnar Ljóta slúðrið (Ugly Rumours) og spilaði á bassagítar. Hann lærði lögfræði í Oxford hafði mikinn áhuga á stjórnmálum og sökkti sér niður í ævisögu Trotskís eftir Isaac Deutscher. Árið 1975 kynntist hann konu sinni og gerðist félagi í Verkamannaflokknum. Svo bauð hann sig fram til þings í fyrsta sinn en kolféll. Þrítugur að aldri komst hann þó á þing í kosningun- um 1983 og hefur síðan setið á þingi fyrir Sedgefield-kjördæmi. Hann heitir Tony Blair og er forsætisráðherra Bretlands og formaður breska Verkamanna- flokksins. Þegar Tony Blair tók sæti á þingi var Íhaldsflokkurinn við völd á Bretlandi. Blair hóf þing- feril sinn í stjórnarandstöðu og tókst fljótt að vinna sig í álit með- al flokkssystkina sinna. Eftir kosningarnar 1992 var hann kom- inn í innsta hring Verkamanna- flokksins og var innanríkisráð- herraefni í skuggaráðuneyti hjá John Smith, formanni flokksins, sem var leiðtogi stjórnarandstöð- unnar. Fjölmiðlar muna enn eftir yfirlýsingum Blairs frá þessum tíma um að „Verkamannaflokkur- inn ætli sér að bregðast hart við glæpum, og bregðast hart við or- sökum glæpa.“ Nýr foringi – nýr flokkur Árið 1994 varð John Smith bráðkvaddur og Verkamanna- flokkurinn varð að finna sér nýjan foringja í skyndi. Tveir menn komu helst til greina: Tony Blair og annar ungur og efnilegur mað- ur sem einnig var fæddur í Skotlandi, Gordon Brown að nafni. Gordon Brown fæddist í Glas- gow 20. febrúar 1951. Faðir hans var prestur í þorpinu Kirkcaldy og sendi son sinn til mennta í Ed- inborgarháskóla þar sem hann lauk doktorsprófi í sagnfræði. Gordon Brown fór snemma að hafa áhuga á stjórnmálum. Aðeins 12 ára að aldri var hann farinn að vinna að kosningaundirbúningi fyrir Verkamannaflokkinn, og á þrítugsaldri var hann orðinn ein- hver þekktasti leiðtogi Verka- mannaflokksins í Skotlandi. Eins og Tony Blair féll Gordon Brown í fyrsta sinn sem hann bauð sig fram til þings. Það var árið 1979. En hann gafst ekki upp og vann sigur í Austur-Dunferm- line 1983. Eftir þær kosningar deildu nýgræðingar Verkamanna- flokksins á þingi, þeir Brown og Blair, skrifstofu og tengdust þar böndum sem enn hafa ekki rofn- að. Það var Tony Blair sem var kjörinn formaður Verkamanna- flokksins með glæsilegum meiri- hluta árið 1994. Félagi hans, Gor- don Brown, ákvað að bjóða sig ekki fram gegn honum og veit- ti honum stuðning sinn. Stjórnmálaskýrendur eru flestir þeirrar skoðunar að þeir hafi þá gert með sér sam- komulag um að Brown mundi í framtíðinni ráða stefnu Verkamannaflokksins í efna- hagsmálum og verða fjár- málaráðherra um leið og flokkurinn fengi umboð til stjórnarmyndunar. Það sam- komulag stendur enn í dag. Hinn nýi formaður Verka- mannaflokksins tók þegar í stað til óspilltra málanna við að gera Verkamannaflokkinn nú- tímalegri. Hann lýsti því yfir að til þess að geta átt von á því að sigra í kosningum yrði flokkurinn að hasla sér völl og ná undirtökun- um á hinni pólitísku miðju. Ýms- um flokksfélögum leist illa á að hinn fornfrægi vinstriflokkur færði sig yfir á miðjuna. Próf- steinninn á hvort áhrif for- mannsins dygðu til að breyta flokknum voru átökin um „Fjórðu greinina“, það er að segja fjórðu grein stefnuskrár flokks- ins sem kvað á um „sameign framleiðslutækja“ og „sameign í dreifingu og verslun“. Tony Blair fékk vilja sínum framgengt. Fjórða greinin heyrði sögunni til og formaðurinn kynnti nú flokk- inn sem „Nýja Verkamannaflokk- inn“. Ungur leiðtogi „Nýi verkamannaflokkurinn“ vann síðan frækilegan sigur í þingkosningunum 1997, hlaut 179 þingsæta meirihluta og myndaði ríkisstjórn eftir 18 löng ár í stjórnarandstöðu. Tony Blair varð forsætisráðherra, 43 ára að aldri, yngsti forsætisráðherra Breta síðan Liverpool lávarður tók við því embætti á tímum Napóleons árið 1812. Þingmaðurinn frá Aust- ur-Dunfermline, Gordon Brown, varð fjármálaráðherra. Stjórn Verkamannaflokksins tók þegar í stað til við að hrinda í framkvæmd stefnumálum sínum. Heimastjórn var aukin í Skotlandi og Wales, og Englandsbanka var heimilað að ákveða vaxtastig. Lá- varðadeild þingsins var grisjuð svo að nú hafa einungis 92 lávarð- ar erfðarétt til þingsetu. Lundúna- búar fengu eigin borgarstjóra og borgarstjórn. Á Norður-Írlandi tókst, eftir samningaumleitanir sem virtust engan enda ætla að taka, að ná því friðar- samkomulagi sem síð- an er kennt við „ f ö s t u d a g i n n langa“ árið 1998. Og 42 milljarð- ar sterl- i n g s p u n d a hafa verið lagðir fram til að bæta heilsugæslu og menntun, sem voru forgangsmál í stefnuskrá V e r k a - m a n n a - flokksins. A n n a r s t ó r s i g u r vannst síðan í kosningun- um 2001. Tony Blair hefur nú setið að völdum lengur en nokkur annar leiðtogi Verkamannaflokksins. Hann hefur lýst því yfir að áhugi sinn á starfi forsætisráðherra hafi ekki minnkað og hann ætlar að leiða flokkinn í þriðju kosningunum og hefur tíma- setningu þeirra í hendi sér. En það situr enginn að völdum í 6 ár án þess að verða fyrir gagn- rýni, og Tony Blair hefur ekki far- ið varhluta af henni. Adam er ekki lengur í Paradís, og í síðustu stóru skoðanakönnun í Bretlandi var Íhaldsflokkurinn kominn með tölu- vert meira fylgi en Verkamanna- flokkurinn. Djúp gjá Þeir fyrrum fylgismenn Tonys Blairs sem nú hafa snúið við hon- um bakinu nefna nokkrar ástæð- ur. Ein ástæðan er sú að hann sé ekki lengur trúverðugur stjórn- málaforingi. Hann láti stjórnast af ímyndarfræðingum og er þar sérstaklega tilnefndur Alastair Campbell. Hann sé fyrst og fremst ræðumaður, sjarmatröll og fjölmiðlafígúra, hinn raun- verulegi stjórnmálamaður sem standi föstum fótum í fornum dyggðum Verkamannaflokksins sé Gordon Brown fjármálaráð- herra. Þó að hún standist varla rök- Staða Tonys Blairs hefur aldrei verið óljósari í breskum stjórnmálum. Gallharðir stuðningsmenn óttast jafnvel að vonarstjarnan sé fallin. Hver er saga Blairs, hver er maðurinn og hvert stefnir hann? Söngvari, lögfræðingur, leiðtogi – og hvað svo? TONY BLAIR Adam er ekki lengur í Paradís. Í síðustu stóru skoðanakönnun í Bretlandi var Íhalds- flokkurinn kominn með töluvert meira fylgi en Verkamanna- flokkurinn. Margir vinstrimenn í Bretlandi sem til þessa hafa stutt Tony Blair með ráðum og dáð eiga nú úr vöndu að ráða. Eiga þeir að stuðla að áframhaldandi valdaferli manns sem sagður er ropa þegar Bandaríkjafor- seti sýpur á kók? Eða eiga þeir að horfa upp á Verka- mannaflokkinn afhenda Íhaldsflokknum stjórnar- taumana á nýjan leik? Eða eiga þeir að gera hallarbylt- ingu og gera fjármálaráð- herrann, Gordon Brown, að foringja flokksins? ,,

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.